Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Blaðsíða 15
DV Helgarblað föstudagur 20. júlí 2007 15 Þeir menn úr áhöfn þyrlu Land- helgisgæslunnar, TF-SIF, sem voru á vakt þennan morgun, sváfu flest- ir vært á heimilum sínum á höf- uðborgarsvæðinu þegar þessi ör- lagaríki atburður átti sér stað hjá skipverjunum undan Snæfellsnesi. Páll Halldórsson yfirflugstjóri var á vakt þennan dag: „Klukkuna vantaði fimmt- án mínútur í sjö að morgni þegar neyðarútkall barst. Ég vaknaði ekk- ert mjög vel. Ég fór fram úr og dró gardínuna frá svefnherbergisglugg- anum. Aðeins var farið að birta af degi og það gekk á með leiðinleg- um suðvestan éljahryðjum. Það fór einhver hrollur um mig. Útkallið var á þá leið að það kom píp í tækið mitt sem þýddi Sigurð- ur, Ingi, Friðrik – SIF – útkall Alfa. Tækið sagði mér ekkert meira en Alfa þýðir að einhver er í lífshættu. Ég vissi að ég þurfti að drífa mig út á flugvöll á sem allra stystum tíma og hugsaði: „Það er eitthvað mikið framund- an núna.“ Ég átti heima í Hlíðunum og ók sem leið lá fyrir Öskjuhlíðina og út á völl. Allt í lagi að reyna Þegar ég kom þangað lágu fyr- ir upplýsingar. Bátur hafði strand- að í klettunum við Hólahóla vest- an til á Snæfellsnesi. Það voru bátar fyrir utan. Engin ljós sáust en skip- verjar töldu sig sjá einhverja menn í klettunum. Sjö vindstig voru á þessum slóðum og það gekk á með dimmum snjóéljum. Sjór var mjög þungur. Ég vissi að él væru í Faxa- flóanum eins og gerist venjulega í þessari vindátt. Útlitið var því ekki mjög bjart. Veðrið í Reykjavík var þó ekki svo slæmt þannig að ég hugsaði með mér að það væri allt í lagi að reyna. Við fórum í loftið og fljótlega eftir að við vorum komnir af stað komum við auga á fyrsta élið á leið- inni. TF-SIF þolir ekki beinlínis öll veður og því urðum við að krækja fyrir éljaklakkana. Élin tóku við eitt af öðru en samt vorum við ótrúlega heppnir með hvernig þau lágu. Við vorum komnir vel áleiðis en ég var samt orðinn dálítið áhyggjufull- ur yfir því hvort við myndum ná á áfangastað. Ég spurðist fyrir um það í stjórnstöð Landhelgisgæslunn- ar hvort þyrlur varnarliðsins væru ekki að fara í loftið líka. Þá komu þau skilaboð frá stjórnstöðinni að Bandaríkjamennirnir færu ekki af stað vegna ókyrrðar í lofti og ísing- ar. Þeir treystu sér ekki einu sinni til að opna dyrnar á flugskýlinu vegna veðurs. Það fór að fara um okkur. Við fórum að hugsa um hvort þeir hefðu fengið aðrar upplýsingar en við um veðrið. „Af hverju fara þeir ekki?“ hugsaði ég. Þegar við nálg- uðumst vestanvert Snæfellsnesið sáum við að skilyrðin voru ekki svo slæm á leiðinni. Með því að krækja fyrir éljaklakkana var þetta hægt. Ferðin vestur tók þó heldur lengri tíma en ef við hefðum getað flogið í beinni línu yfir Faxaflóann að Hóla- hólum. Við vorum í stöðugu sambandi við stjórnstöð Landhelgisgæslunn- ar. Varðskipið Óðinn, sem var með bát í togi norður af Hellissandi, kom til okkar upplýsingum í gegn- um stjórnstöðina. Menn gerðu sér fljótlega grein fyrir hvað þetta var alvarlegt. Þyrfti meira en eina ferð Hver hugsaði sitt. Það voru níu menn um borð í bátnum og því al- veg ljóst að við gátum ekki híft þá alla um borð í þyrluna í einni ferð. Ég hugleiddi að ef vel gengi yrði þetta stærsta björgun okkar á þeim tæpu tveimur árum sem við höfð- um notað þessa þyrlu. Þarna voru níu manns strand- aðir. Þetta var „stóra verkefnið“. Við vorum eina von þessara manna og þetta varð að takast. Ég sagði við strákana: „Við gerum þetta bara nákvæm- lega eins og við höfum verið að æfa. Þetta er bara æfing og það fer ekk- ert úrskeiðis hjá okkur.“ Áður en við komum á stað- inn ræddum við um hvernig við myndum standa að björguninni – hvort það væri yfirleitt einhverju að bjarga. Voru einhverjir enn á lífi? Þegar ég sá Snæfellsnesið fór mér að lítast mun betur á veðrið en áður. Um það leyti fengum við þær upplýsingar frá Óðni að heldur væri að draga úr éljunum. Ég gerði mér þá grein fyrir að það myndi verða eitthvað annað en veðrið sem gæti komið í veg fyrir björgun þennan morgun. Það yrði þá brotsjórinn í fjörunni, lega bátsins eða eitthvað annað.“ Þegar TF-SIF kom að strandstað við Hólahóla klukkan 8.13 var orðið nokkuð bjart og mennirnir í áhöfn þyrlunnar komu strax auga á brak og mikla olíubrák í sjónum. Sjó- menn á nærstöddum bátum höfðu dælt olíu í sjóinn til að freista þess að minnka brimrótið í fjörunni þar sem Barðinn kastaðist til á hliðinni. Menn í björgunarsveitum á Snæ- fellsnesi voru komnir á staðinn. Þeir höfðu brugðist mjög fljótt við. Er þeir höfðu komið sér fyrir uppi á brún klettanna sáu þeir í fyrstu ekk- ert lífsmark um borð í Barðanum. Þeir náðu engu sambandi við hann og sáu að þeir áttu enga möguleika á að koma línu út í bátinn. Svaða- brim og miklar ágjafir komu í veg fyrir slíkt. Björgun úr landi var gjörsam- lega vonlaus á þessari stundu. Áður en björgunarsveitirnar komu á vettvang töldu skipverjar á bátun- um fyrir utan að þeir sæju mönn- um bregða fyrir í klettunum við strandstaðinn. Síðar kom í ljós að „mennirnir“ reyndust vera lóða- belgir í sjónum.“ Ekkert lífsmark að sjá Útlitið var ekki gott þegar Páll og áhöfn hans komu á strandstað: „Við létum þyrluna hanga yfir fjörunni og sáum að báturinn hafði stöðvast einhverja tugi metra frá klettunum og hvernig hann lá á stjórnborðshliðinni. Niðamyrkur var um borð, engu sambandi hægt að ná við skipverja og ekkert lífs- mark að sjá. Okkur fannst hrikalegt að sjá enga hreyfingu um borð. Með nokkru millibili riðu brimskaflarnir yfir bátinn og þá hvarf hann nánast sjónum okkar. Báturinn hreinlega hentist til í grjótinu. Þetta leit ekki vel út.“ Sigurður Steinar Ketilsson spil- maður hafði gert sér vonir um að það tækist að bjarga að minnsta kosti einhverjum úr áhöfn Barðans stuttu áður en komið var á strand- stað en er þangað var komið blasti við honum átakanleg sjón: „Þegar ég sá allt þetta brak í sjón- um og hvernig báturinn lá hugsaði ég ekki nema eitt: „Það er enginn á lífi þarna.“ Ástandið þarna var hræðilegt. Þegar við flugum yfir bátinn fannst okkur allt steindautt þarna niðri. Allt virtist vera búið þarna um borð. Við höfðum sveim- að þarna yfir í dágóða stund þeg- ar það óvænta gerðist. Skyndilega var hendi veifað í gættinni á brúar- dyrunum bakborðsmegin þar sem hurðin hafði brotnað af. Það var lífsmark.“ Taugarnar þandar Nú tók adrenalínið að streyma í mönnunum í þyrlunni. Það var Bergþór stýrimaður sem hafði veif- að upp til þyrlunnar. Hann var orð- inn talsvert þrekaður. Páll flugstjóri gerði sér grein fyrir að nú þurfti að láta hendur standa fram úr ermum. En spurningin var: Hvernig átti að bera sig að við þessar aðstæður? „Það voru hugsanlega níu menn þarna í brúnni, skipið lá á hliðinni og skaflarnir gengu yfir það þannig að áhöfnin átti aldrei möguleika á að koma út til að taka á móti vír frá okkur. Auk þess var allt of hættu- legt að senda sigmann niður. Hann hefði ekki getað fótað sig og hætt- an á að hann lenti í briminu var of mikil. Við ákváðum að lenda uppi á bjargbrún og létta þyrluna með því að losa okkur við Guðmund Björns- son lækni og þann búnað sem ekki þurfti að nota við björgunina. Við ákváðum að halda Kristjáni Þ. Jónssyni sigmanni um borð því við töldum að hann gæti aðstoðað Sigurð Steinar við að ná mönnun- um upp til okkar, að öllum líkind- um rennandi blautum og þungum. Eina vonin til að koma björgunar- lykkju niður til skipverjanna í þessu tilfelli var að nota tengilínu með blýþræði í og þyngingu á endan- um. Við ætluðum að freista þess að koma henni til mannanna í gegn- um dyrnar á stýrishúsinu og láta þá síðan toga björgunarlykkjuna til sín með tengilínunni. Ef það tækist værum við búnir að ná „sambandi“ við bátinn.“ Það kom nú í hlut Sigurðar Steinars spilmanns að leiðbeina Páli flugstjóra þannig að þyrlan héngi nákvæmlega yfir staðnum sem hann taldi að best væri fyrir sig að láta tengilínuna síga niður að brúardyrunum sem sneru skáhallt upp að þyrlunni vegna hallans á bátnum. Þar sem búnaður þyrlunn- ar er þannig að ekki er hægt að láta hana hanga sjálfa í kyrrstöðu fann Páll sér ákveðinn viðmiðunarpunkt í klettunum fram undan þyrlunni. Nú reyndi á að hann héldi þyrlunni stöðugri meðan á björguninni stæði. Taugar allra í áhöfn TF-SIF voru nú þandar til hins ýtrasta. Talar við vin sinn á himnum Mikill tilfinningastraumur fór um Pál flugstjóra: „Þegar mikið er í húfi tala ég stundum við vin minn uppi á himn- um. Ég gerði það þarna. Kannski er ég ekki líkleg manngerð til þess en þetta geri ég. Ég bað hann um að hjálpa okkur við björgunina, áhöfn þyrlunnar, og ekki síst þeim sem voru í hættu. Ég hélt um stýrið og horfði á ákveðinn blett í klettunum – hreinlega límdi mig á hann – og gat ekki lengur fylgst með því sem var að gerast fyrir neðan. Ég varð að fara nákvæmlega eftir því sem Sig- urður Steinar spilmaður sagði mér. Spilmaður verður að tala stöðugt við flugstjórann við svona aðstæð- ur. Hann á raunverulega að mála mynd af því sem er að gerast fyr- ir neðan. Tali hann stöðugt sé ég allt fyrir mér og veit að allt gengur vel. Ef það verður þögn í smástund verður maður órólegur og heldur að eitthvað sé að.“ Nú var allt komið undir Sig- urði Steinari að það tækist að koma tengilínu til Barðans. Áhöfn þyrlunnar hafði aldrei lent í jafnerf- iðri aðstöðu því spilmaðurinn hafði aðeins örfáa tugi sentímetra upp á að hlaupa til að koma enda línunn- ar niður um brúardyrnar á flakinu. Framhald á næstu opnu „Þegar ég sá allt þetta brak í sjónum og hvernig báturinn lá hugsaði ég ekki nema eitt: „Það er enginn á lífi þarna.“ Ástandið þarna var hræðilegt.“ „„Þyrlan er komin, þyrlan er komin.“ Eftir þetta fæ ég alltaf gæsahúð þegar ég heyri hljóðið í þessari þyrlu sem er auðþekkt.“ Blautur og þreyttur Buxur sjómanna voru svo þungar og blautar að þær urðu hreinlega eftir þegar skipbrotsmennirnir voru hífðir um borð í tf-sIf. Bjargvættur níu manna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.