Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Qupperneq 6
föstudagur 20. júlí 20076 Fréttir DV Karl Vignir Þorsteinsson hefur játað að hafa misnotað þrjá drengi á Kumbaravogi kynferðislega. Karl Vignir á að baki langa sögu um að beita börn kynferðisofbeldi. Brot hans eru fyrnd og því ekki hægt að sak- fella hann fyrir glæpina. Sjálfsvígshugsanir leita ítrekað á eitt fórnarlambanna. Hættulegur barna- níðingur gengur laus Karl Vignir Þorsteinsson játar að hafa beitt þrjá drengi á Kumbara- vogi kynferðisofbeldi. Þetta gerði hann í yfirheyrslu hjá lögreglu. DV hefur áður greint frá því að hann hafi játað að misnota einn dreng á uppeldisheimilinu að Kumbaravogi á árunum 1969 til 1973. Nýjar upp- lýsingar leiða í ljós að hann hefur einnig viðurkennt að hafa misnotað tvo aðra pilta á Kumbaravogi. Elvar Jakobsson, eitt fórnar- lambanna, segist hafa bælt niður þessa erfiðu reynslu en í dag leiti reglulega á hann sjálfsvígshugsanir. DV hefur á undanförnum mánuð- um fjallað ítarlega um Karl Vigni og kynferðisbrot hans gegn börnum. Kynferðisbrotin fyrnd Elvar lagði fram kæru á hendur Karli Vigni 16. mars vegna kynferð- isofbeldis sem hann varð fyrir sem barn á Kumbaravogi. DV greindi frá því að í kjölfarið var Karl Vignir boð- aður í skýrslutöku þar sem hann játaði að hafa margoft misnotað drenginn. Þrátt fyrir að hafa ját- að brot sín verður hann ekki sótt- ur til saka þar sem sök hans er fyrnd. Réttargæslumaður fórn- arlambsins, Óskar Sigurðsson, staðfesti þetta við DV. Nýlega tóku gildi lög um afnám fyrningarfrests á kynferðisbrotum gegn börnum undir 14 ára en þau eru ekki aftur- virk. Elvar á möguleika á að gera einkarétt- arkröfu á hendur Karli Vigni og stefn- ir að því. Að sögn Elvars bældi hann niður minningarn- ar um misnotkun- ina þar til Breiðavíkurmál- ið komst í hámæli. Þá hafi þessir hræðilegu atburðir farið að rifjast upp fyrir hon- um. „Mér finnst mikilvægt að starfsemin að Kumbara- vogi á þessum tíma verði rannsökuð. Þessi maður hef- ur örugglega gert þetta allt sitt líf.“ Fórnarlamb sárt út í kerfið Í kjölfar þess að sárar minningar gerðu vart við sig leitaði Elvar sálfræðiaðstoð- ar. „Ég er nýlega farinn að leita til sérfræðinga og fá aðstoð til að vinna mig í gegnum þetta. Stundum verð ég nánast leið- ur yfir að hafa opnað á þetta því ég ræð ekki við tilfinningar mínar.“ Hann segir reiðina hafa blossað upp í sér í gegnum tíð- ina en hann hafi alltaf lokað á þær tilfinningar. „Að undanförnu hafa leitað á mig sjálfsvígshugsanir. Ég reyni þó að trúa að það sé hægt að hjálpa mér.“ Elvar segist fyllast reiði þegar hann hugsar til þess að Karl Vignir fái að ganga frjáls um göturnar eftir að hafa misnotað fjölda barna kyn- ferðislega. „Það kemur vonska upp í mér. Nú hefur hann við- urkennt að hafa misnotað þrjá stráka en samt er ekkert gert. Hann fær bara að lifa sínu lífi eins og ekkert hafi í skorist.“ Hann segist vona að Karl Vignir sjái að sér. „Ég vona líka að fleiri fái hugrekki til þess að koma fram með sögu sína um gjörðir þessa manns.“ Kristján Frið- bergsson var for- stöðumaður á Kumbaravogi á þeim tíma sem misnotkunin átti sér stað. Karl Vign- ir vandi komur sínar þangað og gaf börnunum sælgæti. Kristján sagði í samtali við DV í maí að það hefði ekki komið sér á óvart þegar hann frétti að Karl Vignir hefði játað að misnota kynferðislega dreng sem vistaður var á heimilinu. Hann neit- ar því þó staðfastlega að hafa nokk- urn tímann grunað Karl Vigni um barnagirnd á þeim tíma sem hann vandi komur sínar þangað. Kristj- án sagði Karl Vigni vera gamlan vin sinn frá Vestmannaeyjum og hafi erindi hans á Kumbaravog verið að heimsækja sig. Að lokum úthýsti Kristján honum frá Kumbaravogi en neitaði að tilgreina ástæðu þess. Hann sagði brottvísunina þó ekki tengjast barnagirnd Karls Vignis. Kristján neitaði að tjá sig við DV um hvort hann hefði verið boðaður til lögreglurannsóknar vegna málsins. Kallaði börnin konfektið sitt Komið hefur fram í DV að Karl Vignir var um tíma starfsmaður á Sólheimum í Grímsnesi þar sem honum var sagt upp störfum. Hon- um var vikið úr Aðventistakirkjunni í Reykjavík. Eftir að DV fjallaði um barnagirnd Karls Vignis var hon- um vikið úr nefndarstörfum hjá líknarfélagi. Fyrir um áratug var hann gerður brottrækur úr Kirkju sjöunda dags aðventista. Björg- vin Snorrason, fyrrverandi prestur í kirkjunni, vék honum úr söfnuð- inum eftir að stúlka greindi frá því að hann hefði beitt hana kynferð- isofbeldi. Í samtali við DV sagð- ist Björgvin telja víst að hann hefði misnotað hana margsinnis. Einnig greindi Björgvin frá því að Karl Vignir hafi gjarnan tal- að um ung börn sem konfekt- ið sitt. Í maílok sagði Björgvin: „Þetta er einfaldlega hættuleg- ur maður sem á aldrei að vera einn í kringum börn og ungmenni.“ Reynir Guðsteinsson var skóla- stjóri í grunnskólanum í Vest- mannaeyjum á sjöunda áratug síð- ustu aldar. Hann staðfesti við DV að á þeim tíma hafi komið upp minnst eitt mál þar sem Karl Vignir misnot- aði stúlkubarn. Málið var um þrjá- tíu ára gamalt þegar það kom upp á yfirborðið og því fyrnt. Á níunda áratugnum starfaði Karl Vignir á Hótel Sögu en var sagt upp störfum vegna gruns um kynferðisbrot. Hann var yfirmaður töskubera og heimildarmaður DV segir hann hafa þuklað á kynfærum drengja sem þar unnu og farið fram á það sama frá þeim. Karl Vignir hefur víða tekið þátt í félagsstarfi og var eitt sinn kosinn í skemmtinefnd Blindrafélagsins. Heimildarmenn DV segja Karl Vigni hafa góðlátlegt yfirbragð og að hann virki ekki á fólk eins og maður sem á að baki fjölda kynferðisbrota gegn börnum. Karl Vignir vildi ekki tjá sig um málið þegar DV náði tali af honum í gær. Erla hlynsdóttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is miðvikudagur 30. maí 2007 2 Fréttir DV InnlendarFréttIrritstjorn@dv.is Eldur í Eiðismýri Eldur kviknaði í pön nu á elda- vél í fjöl ýlishúsi við Eiðismýri rétt fyrir hádegið í g ær. Slökkvilið kom snarlega á vett vang og réði niðurlögum eldsins . Lögreglu- menn á staðnum sö g u að ein- hverjar skemmdir h efðu orðið innandyra, einkum í eldhúsinu. Slökkvilið vaktaði íb úðina fram yfir hádegið til þess að hindra að eldurinn næði sér aftur á strik. Íbúum var n okkuð brugð- ið en allir voru heili r á húfi. Helga Þórðardóttir Gunnar Jónsson Hittast á hverjum degi Hjónin Helga Þó rðardóttir og Gunnar Jónsson hit tast nú á hverjum degi og er það miki l breyting frá því þegar Helga þurfti a ð leggja á sig 400 kílómetra ferðalag í hvert skipti sem hún heimsótti mann sinn. Helga og Gunnar e ru á níræðis- og tíræðisaldri. DV sagði frá því 25. apríl síðastliðinn að ekkert pláss hafi verið fyrir Gunnar á hjúkrunarheim- ilum í nágrenni Self oss, þar sem þau hafa búið alla tíð. B rugðið var því á það ráð að senda Gunnar á hjúkr- unarheimili á Kir kjubæjarklaustri sem er í tvö hundru ð kílómetra fjar- lægð frá Selfossi. H elga þurfti því að leggja á sig rúmlega fjögur hundruð kílómetra aksturslei ð í fimm klukku- stundir í hvert skip ti sem hún hitti eiginmann sinn. H elga keyrir ekki sjálf og því þurfti h ún að reiða sig á fjölskyldumeðlimi t il þess að aka sér á Kirkjubæjarklaust ur. Hjónin hafa nú fe ngið greitt úr sínum málum því Gunnari hefur verið úthlutað plá ssi á hjúkrunar- heimilinu að Kum baravogi sem er í einungis tólf mín útna akstursfjar- lægð frá heimili þei rra hjóna. Helga kvaðst í samta li við DV vera afar glöð yfir því að málið hefði ver- ið leyst á farsælan h átt og það breyti miklu að geta hitt G unnar alla daga. „Nú er hann komin n á Kumbaravog og ég er mjög ánæ gð með það. Nú heimsæki ég hann á hverjum degi og sit hjá honum með prjónana mína,“ segir hún. Helga se gist hafa fengið mikil viðbrögð frá sv eitungum sínum eftir að DV fjallaði u m mál hjónanna. „Það voru margir vinir og kunn- ingjar sem fylgdust með málinu. Ég var mjög ánægð með umfjöllun- ina og hér um bil ra mmaði greinina inn. Það eru margi r sem hafa kom- ið í heimsókn til mí n til þess að lesa greinina. Það er alv eg ljóst að þessi umfjöllun átti hlut a ð því að greitt var úr málunum.“ valgeir@dv.is Ölvaður á bíl Ölvaður ökumaður ók útaf gatnamótum Laugarvatns- og Biskupstungnabrautar aðfara- nótt sunnudag. Bíllinn hafnaði á umferðaskilti en ökumann sak- Ökumaður, rúmlega tvítugur karlmaður, var á bíl móður sinn- ar í leyfisleysi en hann er sviptur ökuréttindum. Þegar Selfosslög- regla handtók manninn fannst hass í fórum hans. Maðurinn við- urkenndi brot sín við yfirheyrslu. Hjónin Helga Þórðardóttir og Gunn- ar Jónsson eru á níræðis- og tíræð- isaldri. Þau hafa verið gift í 65 ár og búið saman á Selfossi alla tíð. Gunn- ar þjáist af heilabilun og hefur ver- ið á sjúkrahúsi undanfarnar fimm vikur. Ekkert pláss er fyrir Gunn- ar á hjúkrunarheimilum á Selfossi og í nágrenni og því sendu læknar á Sjúkrahúsi Suðurlands hann á hjúkr- unarheimilið á Kirkjubæjarklaustri, en það er í um það bil 200 kílómetra fjarlægð frá Selfossi. „Þegar hann veiktist var um nokkra kosti að ræða, ég neitaði Kirkjubæjarklaustri vegna þess að það var allt of langt í burtu fyrir okk- ur. Ég sætti mig hins vegar við að hann fari á Ljósheima, Kumbaravog eða Ás. Einn góðan veðurdag frétti ég það að hann væri á leiðinni austur á Kirkjubæjarklaustur án þess að við fjölskyldan hans vissum af því. Við höfðum gefið samþykki fyrir því að hann færi þangað í stuttan tíma, en við vissum ekki hvenær hann myndi fara. Síðan frétti ég það utan úr bæ að hann hafi verið sendur austur, án þess að ég gæti einu sinni hvatt hann,“ segir Helga. Fimm klukkutíma ferð. Helga segir fjölskylduna vera afar reiða og hneykslaða yfir því að Gunnar skuli hafa verið sendur á Kirkjubæjarklaustur. Helga keyrir ekki sjálf og því er hún upp á fjöl- skyldu sína komin í hvert skipti sem hún vill heimsækja eiginmann sinn á hjúkrunarheimilið. „Krakkarnir leyfa mér ekki að keyra, ég er búin að fara tvisvar að heimsækja hann og þetta er rosalega langur bíltúr. Ég þarf að keyra rúma tvö hundr- uð kílómetra hvora leið til þess að heimsækja eiginmanninn. Mér líður mjög illa yfir þessu því það er ljótt að koma svona fram við gamalmenni. Hann er geymdur einhversstaðar einn, langt í burtu frá öllum og þarf að vera einn allan sólarhringinn.“ Vegna vinnu barnana geta hjón- in ekki hitt hvort annað nema um helgar. „Við þurfum að leggja af stað klukkan níu á morgnana og erum komin til hans um hádegisbil, síð- an þurfum við að keyra alla leið til baka, þannig að allur dagurinn hef- ur farið í þetta,“ segir hún. Myndi heimsækja hann daglega Aðskilnaðurinn tekur mjög á hjónin og segir Helga að Gunn- ar kalli nafn hennar dag og nótt. Í hvert skipti sem hún hefur heim- sótt hann á Kirkjubæjarklaustur hef- ur hann haldið að hún sé komin til að sækja hann. „Læknarnir segja að hann muni ekki nafnið mitt, en hann þekkir mig og alla fjölskyldumeðlimi sem koma til að heimsækja hann.“ Hún segir að ef Gunnar fengi pláss á hjúkrunarheimilinu myndi hún heimsækja hann daglega. „Von- andi kemst hann á Kumbaravog fljótlega. Auðvitað myndi ég þá vera hjá honum alla daga, ég myndi sitja með prjónana mína á hverjum degi hjá honum og þá myndi honum líða vel og finnast hann vera eins og heima hjá sér.Hann er vanur því að sjá mig sitja með prjónana mína. Ef hann kemst inn á Kumbaravog þá fer ég þangað á hverjum degi, en mér gefst enginn kostur á því þegar hann er í þessari fjarlægð.“ Fréttir DV réttIr ritstjorn@dv.is Helga Þórðardóttir Gunnar Jónsson ferðast 400 kílómetra fyrir hverja heimsókn ValGeir Örn raGnarsson blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is „Krakkarnir leyfa mér ekki að keyra, ég er búin að fara tvisvar að heimsækja hann og þetta er rosalega lang- ur bíltúr.“ Allir hagnast á afnámi tekjutengingar bóta „Við viljum að tónlistarnám verði metið til jafns við allt annað fyrir hádegisfundi í dag um fram- kröfur gerðar til nemenda. Því sé nám er dýrt og við viljum ekki að það sé einungis aðgengilegt ríku Fjóla sem býst við líflegum fundi málaflokkanna hafa boðað komu ölvunarakstur Brotist var inn í tvö hús að- - borgarsvæðinu. Smáræði var tekið og skemmdarverk unninn þegar brotist var inn. Þjófanna er leitað en ekki er búið að hafa uppi á þeim. Ekkert var um ölv- - dags. Þó voru sautján manns inu. Yngsti stúturinn var 15 ára Helga Þórðardóttir og Gunnar Jónsson H elga getur aðeins heimsótt eiginmann sin n um helgar og þarf að reiða á aðra til þess að keyra hana á Kirkjubæjarklaustur. Ömurlegar aðstæðu r dv sagði frá því 24. apríl að fjögur hun druð kílómetrar skildu gömlu hjónin a ð. gunnari hefur nú verið úthlutað plá ssi á kumbaravogi. Skert þjónusta í Árbænum „Furðu vekur að þet ta er gert rétt áður en boðað h efur verið að gjaldfrjálst eigi a ð vera fyrir námsmenn í strætó til að auka nýtingu vagnanna o g draga úr umferð. Með þessu er verið að skera Árbæjarhverfi frá helstu skólum landsins og stærstu vinnustöðum. Það v erður að teljast sérstaklega u ndarlegt í ljósi áforma um gjal dfrjálsar al- menningssamgöngu r fyrir náms- menn,“ segir Dagur B. Eggerts- son, oddviti Samfylk ingarinnar í borgarstjórn. Strætó bs. h fur tilk ynnt um breytingar á leiðake rfi strætis- vagna og tíðni ferða . Ein af breyt- ingunum er að hrað leiðin S5 frá Árbænum keyrir Sæ braut, í stað Miklubrautar áður. Dagur telur þessar breytingar þv ert á yfirlýsta stefnu um bættar al mennings- samgöngur í höfuðb orginni. Kántríbærinn Skagaströnd Nafni sveitarfélagsin s Höfða- hrepps verður breyt t í Skaga- strönd. Hugur íbúa var kannaður í nýafstöðnum alþin giskosning- um og var niðurstað an afgerandi, tæplega sjötíu próse nt íbúa vilja nafnið Skagaströnd . Í tilkynningu frá Magnúsi Jónssyn i sveitar- stjóra segir að málið verði afgreitt á næsta hreppsnefn darfundi. Tvöfaldur varaformaður Katrín Jakobsdóttir, varafor- maður Vinstrihreyfi ngarinnar – græns framboðs, s em kosin var á þing í vor í fyrs ta sinn, var kjörin varaformaðu r þingflokks vinstri grænna á þin gflokks- fundi í gær. Þar með er hún hvort tveggja varafo rm ður flokksins og þingflo kksins. Katrín er eini nýliði nn í stjórn þingflokksins . Ögmund- ur Jónasson er sem fyrr þing- flokksformaður og K olbrún Halldórsdóttir ritari þingflokks- ins. Karl Vignir Þorsteins son HÆTTULEGUR MAÐUR Kristján Friðbergss on, fyrrverandi forstöðumaður up peldisheimilisins á Kumbaravogi, seg ir það ekki hafa komið sér á óvart að Karl Vignir Þor- steinsson hafi játað að hafa marg- sinnis misnotað kyn ferðislega dreng, sem var vistaður á heimilinu. Ítar- lega hefur verið fjal lað um starfsemi Kumbaravogs í bla ðinu að undan- förnu. DV greindi frá því í gær að Karl Vignir hafi játað í yfi rheyrslu lögreglu að hafa beitt drengi nn kynferðislegu ofbeldi fyrir luktum dyrum á árun- um 1969 til 1973. S ök mannsins er hins vegar fyrnd og því er ekki hægt að aðhafast frekar í málinu. Neitar að tjá sig um lögreglurannsókn Kristján Friðbergss on neitar því staðfastlega að han n hafi nokkurn tímann grunað Karl Vigni um barna- girnd á tímabilinu sem hann vandi komur sínar á Kum baravog og seg- ir erindagjarðir han s hafa verið að heimsækja sig, end a hafi þeir verið gamlir vinir frá því þ eir bjuggu báðir í Vestmannaeyjum. Kristján úthýsti K arli Vigni á endanum frá upp eldisheimilinu á Kumbaravogi, en K ristján segir það ekki hafa verið veg na barnagirndar mannsins. Kristján neitaði hins veg- ar að tilgreina hvaða ástæður lágu að baki því og varðist a llra fregna. Hann neitaði jafnframt a ð tjá sig nokkuð um lögreglurannsó kn málsins og hvort hann hafi ver ið kallaður til yf- irheyrslu vegna má lsins og sagðist ekki vilja ræða freka r við DV. Eins og fram kom í DV í gær hef- ur réttargæslumaðu r kæranda í mál- inu, Óskar Sigurðs son, óskað eftir lögregluskýrslu og öðrum gögnum sem lögregla hefur aflað við rann- sókn málsins, en ek ki fengið í hend- ur ennþá. Vikið úr kirkjusöfnuð i Karl Vignir var safn aðarmeðlim- ur í Kirkju sjöunda dags aðventista en honum var vikið úr söfnuðinum fyrir um það bil ára tug síðan. Björg- vin Snorrason, fyr rverandi prestur í kirkjunni, vék Kar li Vigni úr söfn- uðinum eftir að st úlka greindi frá því að hann hefði misnotað hana kynferðislega. Máli ð kom aldrei til kasta lögreglu en B jörgvin telur víst að Karl Vignir hafi misnotað hana margsinnis. „Þetta g erðist bæði áður en hún varð kynþro ska og eftir. Karl Vignir talaði um bör n á þessum aldri sem konfektið sitt,“ segir hann og á þar við að Karl Vig nir hafi sérstak- lega sóst eftir því að misnota börn á þessum aldri. Karl Vignir var á tímabili um- sjónarmaður aðven tukvölda í kirkj- unni í Reykjavík en Björgvin tók það hlutverk af honum vegna þess að orðrómur var þega r kominn á kreik um barnagirnd han s. Hins vegar var málið þannig að s afnaðarmeðlim- ir höfðu ekki hald bærar sannanir um kenndir manns ins. „Við höfðum aldrei neinar sanna nir fyrr en stúlk- an steig fram og gr eindi frá málinu. Þetta er einfaldlega hættulegur mað- ur sem á aldrei að v era einn í kring- um börn og ungmen ni.“ Reynir Guðsteinsso n var skóla- stjóri í grunnskólan um í Vestmanna- eyjum á sjöunda o g áttunda áratug síðustu aldar, en Ka rl Vignir er fædd- ur og uppalinn í V estmannaeyjum. Reynir staðfestir a ð minnsta kosti eitt tilvik í Vestmann aeyjum þar sem Karl Vignir misnot aði unga stúlku kynferðislega, mál ið var tæplega þrjátíu ára gamalt þegar það kom upp á yfirborðið og varð því aldrei að lögreglumáli. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náð- ist ekki í Karl Vigni v ið vinnslu frétta- rinnar. ValGeir ÖrN raGN arssoN blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Krotað hefur verið yf ir andlit mannsins Heimildarm enn dv lýsa karli vigni sem hlýjum og góðlegum manni og margir eiga erfitt m eð að trúa því að hann sé barnaníðingu r. Tölvuóð þjóð Það verður víst seint hægt að segja að Íslendingar séu ekki tæknivæddir en á þessu ári eru tölvur á átta af hverjum níu heimilum og 84% heimila gátu tengst internetinu. Þetta kem- ur fram í úttekt Hagstofunnar á upplýsingatækni hér á landi. Nærri níu af hverjum tíu net- tengdum heimilum nota ADSL, SDSL eða annars konar xDSL nettengingu og einungis sjö ent nettengdra heimila nota hefðbundna upphringitengingu eða ISDN. Einnig kemur fram að níu af hverjum tíu Íslendingum á aldrinum 16 til 74 ára nota tölvu og internet og flestir nota tölv- urnar til samskipta og upplýs- ÞRIÐJudaguR 29. MaÍ 2007 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Banki styrkir matjurtarækt Kaupþing tekur þátt í átaki til að auka áhuga leikskóla- barna á grænmeti og græn- metisneyslu. Öllum leikskól- um landsins bjóðast tæki og tól til að útbúa hjá sér mat- jurtagarð. Frá þessu er sagt á vef Víkurfrétta. Vonast er til þess að börnunum finnist spennandi að rækta græn- meti og fyrir vikið verði einnig spennandi fyrir þau að borða grænmeti sem þau hafa sjálf Jón fær helmingi lægri biðlaun Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra og formaður Fram- sóknarflokksins, fær helmingi lægri biðlaun en aðrir ráðherrar Framsóknarflokksins sem létu af JÁTAR EN SLEPPUR Karlmaður hefur játað ítrekaða kyn- ferðislega misnotkun á dreng sem vistaður var á uppeldisheimilinu á Kumbaravogi á árunum 1969 til 1973. DV sagði frá því að fórnarlambið hefði lagt fram kæru hjá lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu þann 16. mars síð- astliðinn, þar sem krafist var ítarlegr- ar rannsóknar á framferði mannsins. Maðurinn, Karl Vignir Þorsteinsson, var í kjölfarið boðaður í skýrslutöku, þar sem hann játaði að hafa misnot- að drenginn margsinnis á tímabilinu. Þrátt fyrir að játning liggi fyrir, getur lögreglan ekki aðhafst frekar í málinu, þar sem sök mannsins er fyrnd. Í al- mennum hegningarlögum er kveðið á um að ef sök er fyrnd, sé ekki hægt refsa fyrir háttsemina. Réttargæslumaður kæranda, Ósk- ar Sigurðsson héraðsdómslögmaður, hefur staðfest þetta við DV. Lögregla verst fregna DV hefur sagt frá að Karl Vignir hafi verið starfsmaður á Sólheimum Í Grímsnesi, þaðan var honum vikið úr starfi. Þá hefur honum verið vik- ið úr Aðventistakirkjunni í Reykjavík og eftir að DV fjallaði um barnagirnd hans var honum vikið úr nefndar- störfum sem hann gegndi hjá líkn- arfélagi. Karl vandi komur sínar á Kumbaravog á fyrrgreindu tímabili þar sem hann bauð drengnum sæl- gæti áður en hann misnotaði hann fyrir luktum dyrum. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisafbrotadeildar lögreglunn- ar á höfuðborgarsvæðinu, varðist allra fregna af framvindu rannsóknar málsins og neitaði að tjá sig við DV að öðru leyti en að málið hafi komið inn á borð til lögreglunnar. Óskar Sigurðsson, réttargæslu- maður kæranda hefur óskað eft- ir lögregluskýrslu og öðrum gögn- um sem lögregla hefur aflað en ekki fengið þau í hendur ennþá. Því liggur ekki fyrir hvort Kristján Frið- bergsson, sem var forstöðumaður á Kumbaravogi á þeim tíma sem brot- in áttu sér stað, hafi verið boðaður til yfirheyrslu, eða aðrir sem tengdust uppeldisheimilinu. Ólíklegt að miskabætur verði greiddar Réttur til skaða- og miskabóta fyrnist tíu árum eftir að brot er fram- ið, hins vegar er ákvæði í fyrningar- lögum þar sem kveðið er á um að mögulegt sé að sækja bótamál þótt krafan sé fyrnd ef brotamaður er sakfelldur fyrir dómi. Nýleg lög um afnám fyrningarfrests á kynferðis- brotum þegar fórnarlambið er undir fjórtán ára aldri eru heldur ekki aft- urvirk. Óskar Sigurðsson telur því ólík- legt að kærandi eigi rétt á miskabót- um, þar sem ekki er hægt að sak- fella Karl Vigni vegna brotanna. Um ábyrgð Kristjáns Friðbergssonar í málinu segir hann: „Forstöðumaður heimilisins var ábyrgur fyrir öryggi barnanna, en það er ómögulegt að segja til um hvort hann vissi af brot- unum eða ekki og því er ábyrgð hans í þessu máli óljós.“ Munum ná réttlætinu fram Páll Rúnar Elísson, formaður Breiðavíkursamtakanna segir sam- tökin ekki una því ef miskabætur verða ekki greiddar. „Við mótmælum því harðlega og við erum alls ekki sáttir við þá stöðu. Samtökin eru rétt að byrja að láta að sér kveða og við munum reyna að ná réttlætinu fram á næstunni.“ Hann tekur ekki undir álit Óskars og telur að málið þurfi að vera kruf- ið betur. Páll Rúnar segist hins vegar ekki vilja tjá sig meira um málið að svo komnu. VaLgeir Örn ragnarsson blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Kumbaravogur Maðurinn vandi komur sínar á Kumbaravog og misnotaði drenginn kynferðislega á árunum 1969 til 1973. Karl Vignir Þorsteinsson Krotað hefur verið yfir andlit hans. Bæjarstjórn vill olíuhreinsun Vilji er fyrir því að skoða frek- ar möguleika á uppbyggingu olíuhreinsistöðvar innan marka Ísafjarðarbæjar. Birna Lárusdóttir, formaður bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, segir að ályktun þess efnis hafi verið samþykkt einróma á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku. „Þetta er fyrst og fremst viljayfir- lýsing. Við erum að lýsa yfir vilja okkar til að skoða möguleikana.“ Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur sent frá sér sams konar viljayfir- „Næsta skref er að meta að- stæður á þessum stöðum með tilliti til náttúruverndar og sam- félagsmála,“ segir Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfirð- „Þegar við vorum nánast komin upp þá kom bara svona smellur eða hvinur og flekinn byrjaði að síga nið- ur,“ segir Halldór Halldórsson, úr- smiður á Akureyri. Hann var einn þeirra sex sem flutu niður með snjó- að því áttatíu metra breiður. Flóð- ið féll í hvilft sem er í fjallinu, ofan og sunnan við brekku sem nefnd er Strýta. Halldór segir veður hafa ver- ið þokkalegt, hiti um frostmark og snjórinn nýr. Heyrðu skyndilega mikinn hvin snjóflóð í Hlíðarfjalli Snjólaust er í akureyrarbæ en fyrr í vikunni snjóaði nokkuð í fjöll í Eyjafirði og skapaðist því tækifæri til að opna skíðasvæðið í Hlíðarfjalli um hvítasunnuhelgina. Frétt DV frá því í gær „Karl Vignir talaði um börn á þessum aldri sem konfektið sitt.“ DV myND ÁsGeir aðventistakirkjan í reykjavík karli vigni v ar vikið úr kirkjunni eftir að st úlka greindi frá því að han n hefði misnotað hana kynfe rðislega. Bátasmiðja hvött áfram Bátasmiðjan Siglufjarðar Seig-ur ehf. hlaut nýverið hvatningar-verðlaun stjórnar Samtaka sveitar- félaga á Norð- urlandi vestra. Verðlauni hlaut smiðjan vegna hugkvæmni og áræðis s starfsmen og stjórnendur sýndu við upp- byggingu hennar. Adolf H. Berndsen, formað-ur samtak nn , veitti verðlaunin við hátíðle a at öfn í húsaky -um Siglufj r Se gs þriðj -daginn. Hvatningarverðl uni hafa verið afhent frá á inu 1999. fimmtudagur 31. maí 2007 4 Fréttir DVInnlendarFréttIrritstjorn@dv.is Hafna s���a� gjö�dum „Við erum algjörlega á móti skólagjöldum,“ segir Dagný Ósk Aradóttir, formaður Stúdenta-ráðs Háskóla Íslands. Stjórn ráðsins gagnrýnir að í stjórnar átt ála nýrrar ríkis-stjórnar sé ekki tekin afstaða til skólagjalda við opinbera háskóla. „Það kom skýrt fram í stefnuskrá Samfylkingarinnar að hún væri á móti þessari gjaldtöku og okkur finnst undarlegt að ekki sé tekin afstaða til jafn mikilvægs máls í stjórnarsáttmála nýrrar ríkis-stjórnar.“ Dagný segir ánægjulegt að stjórnarflokkarnir virðist sam-mála um að menntun sé fram-tíðin. „En það er síðan spurning hvernig þeir ætla að vinna að þessum málum.“ Maður d tt af he ti Maður meiddist á fæti þeg-ar hann datt af hesti sínum í grennd við Sauðárkrók í fyrradag. Maðurinn var að ríða út á Sauðár- króksbraut- inni við bæinn Litlu- Gröf og er sennilegt að hann hafi ökklabrotnað. Maðurinn réð ekki við hestinn sem líklega hefur fælst vegna bílaumferðar. Lúðví� formaður þingf�o��s Samfylkingin kaus nýja stjórn þingflokks síns í gærmorgun. Formaður þingflokksins var kjörinn Lúðvík Bergvinsson. Steinunn Valdís Óskarsdóttir var kjörin varafor- maður og Árni Páll Árnason ritari. Bæði Steinunn Valdís og Árni Páll eru nýir þingmenn en Lúðvík hefur setið á þingi í tólf ár eða frá árinu 1995. Lúðvík tek-ur við starf þingflokksformanns af Össuri Skarphéðinssyni sem r iðn ðarráðherra í nýrri ríkis-stjórn Samfylkingar og Sjálfstæð-isflokks. Kærðir fyrir mikið kókaínsmyglFyrirtaka fór fram í gær í réttar-höldum yfir tveimur mönnum sem eru ákærðir fyrir að hafa smyglað um fjórum kílóum af kók íni til landsins. Mennirnir voru handteknir þegar þeir höfðu leyst bíl úr tolli í Reykja-víkurhöfn í febrúar síðastliðnum. Hinir ákærðu heita Rúnar Þór Ró-bertsson og Jónas Árni Lúðvíksson. Áður hefur Rúnar verið handtekinn í tengslum við hassmál í Þýskalandi. Þ r fann lögreglan 35 kíló af hassi og var Rúnar handtekinn í kjölfarið. Báðir menn neita sök í málinu. Lögfræðingur Jónasar vill meina að Jónas hafi vitað að það væru ekki fíkniefni í bílnum þegar hann sótti þau. Ástæðan sem gefin er upp er frétt sem birtist í DV í desember á síðasta ári, áður en núverandi rit-stjórn tók við. Þá var sagt frá því að tíu kíló af amfetamíni væru í bíln- um og hann biði niðri á höfn. Frétt-in var röng en kom engu að síður upp um rannsóknarhagsmuni lög-reglu. Fíkniefnadeild lögreglunnar skipti út fíkniefnum fyrir gerviefni og beið þess að bifreiðin yrði sótt þegar greinin birtist. Að sögn Sveins Andra Sveinssonar lögmanns vissi skjól-stæðingur hans að verið væri að tala um þessa bifreið og því ætlaði hann alls ekki að sækja fíkniefni þegar hann fjarlægði gerviefni úr bílnum á Suðurlandi. Þar af leiðandi var hann meðvitaður um að lögreglan vissi af málinu og að engin fíkniefni væru í bílnum. Málinu var frestað í gær í fyrirtök-unni en kvaddir voru til matsmenn til þess að taka út taugasálfræðimat á Rúnari Þór. Þessu mótmælti þó verj-andi Jónasar, Sveinn Andri, en báðir mennirnir eru enn í gæsluvarðhaldi síðan þeir voru handteknir í febrúar. Þótti lögmanni matið lengja gæslu-varðhaldið óþarflega. Aðalmeðferð þess verður því ekki fyrr en í byrjun júlí. Gangi vörn málsins út á að gamla DV sagði frá fréttinni of snemma þá yrði það í fyrsta sinn sem slík vörn er notuð. valur@dv.is Rúnar Þór Róbertsson Hefur verið ákærður fyrir stórfelldan innflutning á kókaíni til landsins. Karl Vignir Þorsteinsson Karli Vig i Þorsteinssyni, sem hef-ur játað fyrir lögreglu að hafa marg-sinnis misnotað dreng kynferðislega sem vistaður var á uppeldisheimil-inu á Ku baravogi, var gert að hætta í félagsstarfi í Áskirkju eftir að mál hans ko til kasta lögreglu í vor. Eins og fram hefur komið í DV í vik nni eru brot Karls Vignis sem áttu sér stað á árunum 1969 til 1973 fyrnd og því sleppur hann við refs-ingu. Karl Vignir var aðstoðarum-sjónarmaður opinna húsa í Áskirkju í tæplega þrjú ár. Séra Sigurður Jóns-son sóknarprestur í kirkjunni stað-festi þetta við DV. Hann segir Karl Vigni hafa borið af sér góðan þokka og verið afar vel liðinn meðal safnað-armeðlima. „Það kom okkur algjör-lega í opna skjöldu þegar við heyrð-um af máli hans. Karl Vignir virkaði á okkur sem hlýlegur og góður maður. Þegar málið komst upp ræddi ég við hann og gerði honum að hætta,“ seg-ir Sigurður. Góðlátlegt yfirbragð Karl Vignir hafði áður komið að félagsstarfi í kirkju en DV greindi frá því í gær að honum hafi verið vikið úr Aðventistakirkjunni í Reykjavík eftir að ung stúlka greindi frá því að hann hefði ítrekað misnotað hana kyn-ferðislega. Áður en stúlkan greindi frá sögu sinni var orðrómur um barnagirnd mannsins þegar kom-inn á kreik og hafði Björgvin Snorra-son, fyrrverandi prestur í kirkjunni, tekið umsjón aðventukvölda af Karli Vigni. Heimildarmönnum DV ber öll-um saman um að Karl Vignir komi vel fyrir og hafi góðlátlegt yfirbragð, hann virki ekki á fólk sem maður sem á langan kynferðisbrotaferil að baki. Karl Vignir hefur víða komið sér í félagsstarf, fyrir nokkru síðan bauð hann sig fram til nefndarsetu í skemmtinefnd Blindrafélagsins og hlaut kosningu, á síðasta aðalfundi félagsins hlaut hann hins vegar ekki endurkosningu. Þá er hann annar tveggja stofnenda líknar- og vinafé-lagsins Bergmáls. Vikið úr starfi á Hótel SöguKarl Vignir starfaði á Hótel Sögu á níunda áratugnum. Þaðan var honum vikið úr starfi vegna gruns um kynferðisbrot hans. Karl Vignir var yfirmaður töskubera á hótelinu, en flestir þeirra voru drengir á ungl-ingsaldri. Heimildarmaður DV, sem starfaði á hótelinu um miðjan ní-unda áratuginn, segir Karl Vigni hafa misnotað stöðu sína sem yfirmaður drengjanna og þuklað á kynfærum þeirra og farið fram á það sama frá þeim. Drengjunum umbunaði hann með því að raða niður vöktum á hót-elinu að þeirra ósk. Enginn þeirra kærði brotin til lögreglu. Konráð Guðmundsson sem var hótelstjóri á Hótel Sögu á þeim tíma sem Karl Vignir starfaði þar, staðfest-ir að Karl Vignir hafi verið rekinn úr starfi. Ástæður uppsagnarinnar voru að hans sögn margþættar, en meðal þeirra voru kynferðisbrot hans gegn drengjunum á hótelinu. „Ég komst ekki að kynferðisbrotum hans fyrr en seinna og þegar það kom í ljós lét ég hann fara,“ sagði Konráð við DV. ValGeiR ÖRn RaGnaRSSon blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is MISNOTAÐI UNDIRMENN SÍNA „Það kom okkur algjör- lega í opna skjöldu þeg- ar við heyrðum af máli hans. Karl Vignir virk- aði á okkur sem hlýleg- ur og góður maður.“ miðvikudagur 30. maí 2007 Fréttir DV InnlendarFréttIrritstjorn@dv.is Eldur í EiðismýriEldur kviknaði í pönnu á elda-vél í fjölbýlishúsi við Eiðismýrirétt fyrir hádegið í gær. Slökkvilið kom snarlega á vettvang og réði niðurlögum eldsins. Lögreglu-menn á staðnum sögðu að ein-hverjar skemmdir hefðu orðiðinnandyra, einkum í eldhúsinu.Slökkvilið vaktaði íbúðina fram yfir hádegið til þess að hindra að eldurinn næði sér aftur á strik. Íbúum var nokkuð brugð-ið en allir voru heilir á húfi. Helga Þórðardóttir Gunnar JónssonHittast á hverjum degi Skert þjónusta í Árbænum „Furðu vekur að þetta er gert rétt áður en boðað hefur verið að gjaldfrjálst eigi að vera fyrir námsmenn í strætó til að aukanýtingu vagnanna og draga úr umferð. Með þessu er verið að skera Árbæjarhverfi frá helstuskólum landsins og stærstu vinnustöðum. Það verður að teljast sérstaklega undarlegt í aldfrjálsar al- gur fyrir náms-menn,“ segir Dagur B. Eggerts-son, oddviti Samfylkingarinnar í Strætó bs. hefur tilkynnt um breytingar á leiðakerfi strætis-vagna og tíðni ferða. Ein af breyt-ingunum er að hraðleiðin S5 frá Árbænum keyrir Sæbraut, í stað Miklubrautar áður. Dagur telur þessar breytingar þvert á yfirlýsta stefnu um bættar almennings-samgöngur í höfuðborginni. varaformaður Katrín Jakobsdóttir, varafor-maður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sem kosin var á þing í vor í fyrsta sinn, var kjörin varaformaður þingflokks vinstri grænna á þingflokks-fundi í gær. Þar með er hún hvort tveggja varaformaður flokksins og þingflokksins. Katrín er eini nýliðinn í stjórn þingflokksins. Ögmund-ur Jónasson er sem fyrr þing-flokksformaður og Kolbrún Halldórsdóttir ritari þingflokks- Karl Vignir Þorsteinsson HÆTTULEGUR MAÐUR Kristján Friðbergsson, fyrrverandi forstöðumaður uppeldisheimilisins á Kumbaravogi, segir það ekki hafa komið sér á óvart að Karl Vignir Þor-steinsson hafi játað að hafa marg-sinnis misnotað kynferðislega dreng, sem var vistaður á heimilinu. Ítar-lega hefur verið fjallað um starfsemi Kumbaravogs í blaðinu að undan-förnu. DV greindi frá því í gær að KarlVignir hafi játað í yfirheyrslu lögregluað hafa beitt drenginn kynferðislegu ofbeldi fyrir luktum dyrum á árun-um 1969 til 1973. Sök mannsins er hins vegar fyrnd og því er ekki hægt að aðhafast frekar í málinu. Neitar að tjá sig um lögreglurannsóknKristján Friðbergsson neitar því staðfastlega að hann hafi nokkurntímann grunað Karl Vigni um barna-girnd á tímabilinu sem hann vandi komur sínar á Kumbaravog og seg-ir erindagjarðir hans hafa verið að heimsækja sig, enda hafi þeir verið gamlir vinir frá því þeir bjuggu báðirí Vestmannaeyjum.Kristján úthýsti Karli Vigni áendanum frá uppeldisheimilinu á Kumbaravogi, en Kristján segir það ekki hafa verið vegna barnagirndar mannsins. Kristján neitaði hins veg-ar að tilgreina hvaða ástæður lágu að baki því og varðist allra fregna. Hann neitaði jafnframt að tjá sig nokkuð um lögreglurannsókn málsins og hvort hann hafi verið kallaður til yf-irheyrslu vegna málsins og sagðistekki vilja ræða frekar við DV.Eins og fram kom í DV í gær hef-ur réttargæslumaður kæranda í mál-inu, Óskar Sigurðsson, óskað eftir lögregluskýrslu og öðrum gögnumsem lögregla hefur aflað við rann-sókn málsins, en ekki fengið í hend-ur ennþá. Vikið úr kirkjusöfnuðiKarl Vignir var safnaðarmeðlim-ur í Kirkju sjöunda dags aðventista en honum var vikið úr söfnuðinum fyrir um það bil áratug síðan. Björg-vin Snorrason, fyrrverandi prestur í kirkjunni, vék Karli Vigni úr söfn-uðinum eftir að stúlka greindi frá því að hann hefði misnotað hana kynferðislega. Málið kom aldrei til kasta lögreglu en Björgvin telur víst að Karl Vignir hafi misnotað hana margsinnis. „Þetta gerðist bæði áður en hún varð kynþroska og eftir. Karl Vignir talaði um börn á þessum aldri sem konfektið sitt,“ segir hann og á þar við að Karl Vignir hafi sérstak-lega sóst eftir því að misnota börn á þessum aldri. Karl Vignir var á tímabili um-sjónarmaður aðventukvölda í kirkj-unni í Reykjavík en Björgvin tók þaðhlutverk af honum vegna þess aðorðrómur var þegar kominn á kreik um barnagirnd hans. Hins vegar varmálið þannig að safnaðarmeðlim-ir höfðu ekki haldbærar sannanir um kenndir mannsins. „Við höfðumaldrei neinar sannanir fyrr en stúlk-an steig fram og greindi frá málinu. Þetta er einfaldlega hættulegur mað-ur sem á aldrei að vera einn í kring-um börn og ungmenni.“Reynir Guðsteinsson var skóla-stjóri í grunnskólanum í Vestmanna- eyjum á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar, en Karl Vignir er fædd-ur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Reynir staðfestir að minnsta kosti eitt tilvik í Vestmannaeyjum þar semKarl Vignir misnotaði unga stúlku kynferðislega, málið var tæplega þrjátíu ára gamalt þegar það kom upp á yfirborðið og varð því aldrei aðlögreglumáli. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náð-ist ekki í Karl Vigni við vinnslu frétta-rinnar. ValGeir ÖrN raGNarssoN blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Krotað hefur verið yfir andlit mannsins Heimildarmenn dv lýsa karli vigni sem hlýjum og góðlegum manni og margir eiga erfitt með að trúa því að hann sé barnaníðingur. Tölvuóð þjóðÞað verður víst seint hægtað segja að Íslendingar séu ekkitæknivæddir en á þessu ári erutölvur á átta af hverjum níuheimilum og 84% heimila gátutengst internetinu. Þetta kem-ur fram í úttekt Hagstofunnar áupplýsingatækni hér á landi.Nærri níu af hverjum tíu net-tengdum heimilum nota ADSL,SDSL eða annars konar xDSLnettengingu og einungis sjö ent nettengdra heimila notahefðbundna upphringitengingueða ISDN. Einnig kemur fram að níu af hverjum tíu Íslendingum á aldrinum 16 til 74 ára nota tölvuog internet og flestir nota tölv-urnar til samskipta og upplýs- ÞRIÐJudaguR 29. MaÍ 2007 Fréttir DV InnlendarFréttIrritstjorn@dv.is Banki styrkir matjurtaræktpþing tekur þátt í átakika áhuga leikskóla- á grænmeti og græn-yslu. Öllum leikskól-sins bjóðast tæki ogútbúa hjá sér mat-tagarð. Frá þessu er sagtkurfrétta. Vonast ers að börnunum finnistdi að rækta græn- fyrir vikið verði einnigdi fyrir þau að borðai sem þau hafa sjálf Jón fær helmingi lægri biðlaunrðsson, fyrrverandirmaður Fram-kksins, fær helmingi en aðrir ráðherrar lokksins sem létu af JÁTAR EN SLEPPURKarlmaður hefur játað ítrekaða kyn-ferðislega misnotkun á dreng semvistaður var á uppeldisheimilinu áKumbaravogi á árunum 1969 til 1973.DV sagði frá því að fórnarlambið hefðilagt fram kæru hjá lögreglunni á höf-uðborgarsvæðinu þann 16. mars síð-astliðinn, þar sem krafist var ítarlegr-ar rannsóknar á framferði mannsins. Maðurinn, Karl Vignir Þorsteinsson,var í kjölfarið boðaður í skýrslutöku,þar sem hann játaði að hafa misnot-að drenginn margsinnis á tímabilinu.Þrátt fyrir að játning liggi fyrir, geturlögreglan ekki aðhafst frekar í málinu,þar sem sök mannsins er fyrnd. Í al-mennum hegningarlögum er kveðiðá um að ef sök er fyrnd, sé ekki hægt refsa fyrir háttsemina.Réttargæslumaður kæranda, Ósk-ar Sigurðsson héraðsdómslögmaður, hefur staðfest þetta við DV.Lögregla verst fregnaDV hefur sagt frá að Karl Vignirhafi verið starfsmaður á SólheimumÍ Grímsnesi, þaðan var honum vikið úr starfi. Þá hefur honum verið vik-ið úr Aðventistakirkjunni í Reykjavíkog eftir að DV fjallaði um barnagirndhans var honum vikið úr nefndar-störfum sem hann gegndi hjá líkn-arfélagi. Karl vandi komur sínar á Kumbaravog á fyrrgreindu tímabili þar sem hann bauð drengnum sæl-gæti áður en hann misnotaði hannfyrir luktum dyrum.Björgvin Björgvinsson, yfirmaðurkynferðisafbrotadeildar lögreglunn-ar á höfuðborgarsvæðinu, varðistallra fregna af framvindu rannsóknar málsins og neitaði að tjá sig við DVað öðru leyti en að málið hafi komiðinn á borð til lögreglunnar.Óskar Sigurðsson, réttargæslu-maður kæranda hefur óskað eft-ir lögregluskýrslu og öðrum gögn-um sem lögregla hefur aflað enekki fengið þau í hendur ennþá. Þvíliggur ekki fyrir hvort Kristján Frið-bergsson, sem var forstöðumaður áKumbaravogi á þeim tíma sem brot-in áttu sér stað, hafi verið boðaður tilyfirheyrslu, eða aðrir sem tengdust uppeldisheimilinu. Ólíklegt að miskabætur verðigreiddarRéttur til skaða- og miskabóta fyrnist tíu árum eftir að brot er fram-ið, hins vegar er ákvæði í fyrningar-lögum þar sem kveðið er á um aðmögulegt sé að sækja bótamál þóttkrafan sé fyrnd ef brotamaður er sakfelldur fyrir dómi. Nýleg lög umafnám fyrningarfrests á kynferðis-brotum þegar fórnarlambið er undirfjórtán ára aldri eru heldur ekki aft-urvirk.Óskar Sigurðsson telur því ólík-legt að kærandi eigi rétt á miskabót-um, þar sem ekki er hægt að sak-fella Karl Vigni vegna brotanna. Umábyrgð Kristjáns Friðbergssonar ímálinu segir hann: „Forstöðumaðurheimilisins var ábyrgur fyrir öryggibarnanna, en það er ómögulegt aðsegja til um hvort hann vissi af brot-unum eða ekki og því er ábyrgð hansí þessu máli óljós.“ Munum ná réttlætinu framPáll Rúnar Elísson, formaðurBreiðavíkursamtakanna segir sam-tökin ekki una því ef miskabæturverða ekki greiddar. „Við mótmælumþví harðlega og við erum alls ekki sáttir við þá stöðu. Samtökin eru rétt að byrja að láta að sér kveða og viðmunum reyna að ná réttlætinu framá næstunni.“Hann tekur ekki undir álit Óskarsog telur að málið þurfi að vera kruf-ið betur. Páll Rúnar segist hins vegar ekki vilja tjá sig meira um málið aðsvo komnu. VaLgeir Örn ragnarssonblaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Kumbaravogur Maðurinn vandi komur sínar á Kumbaravog og misnotaði drenginnkynferðislega á árunum 1969 til 1973. Karl Vignir Þorsteinsson Krotað hefur verið yfir andlit hans. Bæjarstjórn vill olíuhreinsunVilji er fyrir því að skoða frek-möguleika á uppbyggingulíuhreinsistöðvar innan markaarðarbæjar.Birna Lárusdóttir, formaðurjarstjórnar Ísafjarðarbæjar,gir að ályktun þess efnis hafisamþykkt einróma á fundirstjórnar í síðustu viku.tta er fyrst og fremst viljayfir-. Við erum að lýsa yfir vilja til að skoða möguleikana.“rstjórn Vesturbyggðar hefurfrá sér sams konar viljayfir-æsta skref er að meta að-stæður á þessum stöðum meðil náttúruverndar og sam-mála,“ segir Aðalsteinnson, framkvæmdastjóriðungssambands Vestfirð- „Þegar við vorum nánast kominupp þá kom bara svona smellur eðahvinur og flekinn byrjaði að síga nið-ur,“ segir Halldór Halldórsson, úr-smiður á Akureyri. Hann var einnþeirra sex sem flutu niður með snjó- að því áttatíu metra breiður. Flóð-ið féll í hvilft sem er í fjallinu, ofan og sunnan við brekku sem nefnd erStrýta. Halldór segir veður hafa ver-ið þokkalegt, hiti um frostmark og snjórinn nýr. Heyrðu skyndilega mikinn hvin snjóflóð í Hlíðarfjalli Snjólaust er í akureyrarbæ en fyrr í vikunni snjóaði nokkuð í fjöll í Eyjafirði og skapaðist því tækifæri til að opna skíðasvæðið í Hlíðarfjalli um hvítasunnuhelgina.Frétt DV frá því í gær „Karl Vignir talaði um börn á þessum aldri sem konfektið sitt.“ DV myND ÁsGeir aðventistakirkjan í reykjavík karli vigni var vikið úr kirkjunni eftir að stúlka greindi frá því að hann hefði misnotað hana kynferðislega. Frétt DV frá því í gær MiðViKudaginn 30. Maí FiMMtudaginn 31. Maí „Nú hefur hann viðurkennt að hafa misnotað þrjá stráka en samt er ekkert gert. Hann fær bara að lifa sínu lífi eins og ekkert hafi í skorist.“ Karli Vigni v r viki úr starfi á Hótel sögu v gna gruns um kynferðisbrot gegn ndirmönnum sínum. Heimildarmaður dV sem st rf ði á ótelinu sagði hann h f þuklað kynfæri drengjanna og farið fr m á það sa a fr þeim. fyrrverandi prestur í aðve tistakirkjunni vék K rli Vi ni úr söfn ðinum eftir að stúlka agði han haf isnotað sig. Presturinn sag i K rl Vig i kalla bör in ko fektið sitt. Karl Vignir Þorsteins- son Vandi komur sínar á uppeldisheimilið að Kumbaravogi og hefur játað að hafa misnotað þar þrjá drengi á árunum 1969 til 1973.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.