Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Side 31
Vonbrigði á Spáni Eftir eitt ár í Napóli fór Jón Arnór til Val- encia á Spáni tímabilið 2006–2007. Sá tími var Jóni erfiður og einkenndist hann af meiðsl- um og vonbrigðum. „Ég meiddist í landsleik gegn Lúxemborg, reif liðband í ökkla. Þegar ég kom til baka til liðsins gekk mér illa að ná mér í gang. En síðan komst ég loksins að aftur og fór að spila. Strax í þriðja leik lenti ég í því að rífa vöðva í lærinu og var meiddur í sex vik- ur. Liðinu gekk illa á þessum tíma og þá urðu þjálfaraskipti. Eftir að nýr þjálfari tók við fékk ég aldrei tækifæri og var lengi að koma mér í gang. Sjálfstraustið varð minna og það skipt- ir öllu. Spánartíminn var því miður leiðinleg- ur en mig langar þangað aftur þar sem þetta er hörkudeild sem ég á eftir að sanna mig í,“ segir Jón. „Ég fékk mig lausan frá Valencia og gekk til liðs við Rómarliðið undir lok tímabilsins. Lið- ið er mjög gott og spilar í Meistaradeild Evr- ópu. Þar spiluðum við tvo leiki á viku og sam- keppnin er mikil. Þegar ég byrjaði að spila fékk ég sjálfstraustið aftur og leið vel í aðstæðum sem ég þekkti á Ítalíu. Við erum með tvo hörku Ameríkana og einn Serba sem er einn virt- asti körfuboltamaður Evrópu fyrr og síðar. Við hefðum í raun átt að gera betur en við gerðum í fyrra. Við töpuðum úrslitaleiknum í bikarnum og töpuðum í undanúrslitum í ítölsku deild- inni. Ítalska deildin er mjög sterk, svona þriðja til fjórða sterkasta deild Evrópu. Hér eru öll lið- in sterk og maður er alltaf að keppa hörkuleiki. Er orðinn skynsamari leikmaður Fyrst þegar ég lék erlendis hljóp ég ákveðinn upp að körfunni óhræddur og hraður. En núna eftir að ég fór að keppa í sterkari deildum hef ég þurf að bæta skotið mitt því það eru þvílík- ir durgar undir körfunni sem erfitt er að kom- ast framhjá. Það gengur ekki lengur að rjúka að körfunni. Maður lætur skynsemina meira ráða för og ég hef æft mig í skotum af millilengd og fyrir utan þriggja stiga línuna. Varnarlega hef ég bætt mig mikið og það hefur hjálpað mér mikið á mínum ferli að vera góður í sókn og vörn,“ segir Jón. Lífið í körfuboltanum „Yfirleitt hefur verið góður andi í þeim lið- um sem ég hef verið í. Við förum út að borða saman og fáum okkur bjór eftir sigurleiki. Við förum í keilu og bíó þannig að það er margt gert. Yfirleitt er tekið vel á móti manni hvar sem maður kemur. Ég er yfirleitt nýi gæinn og alltaf svolítið smeykur við það þegar ég byrja á nýjum stað en það reddast alltaf. Þetta er alltaf eins, maður kemur inn í nýjan klefa og enginn þekkir mann. En svo kynnist maður strákunum fljótt og það er mikilvægt. Þegar ég kom aftur til Ítalíu kannaðist ég við andlitin á strákunum og það var betra fyrir mig,“ segir Jón. „Maður hefur fullt af tíma á milli æfinga sem maður notar í að lesa, hanga á netinu og tala við fólk heima og horfa á DVD. Þetta er ósköp venjulegt líf fyrir utan frítímann,“ segir Jón. „Ég elska ítalska menningu og ég borða úti á hverju kvöldi. Ég reyni alltaf að þræða hliðar- göturnar til þess að finna ekta rómverskt eld- hús, með ekta ítölskum mat og reyni að forðast ferðamannastaðina. Mér finnst algjör snilld að ganga um miðbæinn í Róm og setjast á kaffi- hús og fylgjast með fólkinu. Ég er ekkert flók- inn gaur og hef áhuga á venjulegum hlutum eins og hver annar, það þarf ekki mikið til að skemmta mér,“ segir Jón Arnór. Var góður í fótbolta líka Jón var liðtækur á knattspyrnuvellinum á sínum yngri árum og spilaði í yngri flokkunum með Fram í Safamýri. Aðspurður hvort aldrei hafi komið til greina að velja fótboltann segir Jón: „Ég held ekki, stundum spyr maður sig af hverju maður valdi ekki fótboltann, því ég elska að vera úti og spila fótbolta. En ég er mjög sátt- ur við mitt val í dag,“ segir hinn geðþekki Jón Arnór Stefánsson að lokum. vidar@dv.is DV Sport FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 31 Á FLAKKI FRÁ 15 ÁRA ALDRI JÓN ARNÓR STEFÁNSSON Hefur spilað víða við góðan orðstír.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.