Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Page 35
Eftirminnilegasta atvikið á Opna breska
Mörg spennandi mót hafa farið fram á Opna breska í gegnum tíðina. Fá ef nokkur eru
þó eftirminnilegri en þegar Frakkinn Jean Van der Velde henti vísum sigri á glæ á síðustu
holunni árið 1999. „Hann spilaði sennilega sitt besta golf á ferlinum í sjötíu og eina holu,
en sennilega verstu holu á ferlinum á þeirri síðustu,“ segir Jim Furyk um atvikið.
Ævintýraleg spilamennska Van der Velde byrjaði á 18. teig á Carnoustie-vellinum.
Honum nægði að fara á tveimur höggum yfir pari vallarins til þess að vinna mótið. Þá
upphófst röð furðulegra ákvarðana og mistaka þar sem Velde endaði á því að spila hol-
una á þremur höggum yfir pari. Í lokin þurfti hann meira að segja að setja þriggja metra
pútt í holu til þess að komast í umspil við Paul Lawrie og Justin Leonard þar sem Lawrie
sigraði að lokum.
Mikið hefur verið rætt um þetta atvik síðan það gerðist. Sumir vilja meina að þetta
sé meðal mestu mistaka íþróttasögunnar. Aðrir kjósa hins vegar að benda á það hve vel
Van der Velde tókst að takast á við þennan farsa og hefur hann alla tíð tekið því létt þegar
fréttamenn eða aðrir minnast á atvikið.
DV Sport FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 35
Um helgina fer fram Opna breska mótið í golfi og er það eitt af fjórum risamótum sem fram fara hvert ár.
Mótið er sögufrægasta golfmót heims og þar vilja allir kylfingar sigra. Tiger Woods stefnir á að komast á
spjöld sögunnar með því að verða fyrsti golfarinn í 50 ár til þess að vinna mótið þrisvar í röð. KEMST TIGER Í
SÖGUBÆKURNAR?
Opna breska mótið er elsta og sögufrægasta golfmót heims.
Bretland er vagga golfsins og allir kylfingar vilja vinna mót-
ið vegna þeirrar virðingar sem það nýtur. Tiger Woods getur
komist á spjöld sögunnar með því að verða fyrsti kylfingurinn
í fimmtíu ár til þess að vinna mótið þrisvar í röð.
Sagan
Fyrsta Opna breska mótið fór fram
á Prestwick-vellinum árið 1860 og var
hið fyrsta þar sem einungis atvinnu-
golfurum var leyfilegt að taka þátt.
Þá voru spilaðar tólf holur á ein-
um degi og sigurvegarinn Willie
Park eldri fór holurnar tólf á 174
höggum.
Upphaflegu sigurverðlaun-
in voru sértilgert belti, rautt
og úr leðri með silfursylgju en
engir peningar voru í boði. Í
dag fær sigurvegarinn í sinn
hlut 720 þúsund pund, eða
rúmlega 88 milljónir ís-
lenskra króna. Eftir að
beltið vannst til eignar
eru verðlaunin nú hinn
fornfrægi bikar Claret
jug.
Fyrstu sigurvegarar
mótsins voru allir skosk-
ir atvinnumenn. Einungis sex
sinnum hafa áhugamenn sigrað á
mótinu og gerðist það á árabilinu
1890–1930.
Eftir seinni heimsstyrjöldina
jókst ásókn útlendinga í að keppa
á mótinu. Fyrir vikið komu sigur-
vegararnir víða að og kylfingar
á borð við Suður-Afríkumann-
inn Bobby Locke og Ástral-
ann Peter Thompson unnu
Opna breska mótið níu af
ellefu skiptum á árun-
um 1948–1958. Að vísu
ber að taka það fram
að Opna breska
mótið á þessum
tíma fór fram á
sama tíma og
Opna PGA-
mótið. Af
þeim sök-
um vant-
aði oft
besta
kylfing
heims
á
þeim tíma, Paul Hogan, sem keppti á PGA-mótinu sem haldið
var í Bandaríkjunum. Hann vann Opna breska mótið einungis
einu sinni, árið 1953 á Carnoustie-vellinum, sem er sami völl-
ur og mótið fer fram á í ár.
Bandaríkjamenn sýna yfirburði
Innrás Bandaríkjamanna á mótið hófst ekki af alvöru fyrr
en eftir árið 1960. „Turnarnir þrír“ Arnold Palmer, Gary Play-
er og Jack Nicklaus háðu á þeim árum margar spennandi
keppnir um sigur á risamótum. Ákveðin kaflaskil urðu á Opna
breska árið 1961 þegar Arnold Palmer varð fyrstur til þess að
vinna mótið fyrir augum sjónvarpsáhorfenda í Bandaríkjun-
um sem hylltu hann sem þjóðhetju. Það hafði þau áhrif að
fleiri Bandaríkjamenn hófu þátttöku í Opna breska mótinu og
sigrar þeirra urðu tíðari fyrir vikið
Yfirburðir Bandaríkjamanna á Opna breska stóðu nær
óslitið allt til ársins 1983 þegar Evrópubúar, þeirra á meðal
Bretar sjálfir, stöðvuðu sigurgöngu þeirra. Til ársins 1995 kom
aðeins einn sigurvegari frá Bandaríkjunum og menn á borð
við Bretann Nick Faldo, Spánverjann Seve Ballesteros og Skot-
ann Sandy Lyle lyftu bikarnum á þessu tímabili. Eftir það var
aftur komið að Bandaríkjamönnum sem hafa að mestu einok-
að bikarinn undanfarin ár. Þeirra á meðal er besti golfari heims
um þessar mundir en hann getur skráð nafn sitt á spjöld sög-
unnar með sigri á Opna breska mótinu um helgina.
Tiger Woods getur komist í sögubækurnar
Með sigri á Carnoustie-vellinum í Skotlandi verður Tiger
Woods sá fyrsti í 50 ár til þess að vinna Breska opna þrisvar
í röð og sá fimmti í sögunni. Síðast var það Peter Thomsons
sem náði þessum árangri þegar hann sigraði þrisvar í röð á ár-
unum 1954–1956.
Tiger hefur tvívegis áður verið í þeirri stöðu að geta unn-
ið þriðja risamótið í röð. Árið 2001 á PGA-mótinu og á US
Masters-mótinu árið 2003. Því hefur Tiger skiljanlega mik-
inn áhuga á því að skrá nafn sitt á spjöld sögunnar með því
að vinna Opna breska þrisvar í röð. „Það yrði mjög gaman að
vinna Opna breska. Það er uppáhaldsmótið mitt. Ég gleymi
aldrei fyrsta mótinu mínu sem fram fór á St. Andrews, sagan,
hefðin og andrúmsloftið var engu líkt,“ segir Tiger.
Aðstæður munu hafa mikil áhrif á Carnoustie
Vellirnir sem notaðir eru á Opna breska mótinu eru gjarn-
an erfiðir. Þeir „refsa“ golfurunum fljótt ef þeir gera mistök og
veðrið er óútreiknanlegt. Fyrir vikið er undirbúningur golfara
með öðrum hætti fyrir þetta mót en önnur.
Carnoustie-völlurinn er staðsettur á austurströnd Skot-
lands og rigning og rok eru fylgifiskur sumarsins á þessum
slóðum. „Allir segja að á Opna breska verði maður að mæta
með langermapeysur og regnstakk. Á síðasa ári var hins vegar
meira en þrjátíu stiga hiti allan tímann. Því er í rauninni eina
leiðin til að búa sig undir það að búast við öllu,“ segir Banda-
ríkjamaðurinn Phil Mickelson.
Carnoustie-völlurinn þykir erfiður viðureignar fyrir golfar-
ana. Ólíkt því sem gerist víða í Bandaríkjunum skoppar bolt-
inn ekki mikið eftir lendingu heldur stoppar hann fljótt. Karg-
inn í kringum flatir og úti á vellinum er mjög þykkur og því
afar mikilvægt að hitta brautirnar í upphafshöggum. Það getur
hins vegar reynst erfitt ef vindur er mikill eins og gjarnan er á
þessum slóðum.
Margir eru tilkallaðir
Marga dreymir um góðan árangur á Carnoustie-vellinum
um helgina. Tiger Woods er augljóslega sigurstranglegur þar
sem hann er í efsta sæti heimslistans. Margir geta þó velgt Tig-
er undir uggum. Phil Mickelson hefur aldrei náð sér almenni-
lega á strik á Opna breska en hann hefur undirbúið sig vel og
spilaði á Opna skoska mótinu fyrir viku þar sem hann lenti í
öðru sæti. Jim Furyk er alltaf við toppinn enda frábær golfari
og ekki má gleyma Suður-Afríkumanninum Ernie Els.
Margir eru svartsýnir fyrir hönd Evrópubúa. Nick Faldo
gagnrýndi golfara frá Evrópu í vikunni fyrir að vera of miklir
vinir í stað þess að láta samkeppnina og einbeitingu að sigri
ráða för á golfvellinum. Hugsanlega er það ástæðan fyrir því
að átta ár eru síðan Evrópubúi sigraði síðast á mótinu, en það
gerði Skotinn Paul Lawrie.
Hvað sem því líður er ljóst að Colin Montgomery langar
óskaplega mikið í sigur á þessu móti, en hann hefur aldrei náð
að landa sigri á risamóti þrátt fyrir að hafa lengi verið meðal
bestu golfara heims. Paul Lawrie óskar þess heitt að endurtaka
leikinn á vellinum sem hann vann mótið á fyrir átta árum, en
honum líkt og mörgum öðrum Evrópubúum, gremst að hafa
ekki náð betri árangri á Opna breska síðastliðinn áratug. „Mér
líkar ekki að vera síðasti Evrópubúinn til þess að sigra. Mig
langar að sigra en ef það verður ekki ég þá vil ég í það minnsta
að það verði einhver annar Evrópubúi,“ segir Lawrie.
Jean Van der Velde Frakkinn gleymist seint eftir klúðrið fyrir átta árum.
Jack Nicklaus Upphafið að yfirburðum Bandaríkjamanna á Opna
breska.