Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Side 54
Leikurinn Wario: Master of Disguise
byggist upp á því að Wario, erkióvinur
Marios, gerir hvað hann getur til þess að
verða ríkur. Honum dettur það snjall-
ræði í hug að finna upp á tæki sem gerir
honum kleift að komast inn í sjónvarps-
þætti. Þar hittir hann fyrir meistaraþjóf
sem heitir Silver Zephyr og notast við
töfrastaf til að ræna því sem hann girn-
ist. Wario rænir stafnum og gerist sjálf-
ur þjófur.
Wario kallar sig í framhaldinu The Pur-
ple Wind, silent but deadly. Það má
segja að leikurinn sé í svipuðum dúr
og þessi prumpubrandari. Mér fannst
ég aldrei komast almennilega í takt
við leikinn. Kannski vegna þess að ég
naut hans ekki mikið. Snertipinninn er
mikið notaður til að leysa þrautir og
skipta um búninga og mér fannst hann
svolítið pirrandi á köflum. Það sem fór
líka í taugarnar á mér, eins og í sumum
öðrum DS-leikjum, eru endalaust löng
samtöl milli sögupersóna. Ekki bara
löng heldur mjög tíð líka.
Leikurinn hefur þó klárlega kosti líka.
Það gefur honum ferskan blæ
hversu marga mismunandi bún-
inga Wario getur brugðið sér í
og hver og einn hefur mismun-
andi eiginleika. Það hélt smá
spennu í leiknum að fá næsta
búning. Aftur á móti þarf maður
að teikna viðeigandi merki á skjá-
inn til að komast í viðeigandi bún-
ing og getur þetta orðið mjög þreytt.
Þar sem það er hægara sagt en gert að
teikna rétt merki og þegar tíminn er
naumur verður það þreytt.
Þegar upp er staðið er Wario: Master
of Disguise ekki eins sterkur leikur og
margir af Wario-leikjunum eru oft og
tíðum.
Ásgeir Jónsson
DÓRI DNA SEGIR:
&
U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 200754 Helgarblað DV
LEIKIRTÖLVUR
Shrek The Third - PSP
Resident Evil 4 - Wii
Scareface - Wii
Civilization IV: Beyond the Sword
Worms Open Warfare 2 - NDS/PSP
Kíktu á þessa
LEIKJATÖLVUR
Nýja PSP-vélin var kynnt til leiks á E3-tölvuleikjaráðstefnunni. Töluverðar breytingar
hafa verið gerðar á tölvunni sem er nú þriðjungi léttari.
BORÐTENNIS
Á WII
Leikjaframleiðandinn Rockstar hefur
tilkynnt að fyrirtækið ætli að gera
borðtennisleik fyrir Nintendo Wii.
Þar verður að sjálfsögðu notast við
sérstöðu stýrikerfis Wii. Um er að
ræða leik sem hefur áður komið út á
Xbox 360 og fékk nokkuð góðar
móttökur. Talsmaður Rockstar segir
að aðdáendur leiksins hafi beðið
mikið um Wii-útgáfu af leiknum þar
sem hægt verður að líkja náið eftir
alvöru borðtennis með hreyfigetu
stýripinnans fræga.
MILLJÓN SELD
Í JAPAN
Sony hefur tekist að selja eina milljón
PS3 í Japan. Í janúar hafði Sony komið
milljón tölvum á
markað í Japan og
hefur nú hálfu ári
seinna tekist að
selja þær allar.
Japan er síðasta
stóra markaðs-
svæðið sem nær
þeim áfanga að hafa selt milljón eintök
af PS3. Jafnvel þó að vélin hafi verið þar
lengst á markaði. Norður-Ameríka var
fyrst til að ná áfanganum enda seldust
þar um 700.000 eintök yfir jólin. Evrópa
og Ástralía fylgdu svo í kjölfarið.
MADDEN
HRINGIR
Í Madden NFL 08 sem kemur út í haust
verður hægt að kaupa sér sérstakan
Madden-meistarahring líkt og tíðkast
í alvöru amerískum fótbolta. EA hefur
náð samkomulagi við skartgripari-
sann Jostens, sem hefur gert 27 af 41
Super Bowl-hring, um gerð Madden-
hringjanna. Hægt verður að fá þá
með öllum 32 merkjum liðanna sem
eru í leiknum. Til þess að geta keypt
hringina þurfa spilendur að yfirstíga
vissar hindranir í leiknum og fá þá
aðgang að sérstakri vefsíðu. Verð
hringjanna verður á bilinu 10.000 til
300.000 krónur.
Sony sýndi loksins nýju PlayStation-
Portable, eða PSP-leikjatölvuna, á E3-
leikjaráðstefnunni sem er nýyfirstað-
in. Lengi hefur verið beðið eftir nýju
módeli af PSP en þó nokkuð er síðan
Nintendo, sem er helsti samkeppnis-
aðilinn, sendi frá sér bætta útgáfu af
DS-leikjavélinni. Það eru þó nokkr-
ar breytingar á nýju PSP-vélinni frá
þeirri gömlu. Bæði í útliti sem og í
tæknikostum.
Nýja vélin er töluvert þynnri en sú
gamla, svarta. Hún verður fáanleg í
ýmsum litum, svo sem silfruðu, hvítu,
svörtu og kremlituðu í sérstakri Star
Wars-útgáfu. Þá er hún um þriðj-
ungi léttari og nettari að öllu leyti.
Sony hefur tekist að minnka batterí-
ið í vélinni án þess þó að skerða end-
ingartíma þess. Þá mun vera hægt að
nota batteríið úr gömlu PSP-vélinni
sem kemur sér mjög vel í ferðalög-
um. Batteríshlífin á tölvunni mun þó
reyndar ekki passa á hana en hægt
verður að fá sérstaka hlíf fyrir gamla
batteríið. Flestir takkar og hólf eru á
sama stað á vélinni en smávægilegar
breytingar hafa verið gerðar á sumum
tengjum og öðrum bætt við. Til dæm-
is bætist við tengi fyrir fjarstýringu.
Einn helsti kosturinn við nýju vélina
er að hægt er að tengja hana við sjón-
varp og spila þannig tölvuleiki, kvik-
myndir og skoða ljósmyndir á sjón-
varpsskjánum. Þó svo að tölvan sé
smá sendir hún frá sér myndir í ótrú-
legum gæðum. Skjárinn á vélinni er
jafnstór og áður.
Annar stór kostur við nýju tölvuna
er að innra minni vélarinnar hefur
verið aukið um helming, úr 32 MB
í 64. Þá hefur tíminn sem tekur að
hlaða í leikjum verið styttur með því
að tölvan geymi UMD-gögn í flýti-
minninu. Þá verður einnig hægt að
hlaða nýju tölvuna í gegnum USB-
tengi, sem er stór kostur.
asgeir@dv.is
SLAKUR FRETDJÓKUR
PS Í SJÓNVARPI
Fjölbreytt útlit
Vélin verður
fáanleg í
nokkrum litum.
Star Wars PSP Chewbacca
kynnti sérstaka útgáfu
nýju vélarinnar á E3.
Mun nettari Nýja vélin er þriðjungi léttari.
Wario: Master
of Disguise
Þrautaleikur
Nintendo DS
TÖLVULEIKUR
★ ★ ★ ★ ★