Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2007, Síða 56
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 200756 Helgarblað DV
TÓNLIST
Hreyfir við fólki
Maynard James Keenan, forsprakki
hljómsveitanna Tool og A Perfect
Circle, vinnur
nú að nýju
tónlistar-
verkefni. Inni
á milli þess
sem hann
túrar með
hljómsveit-
inni Tool,
sem er nú í
alheims-
ferðalagi til
að fylgja eftir
nýjustu
afurð sinni 10.000 Days, heldur Keenan
sig innan veggja Electro Lady-stúdíós-
ins og tekur upp það sem hann vill
meina að sé tónlist sem hreyfi við fólki.
„Þungarokk er að deyja út, nú er það
tónlist með takti sem fær fólk til að
hreyfa sig sem lætur því líða vel,“ segir
söngvarinn en þetta nýja elektróverk-
efni hans hefur hlotið heitið Puscifer.
Tónlistarakademía DV segir
HLUSTAÐU Á ÞESSAR!
We Are the Night - Chemical Brothers
Super Scissors - Barbara Manning
With Lasers - Bonde De Role
Icky Thump - The White Stripes
23 - Blonde Redhead
Corgan
myndaði Hilton
Innan á plötuumslagi nýjustu afurðar
hljómsveitarinnar Smashing Pumpkins
má sjá mynd af hótelerfingjanum og
fyrrverandi fanganum Paris Hilton.
Billy Corgan söngvari sveitarinnar
greindi í nýlegu viðtali frá því að
upphaflega hafi hugmyndin verið að
fá mynd af Lindsay Lohan, Britney
Spears og Paris Hilton en þar sem
hann og Paris þekkist persónulega hafi
hún verið sú eina sem var til í
myndatökurnar. „Paris var frábær. Hún
mætti klukkan tíu á sunnudagsmorgni
í myndatökuna og eftir að hún hafði
farið í förðun tók ég myndirnar af
henni,“ segir hinn fjölhæfi Corgan.
Tónleikar
í 12 Tónum
Í dag mun tónlistarmaðurinn Þórir,
einnig þekktur sem My summer as a
salavation
soldier leika
lög af
væntanleg-
um
geisladisk
sem kemur
út hjá 12
Tónum í
haust. Áður
hefur hann
gefið út
diskana I Believe in this og My summer
as a salavation soldier. Í vor hélt Þórir á
tónleikaferðalag um Evrópu þar sem
hann hlaut gríðarlega góðar móttökur.
Tónleikarnir fara fram í verslun tólf tóna
við Skólavörðustíg og hefjast klukkan
17.
Páll Óskar
Segir auðvelt að ná upp
stemningu á NASA.
A
nnað kvöld, nánar tiltekið laug-
ardaginn 21. júlí, stendur Vífil-
fell fyrir brjáluðu Burn-partíi á
NASA. Það er plötusnúðatríó-
ið Plugg‘d sem startar gleðinni
og svo er það enginn annar en
diskókonungur Íslands, sjálfur
Páll Óskar, sem tekur við plötu-
spilaranum og skemmtir fólki
fram á rauða nótt. „Þessi Burn-
partí hafa verið haldin með reglulegu millibili
og öllu til tjaldað svo þau verði sem glæsileg-
ust. Þegar Burn-liðar höfðu samband við mig og
báðu mig að vera plötusnúð sagði ég já með því
skilyrði að ég fengi sprengjur, blöðrur, eldgleypi
og gógódansara,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson.
Ekki var lengi verið að bregðast við ósk Palla og
mega gestir eiga von á öllum þeim atriðum sem
Palli óskaði eftir. „Eldgleypirinn er náttúrulega
alveg ómissandi í Burn-partíi og við erum búin
að raða konfettisprengjum eftir öllu loftinu sem
koma til með að springa á ákveðnum tímapunkti
í lögunum sem ég spila. Það er því alveg ljóst að
djammið á laugardaginn verður á NASA,“ segir
Palli og bætir því við að hann hlakki mjög mikið
til að spila á NASA. „Það er alltaf svo auðvelt að
ná upp stemningu þar og NASA er einn fallegasti
staður á höfuðborgarsvæðinu.“
Fyrsta dansplatan í átta ár
Palli hefur nú unnið hörðum höndum að
gerð nýrrar plötu og hefur fyrsta smáskífan,
Allt fyrir ástina, hlotið mikla spilun á útvarps-
stöðvum landsins upp á síðkastið auk þess sem
myndbandið við lagið er nú komið í sýningar á
sjónvarpsstöðvunum. „Platan kemur út í okt-
óber en nú þegar er önnur smáskífan og mynd-
bandið tilbúið. Það er lagið International sem
kemur til með að vera Gay Pride-lagið í ár. Lagið
kemur út þann fyrsta ágúst en Gay Pride er þann
ellefta.“ Palli segir jafnframt að þegar forsvars-
menn Hinsegin daga höfðu samband við hann
og báðu hann að vera með lagið í ár hafi honum
fundist International eiga vel við boðskap Gay
Pride. „Textinn í laginu smellpassar við þennan
kærleiksboðskap Gay Pride um sjálfsvirðingu og
þá staðreynd að ástin á sér engin takmörk. Þetta
er rosalegt partídanslag og ég hlakka bara til að
sjá hvernig fólk tekur þessu.“ Að sögn Palla líður
honum eins og hann sé kominn heim við gerð
þessarar plötu þar sem þetta er fyrsta dansplat-
an sem hann sendir frá sér í heil átta ár. „Þetta
er algjör „commercial“ teknóplata sem er far-
in að hljóma mjög evrópsk en við leggjum nótt
og dag í upptökur til að hún hljómi sem best því
það er ekkert auðvelt að gera diskótónlist. Ég er
búin að halda tryggð við diskógyðjuna í öll þessi
ár og mér finnst æðislegt hvað fólk kann vel að
meta danslögin mín og allir kunna þau utan að
og syngja með. Ég held svei mér þá að Stanslaust
stuð verði bráðum skráð sem íslenskt þjóðlag hjá
STEF.“
Forsala á NASA í dag
Eins og áður kom fram er Burn-partíið hald-
ið á NASA og verður húsið opnað klukkan ellefu.
Forsala fer fram á NASA við Austurvöll í dag milli
eitt og fimm og kostar einungis þúsund krónur
inn. „Ég kem til með að spila þangað til síðasti
maður fer úr húsi og eins og venja er á tónleik-
um hjá mér þá býð ég áhorfendum upp á svið
að dansa með mér í lokin svo það verður dans-
að úti um allt á NASA,“ segir Páll Óskar sem lof-
ar stanslausu stuði og taumlausri gleði. Að lok-
um er áhugasömum bent á MySpace-síðu Palla
þar sem hægt er að fylgjast með plötunni fæð-
ast og kíkja á myndböndin við lögin en slóðin er
myspace.com/palloskar. krista@dv.is
Annað kvöld
verður haldið
brjálað Burn-
partí á NASA við
Austurvöll. Það
er plötusnúða-
þríeykið Plugg‘d
sem byrjar að
æsa upp lýðinn
og svo tekur
sjálfur Páll Ósk-
ar Hjálmtýsson
við og spilar þar
til síðasti maður
fer úr húsi en
hann vinnur nú
hörðum höndum
að gerð nýrrar
dansplötu.
ELDGLEYPAR,
SPRENGJUR OG GÓGÓDANSARAR
Ívar er rappari í hljómsveitinni Original Melody, kennir glímu í hjáverkum og stefnir á
lögfræði í haust:
Ívar Schram er rappari í hljómsveit-
inn Original Melody en kennir auk
þess glímu á leikjanámskeiðum ÍTR.
„Ég ásamt þremur öðrum krökk-
um fer á vegum ÍTR og Glímusam-
bands Íslands á leikjanámskeið og
kenni ungum krökkum glímu. Þetta
er mjög sniðugt verkefni og þar sem
ég er gamall glímumeistari leist mér
helvíti vel á að taka þátt í þessu þeg-
ar haft var samband við mig,“ seg-
ir Ívar og bætir því jafnframt við
að hann hafi gaman af því að rifja
upp gamla glímutakta. „Ég er gam-
all glímumeistari og finnst það vera
sniðugt að kynna þessa þjóðar íþrótt
fyrir krökkum sem eyða mestum
tíma í sjónvarp og tölvuleiki.“ Ívar
byrjaði sjálfur glímuferilinn þeg-
ar nokkrir glímukappar mættu í
skólann til hans og kenndu nokkur
brögð. „Ég ákvað að mæta á æfingu
því mér fannst þetta svo skemmti-
legt en í leiðinni fékk ég áskorun frá
einum glímukappanum sem lofaði
að gefa mér glímubelti ef ég ynni Ís-
landsmeistaratitilinn, sem ég reynd-
ar vann síðar en fékk þó aldrei belt-
ið.“ Inn á milli þess að kenna glímu
vinnur Ívar að gerð nýrrar plötu með
hljómsveit sinni Original Melody.
„Við erum langt komnir með hana og
hún kemur út á þessu ári. Svo tók ég
líka nýlega upp lag með hljómsveit-
inni Lödu Sport sem heitir Gene Pac-
man og má heyra það á nýútkominni
plötu sveitarinnar.“ Það er greinilega
nóg um að vera hjá Ívari því auk þessa
hyggst hann nema lögfræði í Háskól-
anum í Reykjavík í haust. Aðspurður
hvernig glíma, rapp og lögfræði fari
saman segir Ívar að lokum: „Þetta fer
jafn vel saman og hamborgari, kók
og franskar.“ krista@dv.is
Glímurappari á leið í lögfræði