Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2007, Page 4
fimmtudagur 26. júlí 20074 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Sjötíu einstaklingar verða kærðir fyrir að hóta Helga Rafni Brynjarssyni sem var
sakaður um hundsdráp á Bíladögum á Akureyri í maí. Nokkrir netverjar hafa haft
samband við hann og beðist afsökunar en það mun ekki breyta neinu, allir verða þeir
kærðir, að sögn lögfræðings hans Erlendi Þór Gunnarssyni. Málið er komið inn á
borð ofbeldisdeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
FYRIRGEFUR EKKI
MORÐHÓTANIR
valuR GREttisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
„Það að einhverjir hafi haft samband
og beðið Helga afsökunar mun ekki
hafa áhrif á kærur,“ segir Erlendur Þór
Gunnarsson, lögmaður Helga Rafns
Brynjólfssonar, sem var ásakaður um
að hafa drepið kínverska smáhund-
inn Lúkas á hrottalegan hátt. Ásak-
anirnar voru úr lausu lofti gripnar og
hafa sjötíu manns verið kærðir fyrir
meiðyrði og morðhótanir. Kærurn-
ar hafa verið lagðar inn hjá ofbeld-
isdeild lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu. Erlendur segir að búið sé að
hafa uppi á nöfnum ríflega helmings
þeirra einstaklinga sem hótuðu Helga
undir nafnleysi á vefnum.
Báðust afsökunar
Áður höfðu einhverjir haft sam-
band við Helga út af hótununum og
beðið hann afsökunar á framferði
sínu. Það breytir engu því Helgi ætlar
engu að síður að kæra þá.
Málið er fordæmisgefandi en ekki
hefur áður verið dæmt fyrir ummæli
sem birtust eingöngu á heimasíðum
eða spjallvefjum á netinu. Aðspurð-
ur hvort búast megi við skaðabótum
vegna málsins segir Erlendur ómögu-
legt um það að segja. Hann bendir þó
á að í Bubbadómnum fræga hafi verið
dæmdar 700 þúsund krónur í miska-
bætur þar sem sagt var að Bubbi væri
fallinn á reykingabindindi. Erlendur
segir ásakanir á hendur Helga alvar-
legri en þar er nánast fullyrt að hann
sé morðingi.
Forsvarsmenn í hættu
„Ef við finnum ekki nafnið á þeim
sem stóð fyrir hótununum, verður
látið reyna á ábyrgð forsvarsmanna
heimasíðnanna þar sem ummæl-
in birtust,“ segir Erlendur en það
þýðir að forsvarsmenn vefja eins
og live2cruize.com og hundaspjall.
is ásamt fleirum geti verið í hættu
vegna málsins. Refsingar við þeim
brotum sem netverjar eru ásakað-
ir um eru allt að eins árs fangelsi en
það fer eftir tegund brotanna. Falli
dómur í málinu verður hann for-
dæmisgefandi þar sem enginn hef-
ur áður verið dæmdur eða gerður
ábyrgur fyrir orðum sínum á verald-
arvefnum.
ljót ummæli
Ummælin sem hafa verið kærð
eru mjög gróf. Á vefnum live2cruize.
com má finna þessi ummæli: „Ég er
sko alveg til í að troða þessu kvikindi
ofan í tösku og sparka í hann þangað
til hann hættir að væla!!! …andskot-
inn hafi það ég væri til í þetta fífl. Eitt
stykki 36 mm lykill í smettið á þessu
væri UNAÐSLEGT!“ Ummælin skána
ekki, því á heimasíðunni hundaspjall.
is var þetta skrifað: „HA!! Þessi hálviti
er dauður ef ég sé hann!! ÓGEÐ og
ekki hægt að kalla þetta manneskju!!“
Því er nokkuð ljóst að það verður
ærið verkefni að draga þá einstakl-
inga til dóms fyrir þau orð sem látin
voru falla á veraldarvefnum.
Í rannsókn
Málið er komið inn á borð til of-
beldisbrotadeildar lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu. Þar verður
málið rannsakað til fulls og svo sent
til ákæruvaldsins. Enn á eftir að finna
alla þá einstaklinga sem fóru ófögrum
orðum um Helga og sökuðu hann um
hundsdráp. Eins og fyrr segir verður
látið á það reyna að gera forsvars-
menn vefja sem ummælin birtust
á ábyrga fyrir gjörðum gesta sinna.
Ekki er ljóst hvenær málið verður
dómtekið og segir Erlendur að það sé
ómögulegt að giska á hversu langt sé
í að rannsókn ljúki.
„ef við finnum ekki
nafnið á þeim sem stóð
fyrir hótununum, þá
verður látið reyna á
ábyrgð forsvarsmanna
heimasíðnanna þar
sem ummælin birtust.“
„Við hreinsuðum um átta tonn
af rusli en við pössuðum okkur á að
skilja smá eftir handa bænum,“ segir
Tómas J. Knútsson, ábyrgðarmaður
og stofnandi Bláa hersins. Á mánu-
daginn tóku samtökin Blái herinn,
sem Tómas stofnaði ásamt alþjóð-
lega vinnuhópnum Seeds, til hend-
inni í fjörunni á Akranesi. Hópurinn
safnaði þar átta tonnum af járnarusli
fyrir framan skipasmíðastöð Þorgeirs
og Ellerts.
Blái herinn er samtök sem Tóm-
as stofnaði árið 1998 en þá starfaði
Tómas sem sportkafari og hreinsaði
rusl upp af hafsbotni ásamt nemend-
um sínum. Samtökin færðu sig upp
á land nokkrum árum síðar og hafa
hreinsað hundruð tonna af rusli síð-
an þá. „Við vorum búin að hreinsa um
fimmtíu tonn af rusli neðansjávar og
síðan þá höfum við hreinsað upp um
þrjú hundruð tonn af rusli. Í kjölfar
framtaks Bláa hersins og Seeds hefur
Akranesbær gefið það út að þeir ætli
að taka til hendinni í fjörum bæjar-
ins.
„Það er hægt að þrífa endalaust því
það er svo mikið af rusli og drasli alls
staðar. Þetta hefur samt skánað mik-
ið á undanförnum árum en þetta er
leiðréttingarverkefni úr fortíðinni og
því verður aldrei lokið. Fyrir ást mína
á landinu get ég ekki látið þetta óátal-
ið,“ segir Tómas en Blái herinn hefur
verið áberandi í sumar og meðal ann-
ars tekið til hendinni í Vestmannaeyj-
um þar sem hann var í eina viku. „Við
tókum ein fimm tonn af rusli og drasli
sem lágu út um allar jarðir. Síðan höf-
um við mikið unnið á Reykjanesskag-
anum á undanförnum misserum og
munum halda því áfram. Ég er Kefl-
víkingur og ég vil helst ekki fara mikið
út á land fyrr en ég er búinn að sjá all-
ar syndir fortíðarinnar teknar í gegn.“
Tómas segir að verkefni sem þessi
geti verið kostnaðarsöm en hann hef-
ur þó góða bakhjarla sem styrki hann
með reglulegu millibili. „Við höfum
einn og einn styrktaraðila en Toy-
ota er aðalstyrktaraðili Bláa hersins.
Svo njótum við stundum liðsinnis frá
íþróttafélögum og björgunarsveitum
sem koma með okkur í dagshreinsan-
ir,“ segir Tómas. Næstu verkefni Bláa
hersins verða á Reykjanesinu.
einar@dv.is
Blái herinn hefur tekið til hendinni í sumar:
Hreinsuðu átta tonn af rusli
Gildrur á Kefla-
víkurflugvelli
Varnaræfingin Norðurvíking-
ur verður haldin í næsta mánuði
og er undirbúningur æfingar-
innar kominn á fullt. Í gær voru
starfsmenn Keflavíkurflugvallar,
sem annast tækjabúnað flug-
vallarins, að endurnýja svokall-
aða þotugildru en það eru vírar
sem eru strengdir yfir flugbraut-
ina. Gildrurnar eru notaðar svo
herflugvélar eigi auðveldara með
að bremsa á flugbrautum. Frá því
að orrustuflugvélar varnarliðsins
hurfu á brott var komið að gagn-
gerri endurnýjun og unnu starfs-
menn flugvallarins við það í gær.
Merkilegustu
mannvirkin
Á Vestfjörðum er hafin keppni
þar sem leitað er að sjö merki-
legustu manngerðu stöðunum
á svæðinu. Það er svæðisútvarp
fjórðungsins sem stendur að
keppninni og býðst öllum Vest-
firðingum og ferðamönnum þess
kostur að taka þátt í keppninni.
Fimm manna dómnefnd, sem
skipuð verður helstu mann-
virkjasérfræðingum svæðis-
ins, mun fara yfir tillögurnar og
ákveða hvaða mannvirki vinnur.
Hugmyndir eiga að sendast á ru-
vest@ruv.is og þarf rökstuðning-
ur að fylgja með.
Varað við svikum
„Nýjar aðferðir við svika-
starfsemi skjóta reglulega upp
kollinum og hringingar beint
í fyrirtæki eru orðnar algeng-
ar,“ segir í tilkynningu á vefsíðu
Samtaka ferðaþjónustunnar.
Mikið hefur borið á því und-
anfarið að reynt er að svíkja
fjármagn út úr fyrirtækjum og
hafa til dæmis hótel orðið fyrir
barðinu á óprúttnum aðilum.
Er það þó sérstaklega eitt fyrir-
tæki sem hefur verið bendlað
við mikla svikastarfsemi en
það er fyrirtækið European
City Guide. Hefur fyrirtækið
meðal annars reynt að láta fyr-
irtæki skrá sig í gagnabanka án
endurgjalds, en þegar á hólm-
inn er komið þarf að reiða
fram fúlgur fjár fyrir skráning-
una.
Áhyggjuefni
„Þessar aðgerðir hafa mik-
il neikvæð áhrif á samfélagið
hér í Snæfellsbæ og tekjumissir
samfélagsins verður rúmir tveir
milljarðar krónar,“ segir í til-
kynningu sem bæjarráð
Snæfellsbæjar sendi frá
sér í gær. Er tilkynn-
ingin send út í kjöl-
far niðurskurðar
á aflaheimild-
um þorsksins á
næsta fiskveiði-
ári. Eru þetta niðurstöður úr
skýrslu sem Atvinnuráðgjafar
Vesturlands unnu fyrir bæjar-
ráðið. Segir í tilkynningunni að
bæjarráðið óski eftir því að rík-
isstjórnin komi með mótvægis-
aðgerðir til handa bæjarfélaginu
sem verður af miklum tekjum
vegna skerðingarinnar.
tómas Knútsson og
félagar tóku til
hendinni í allt sumar.
lúkas heim Kínverski smáhund-
urinn lúkas er kominn í faðm
eigenda sinna eftir að hafa hafst
við á ruslahaugi í sumar.
Helgi Rafn
Brynjarsson
Hefur kært sjötíu
einstaklinga fyrir
hrikaleg ummæli
þar sem hann var
sakaður um
dýraníð. Hann
reyndist saklaus
af því að drepa
hundinn lúkas.