Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2007, Blaðsíða 18
fimmtudagur 26. júlí 200718 Sport DV
ÍÞRÓTTAMOLAR
Yamamoto til SpYker
japanski ökuþórinn Sakan Yamamoto er
að ganga til liðs við Spyker-liðið
hollenska. mun
hann koma í stað
Christjan albers frá
Hollandi en hann
var rekinn eftir
breska kappakstur-
inn. markus
Winkelhock,
tilraunaökuþór
Spyker, ók í stað
albers á
Nürburgring um síðustu helgi.
Samkvæmt fréttum mun Yamamoto ljúka
tímabilinu með Spyker en hann skrifar
undir samning í dag. Yakamoto keppti
fyrir hönd Super aguri um tíma í fyrra en
þótti ekki standa sig nægilega vel. Hann
hefur á þessu ári keppt í g2-mótaröðinni
til að öðlast meiri reynslu á kappaksturs-
brautum í Evrópu.
meiri preSSa á Benítez
josé mourinho, hinn málglaði knatt-
spyrnustjóri Chelsea, segir að kollegi hans
hjá liverpool, rafael Benítez, sé undir
meiri pressu en áður. Benítez hefur eytt
um 40 milljónum
punda í nýja
leikmenn. „Nú gera
allir stuðnings-
menn liðsins að
sjálfsögðu kröfu
um sigur. Hingað til
hefur Benítez skýlt
sér á bak við þá
afsökun að önnur
lið hafi eytt meiri
peningum. Nú getur hann ekki notað þá
afsökun,“ sagði mourinho en einng spáir
hann því að tottenham muni koma á
óvart á næsta tímabili. „tottenham hefur
styrkt sig fyrir átökin og liðið hefur fleiri
enska landsliðsmenn en nokkurt annað
lið í deildinni.“
nýr anfield
í gær voru kynntar tölvuteikningar að
nýjum leikvangi liverpool sem á að
byggja við Stanley Park. leikvangurinn
mun taka 60.000 manns í sæti en
mögulegt verður að stækka hann upp í
75.000 manna leikvang. Áætlað er að
völlurinn verði tilbúinn 2010 en stolt hans
verður nýja Kop-stúkan sem mun taka
18.000 manns. Þar verður setið þéttar en
áður til að skapa enn magnaðri
stemningu og stúkan verður brattari.
Þakið á stúkunni er hannað með það í
huga að magna upp hávaða. Bygging
vallarins mun kosta 300 milljónir punda.
Gleði í BaGdad
Það brutust út gríðarleg fagnaðarlæti á
götum Bagdad í gær enda hafa írakar
aldrei náð jafnfræknum árangri á
knattspyrnuvellinum. landslið írak gerði
sér lítið fyrir og lagði Suður-Kóreu í
skemmtilegum undanúrslitaleik í
asíubikarkeppninni
en þeirri keppni má
líkja við Evrópumót
landsliða. Það er
ljóst að írak mun
mæta Sádi-arabíu í
úrslitaleik mótsins
en Sádar sigruðu
japan 3-2 í hinum
undanúrslitaleikn-
um. japan og Suður-
Kórea leika um þriðja sætið á laugardag
en úrslitaleikurinn verður á sunnudaginn.
Þróttur heimSækir Stjörnuna
í kvöld klukkan 20:00 mætast Stjarnan og
Þróttur í 1. deild karla en þetta er fyrsti
leikur þrettándu
umferðar
deildarinnar.
Þróttarar sitja í öðru
sæti deildarinnar,
eru fjórum stigum á
eftir toppliði
grindavíkur sem
mætir leikni í
Breiðholtinu annað
kvöld. Þrjú lið
munu komast upp í úrvalsdeildina en það
verður stórleikur á Eskifjarðarvelli á
morgun þegar liðin í þriðja og fjórða
sætinu mætast, fjarðabyggð og fjölnir.
Þá tekur reynir Sandgerði á móti íBV
annað kvöld en á laugardag verða tveir
leikir á dagskránni, Ka og Njarðvík eigast
við og Víkingur Ólafsvík tekur á móti Þór
akureyri.
Media Sports Investments ætlar að berjast til síðasta blóðdropa í Tevez-málinu:
MSI kærir West Ham út af Tevez
Fjárfestingafélagið Media Sports
Investments (MSI) hefur hafið lögsókn
á hendur West Ham eftir að Alþjóða-
knattspyrnusambandið (FIFA) mælti
með því að Tevez-málið færi fyrir gerð-
ardóm íþrótta. MSI segist eiga Carloz
Tevez og telur sig eiga að fá þá 3,6
milljarða sem Manchester United er
tilbúið að borga fyrir leikmanninn.
MSI er að hluta til í eigu íranska
viðskiptamannsins Kia Joorabchian.
Fjárfestingafélagið telur að öll við-
skipti með leikmanninn eigi að fara í
gegnum sig þar sem félagið hafi um-
ráð með fjárhagshlið leikmannsins.
Þess háttar viðskiptahættir eru ekki
óalgengir í Suður-Ameríku, þar sem
Tevez lék áður með Corinthians og
Boca Juniors.
West Ham telur hins vegar að að-
ild þriðja aðila í málinu sé ekki leng-
ur fyrir hendi. Aðild þriðja aðila í
málum leikmanna er bönnuð í Eng-
landi og West Ham nýtur stuðnings
ensku úrvalsdeildarinnar í málinu.
Það sem West Ham hefur fyrir sér í
málinu er að ef enska úrvalsdeildin
hefði ekki viðurkennt að aðild þriðja
aðila í málinu væri úr sögunni hefði
Tevez aldei mátt spila með West Ham
á síðustu leiktíð.
FIFA fékk málið inn á sitt borð eft-
ir að enska úrvalsdeildin hafði dæmt
West Ham í hag og FIFA mælti með
því að málið færi fyrir gerðardóm
íþrótta. Líklegt er talið að gerðar-
dómurinn dæmi einnig West Ham í
vil.
Við það getur Kia Joorabchian ekki
unað og nú ætlar MSI að fara með mál-
ið fyrir hæstarétt. Það verður að teljast
líklegt að hæstiréttur dæmi MSI í vil
þar sem alþjóðleg viðskiptalögfræði
sér ekkert athugavert við sameiginlega
aðild eða aðild þriðja aðila í eignum.
Sem dæmi um það er að þrír eða fleiri
aðilar geta átt hlutabréf í hlutafélagi.
Málið er því komið í enn meiri hnút.
West Ham sér um að borga leikmann-
inum laun, hefur leikheimild fyrir
hann og telur sig því eiga leikmanninn.
MSI telur sig einnig eiga leikmanninn
og segir að West Ham hafi aldrei borg-
að fyrir. Málið fer nú líklega bæði fyr-
ir gerðardóm og hæstarétt. Það verður
því enn bið á því að Tevez fái ósk sína
uppfyllta.
dagur@dv.is
allt í hnút tevez-málið ætlar
engan endi að taka og nú hefur
media Sports investments hafið
lögsókn á hendur West Ham.
ÆTLAð Að
fyLLA
sTÓRT
skARð
Margir stuðningsmenn Arsenal eru efins um að króatíski
sóknarmaðurinn eduardo da Silva sé nægilega sterkur fyrir
ensku úrvalsdeildina. Hann var keyptur til liðsins fyrir stór-
an hluta þeirrar upphæðar sem thierry henry var seldur á.
Arsenal hefur verið heldur rólegt á leikmannamarkaðnum í sumar miðað við hin stórliðin á Englandi. Margir vilja meina að það sé eina stórliðið sem sé ekki að styrkja sig fyrir komandi tímabil. Félagið hefur misst sinn sterkasta leikmann, sókn-
armanninn Thierry Henry, sem hefur oft sýnt
ótrúleg tilþrif í búningi í félagsins. Einnig er hinn
sænski Freddie Ljungberg farinn en hann var sá
leikmaður innan raða félagsins sem hafði verið
hjá því lengst.
Þá eru nokkrir minni spámenn einnig farnir. Í
staðinn hefur Arsenal fengið þrjá leikmenn sem
eiga það sameiginlegt að vera ekki inni í orðabók
hins almenna fótboltaáhugamanns. Sá af þeim
sem mestar vonir eru bundnar við er króatíski
sóknarmaðurinn Eduardo da Silva sem er beint
og óbeint ætlað að fylla skarðið sem Henry skil-
ur eftir sig.
mun sakna dinamo
„Ég er ótrúlega ánægður með að vera kom-
inn til stórliðs eins og Arsenal er. Á sama tíma er
ég spenntur og ég leyni því ekki að það er smá
stress í mér. Mér hefur liðið rosalega vel þessi
átta ár sem ég hef spilað með Dinamo Zagreb. Ég
mun sakna félagsins og þess frábæra anda sem
þar ríkir. Ég hef eignast marga af mínum bestu
vinum hjá þessu félagi,“ sagði da Silva sem fædd-
ist í Brasilíu en hann er 24 ára.
„Ég er handviss um það að einn daginn mun
ég snúa aftur til Dinamo en nú er allur minn hug-
ur hjá Arsenal. Það hefur verið minn draumur að
spila með einhverju af stærstu liðum Evrópu og
þegar tækifærið gafst greip ég það að sjálfsögðu,“
sagði da Silva en mjög stór hluti þeirrar upphæð-
ar sem Arsenal fékk fór í kaupin á honum.
34 mörk í 32 leikjum
Þegar Eduardo da Silva var fimmtán ára gam-
all fluttist hann til Zagreb, höfuðborgar Króatíu,
og gekk til liðs við Dinamo Zagreb. Þaðan var
hann síðan lánaður til NK Inker Zaprešic sem
þá lék í króatísku 2. deildinni og skoraði hann
þar tíu mörk í fimmtán leikjum. Hann kom aftur
til Dinamo reynslunni ríkari og var ekki lengi að
vinna sér inn fast sæti í liðinu. Hann var valinn
leikmaður ársins í króatísku deildinni árin 2004
og 2006.
Da Silva hefur afrekað það að skora gegn
sínu núverandi félagi en það gerði hann í und-
ankeppni Meistaradeildar Evrópu á síðasta ári.
Arsenal vann 5-1 samanlagðan sigur en da Silva
skoraði eina mark Dinamo í leiknum.
Hann spilaði frábærlega tímabilið 2006-07
og spilaði alla átján leiki Dinamo fyrir vetrarhlé
og skoraði í þeim átján mörk. Það var síðan 12.
maí sem da Silva skoraði tvö mörk í 4-0 sigri gegn
NK Zagreb en það voru mörk númer 30 og 31 hjá
honum á tímabilinu. Þar með setti hann nýtt met
í króatísku deildinni en hann skoraði fleiri mörk
en nokkur annar maður hefur gert. Fyrra metið
átti Goran Vlaovic sem gerði 29 mörk tímabilið
1993-94.
da Silva skoraði í heildina 34 mörk í 32
leikjum.
Eduardo da Silva hefur ekki aðeins náð að
skora gegn Arsenal heldur einnig gegn enska
landsliðinu. Það gerði hann með því króat-
íska í undankeppni Evrópumótsins með skalla
yfir Paul Robinson. Króatía vann þann leik
2-0. Hann á alls fjórtán leiki og átta mörk að
baki með króatíska landsliðinu þar á meðal er
mögnuð þrenna sem hann skoraði í 4-3 sigri
gegn sterku liði Ísrael.Enska úrvalsdeildin er
talsvert mun sterkari en sú króatíska og verður
spennandi að sjá hvernig Eduardo da Silva nái
að fóta sig þar. Allavega verður að teljast harla
ólíklegt að hann nái að skora yfir þrjátíu mörk í
Englandi. Skarðið sem honum er ætlað að fylla
er ansi stórt og ljóst að væntingar stuðnings-
manna Arsenal eru miklar. Það er ekkert grín
að leysa af Thierry Henry.
Áhyggjuraddir heyrast í mörgum stuðn-
ingsmönnum liðsins fyrir komandi vetur enda
er það nokkuð spurningamerki fyrir tímabil-
ið. Auk Eduardo da Silva hefur Arsenal fengið
varnarmanninn Bacary Sagna frá franska lið-
inu Auxerre og markvörðinn Lukasz Fabianski
frá Legia Varsjá. elvargeir@dv.is
markaSkorari
da Silva hefur skorað átta
mörk í fjórtán landsleikj-
um fyrir Króatíu.