Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1993, Síða 4
2
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 24
Avarp
Annað hvert ár, þegar aðalfundur Læknafélags
Islands er haldinn í Reykjavík, er á læknaþingi
boðið upp á flutning frjálsra erinda og spjaldasýn-
ingu auk annars efnis. í þessu Fylgiriti Lækna-
blaðsins nr. 24, birtast ágrip erinda og spjalda sem
verða flutt og sýnd á læknaþingi 1993.
Dagskrá haustþings læknafélaganna 1993 er
óvenju fjölbreytt vegna 75 ára afmælis Læknafé-
lags Islands. Að undirbúningi hennar hafa staðið
fjölmargir félagar auk nefndarmanna í viðkom-
andi nefndum og stjórn L.í. Val á efni og fyrirles-
urum er ávallt umdeilanlegt. Gildir það um þessa
dagskrá eins og aðra. Vonandi hafa sem flestir
tækifæri til að sækja fundina og dæmi þá hver fyrir
sig, hvernig til hefur tekist.
Aðgangur er ókeypis og ekki þarf að tilkynna
þátttöku nema á hátíðardagskrána á fimmtudeg-
inum og á námskeið í sérhæfðri endurlífgun.
I Fréttabréfi lækna hafa áður verið kynntir er-
lendir fyrirlesarar á hátíðarfundinum fimmtudag-
inn 16. september. í þessu riti er kynning á þrem-
ur gestafyrirlesurum á Vísindaþingi. Eru það ís-
lensku læknarnir Snorri Sveinn Þorgeirsson og
Stefán Karlsson, sem búsettir eru og starfa er-
lendis, og Bandaríkjamaðurinn W. Allen Hauser.
Peir Snorri og Stefán eru sérstakir gestir stjórnar
L.í.
Dagskrá haustþings læknafélaganna 10. - 18.
september 1993 er birt í þessu Fylgiriti Lækna-
blaðsins. í „programmi“ læknafundar sem Guð-
mundur Hannesson boðaði til árið 1902 var átt-
undi liðurinn þannig: „8) last not least - að sjá
hvorn annan, spjalla saman og hafa gleði af för-
inni“ (Læknablað Guðmundar Hannessonar bls.
51).
Ég óska þeim sem fara á læknaþing 1993 góðrar
farar.
Reykjavík í ágúst 1993
Stefán B. Matthíasson
formaður Námskeiðs- og fræðslunefndar
Stjórn Læknafélags íslands:
Sverrir Bergmann, formaður
Kristján Erlendsson
Þorkell Bjarnason
Ludvig A. Guðmundsson
Anna Mýrdal Helgadóttir
Magnús R. Jónasson
Sigurbergur Kárason
Valgerður Baldursdóttir
Námskeiðs- og Fræðslunefnd L.í. og L.R:
Stefán B. Matthíasson, formaður
Bjarni Agnarsson
Jón Högnason
Katrín Davíðsdóttir
Magnús Gottfreðsson
Stjórn Siðfræðiráðs:
Tómas Zoéga, formaður
Guðmundur Oddsson
Guðmundur Þorgeirsson
Guðmundur Viggósson
Örn Bjarnason
Páll Þórðarson
Afmælisdagskrárnefnd:
Helga Hannesdóttir, formaður
Ásgeir Böðvarsson
Gunnlaugur Snædal
Katrín Fjeldsted
Sigurður Björnsson