Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1993, Blaðsíða 17
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 24
15
Kynning:
Stefán Karlsson PhD
Stefán Karlsson er fæddur á Akureyri 31. maí
1950 og útskrifaðist frá læknadeild Háskóla Is-
lands 1976. Á árunum 1977-1979, að loknu kandí-
datsári, starfaði hann við Blóðbankann í Reykja-
vík en fór síðan til doktorsnáms í erfðafræði við
University College í London, þaðan sem hann
lauk prófi 1982. Frá 1983 hefur hann starfað við
National Institutes of Health í Bethesda í Banda-
ríkjunum, þar af frá 1988 sem forstöðumaður,
(acting chief) á Molecular and Medical Genetic
Section. Developmental and Metabolic Neuro-
logy Branch, NINDS.
Stefán hefur verið farsæll í starfi sínu og náð
miklum árangri og alþjóða viðurkenningu á stutt-
um tíma fyrir rannsóknarstörf sín. Pau liggja á
sviði genastjórnunar, genaflutninga til blóðmynd-
andi fruma með veiruferjum og stofnfruma
fóstra. Þá hefur hann unnið rannsóknarstörf á
sviði blóðmyndunar og rannsakað sjúkdóma er
tenjyast geymslugöllum liposoma.
Á rannsóknarstofu sinni hefur Stefán þjálfað
vænan hóp yngri vísindamanna og farið vfða um
heim til erindaflutnings um rannsóknir sínar.
Hann hefur hlotið fjölda styrkja fyrir rannsóknir
sínar og skal nefnt í tímaröð; sérstakur styrkur frá
íslenska menntamálaráðuneytinu, Vísindasjóði,
styrkur frá British Council í London, rannsóknar-
viðurkenning frá the Lawson-Tait Medical and
Scientific Reasearch Trust, Jackson Lewis schol-
arship and Elliot Blake studentship frá University
College of London og rannsóknarstyrk frá The
Cystic Fibrosis Research Trust í London 1982. Frá
1987 hefur hann unnið á rannsóknarstyrk frá The
National Goucher Foundation í Bandaríkjunum.
Þá hefur Stefán skipað sér í hóp þeirra vísinda-
manna, er meta greinar fyrir þekkt vísindatímarit
svo sem Blood, Experimental Hematology,
Human Gene Theraphy, American Journal of
Human Genetics og Proceedings of National
Academy of Science, U.S.A. Auk þess yfirfer
hann styrkumsóknir fyrir National Institutes of
Health og Medical Research Counsil of Canada.
Óþarfi er að taka fram að Stefán hefur skrifað
fjöldann allan af greinum í fræðitímarit og kynnt
vinnu sína á ráðstefnum um allan heim eins og við
á.
Læknafélagi íslands og íslenskum læknum er
mikill akkur í því að fá að hlýða á Stefán skýra frá
rannsóknum sínum, sem þátt í hátíðahöldum
vegna 75 ára afmælis Læknafélags íslands. Stefán
er ungur íslenskur vísindamaður, sem hefur valið
að búa í Bandríkjunum með konu sinni og tveim-
ur börnum. Hróður hans hefur farið víða og þó
hann hafi fallið vel inn í fremstu röð bandarískra
vísindamanna, þá erum við hreykin af árangri
hans sem íslendings.
Kristján Erlendsson
varaformaður L.I.