Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1993, Page 29

Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1993, Page 29
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 24 27 Krabbamein í nýrnaskjóðu og þvagleiðurum á Islandi 1971-1990:-Klínísk rannsókn- Tómas Guðbiartsson. Guðm. V. Einarsson, Egill Jacobsen Handlœkninga- og Þvagfœraskurðdeild Landspítala. Harla lítið er vitað um krabbamein í nýrnaskjóðu og þvagleiðurum hér á landi. Klínísk afturskyggn rannsókn var gerð á öllum sjúklingum sem greindust með cancer pelvis renis (n=45) eða cancer ureleris (n= 13) á Islandi árin 1971-1990.1 öllum tilvikum nema 2 (ieiomyosarcoma) var um að ræða carcinoma transitionale, oftast illa þroskuð. Alls greindust 42 karlar og 16 konur, meðalaldur tæp 70 ár. Flestir (86%) gengust undir aðgerð á nýra og/eða þvagleiðara (skurðdauði <30 d. 2%). Sjúkdómseinkenni og lengd einkenna fyrir greiningu voru skráð, einnig á hvaða stigi (Grabstald) sjúkl. greindust. Lífshorfur voru reiknaðar fyrir hvert stig (Kaplan-Meier) og fjölbreytugreining (Cox) notuð til að kanna forspárgildi lífhorfa. Aldursstaðlað nýgengi nýrnaskjóðukrabbameins á rannsóknartímabilinu (á ári) var 1,1/100.000 karlar og 0,4/100.000 konur, og nýgengi krabbameins í þvagleiðara 0,3/100.000 karlar og 0,1/100.000 konur. Blóð í þvagi og kviðverkir voru algengustu einkennin. Á stigi 1-111 voru 28 sjúkl.(54%) en 24 á stigi IV(46%). Meinvörp fundust hjá 22% og voru algengust í eitlum og lungum. Fimm ára lífshorfur reyndust 44% fyrir hópinn í heild, 88% fyrir stig I en 21% fyrir stig IV. Greiningarár hafði ekki marktæk áhrif á lífshorfur. Krabbamein í nýmaskjóðu og þvagleiðurum eru sjaldgæf æxli. Þau er í meðallagi algeng miðað við nágrannalönd og hegða sér svipað. Lífshorfur eru einnig vel sambærilegar, ekki síst hjá sjúkingum með meinvörp. Horfur hafa ekki batnað síðustu tvo áratugi hér á landi. Hvernig getum við bætt lífshorfur sjúklinga með nýrnafrumukrabbamein á íslandi? Tómas Guðbiartsson. Guðm.V. Einarsson, Jónas Magnússon. Handlœkninga- og Þvagfœraskurðdeild Landspitala. Nýgengi og dánarhlutfall nýrnafrumukrabbameins er hvergi hærra en á íslandi. Sjúkdómurinn hegðar sér svipað og í nágrannalöndum okkar. í sumum þessara Ianda hafa lífshorfur vænkast og hefur það verið skýrt með auknum fjölda nýmafrumukrabbameina sem greinast fyrir tilviljun við ómskoðun og tölvusneiðmyndatöku á kviðarholi. Tilviljanagreining er ekki jafn algeng hérlendis. Auk þess sýna rannsóknir að lífshorfur sjúklinga með nýmafmmukrabbamein hafa staðið í stað hér á landi síðustu tvo áratugi enda þótt lífshorfur séu fyllilega sambærilegar við það sem best þekkist erlendis. Forsenda bættra h'fshorfa, bæði hér á landi sem erlendis, er öflugri lyf fyrir sjúklinga með útbreitt nýrnafrumukrabbamein, því lífshorfur sjúklinga með meinvörp em miklu verri (<10% 5 ára lífshorfur) en þeirra sem hafa staðbundinn sjúkdóm við greiningu (allt að 85% 5-ára lífshorfur). Einnig er mikilvægt að greina sjúklingana fyrr og á lægri stigum. Þótt hlutfall tilviljanagreindra æxla sé lágt hér á landi teljum við að skimun (ómskoðun, tölvusneiðmyndir, þvagskoðun) svari ekki kostnaði. Sennilega er mestur ávinningur af öflugri fræðslu fyrir lækna um einkenni nýrnafrumukrabbameins. Sjúkdómseinkenni nýmafmmukrabbameins geta verið mjög lúmsk og staðreynd að oft dregst greining á langin. Því þarf að rannsaka með framsýnni rannsókn hver þáttur sjúklinga og lækna er í þessu sambandi. E 20 E 21

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.