Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1993, Page 30
28
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 24
E 22 NÝGENGI KRABBAMEINA HJÁ ÞEIM SEM
VINNA VIÐ RAFMAGN -
FRYRSTU NIÐURSTÖÐUR
Vilhjálmur Rafnsson, Hólmfríður Gunnarsdóttir.
Atvinnusjúkdómadeild Vinnueftirlits ríkisins
INNGANGUR
Niðurstöður úr fjölda erlendra faraldsfræóilegra
rannsókna benda til að hætta á krabbameinum,
sérstaklega hvítblæði og heilaæxlum fylgi ýmsum
svoköiluðum rafmagnsstörfum. Hugsanleg tengsl
mengunar lágtíðni raf- og segulsviðs og nýgengi og
dánartíðni úr hvítblæði og heilakrabbameini hefur
verið til umfjöllunar. Það hefur reynst erfitt að greina
heildstæða, rökrétta mynd af slíku sambandi og
vísbendingamar um tengsl krabbameina og þessarar
mengunar hafa hingað til ekki verið óyggjandi.
Við höfum athugað nýgengi krabbameina, sérstaklega
blóðkrabbameina og heila&abbameina, hjá þeim sem
hafa verið í lífeyrissjóði Rafiðnaðarsambandsins en
innan vébanda þess eru menn sem vinna
"rafmagnsstörf'.
EFNI OG AÐFERÐIR
Rannsóknarhópurinn var fenginn frá Lífeyrissjóði
rafiðnaðarmanna en i hann höfðu greitt 4540 karlar á
árunum 1970 til 1991.1 lífeyrissjóðnum eru rafvirkjar,
rafeindavirkjar, línumenn, skrifvélvirkjar og nemar í
rafiðnaði. Svo fáar konur voru í sjóðnum að ekki var
hægt að gera skynsamlega rannsókn á þeim og er þeim
því sleppt. Með kennitölum lífeyrisgreiðanda var gerð
tölvutenging við Krabbameinsskrá að fengnu leyfi
Tölvunefndar. Væntigildi fyrir krabbamein var fundið
á grunni mannára í fimm ára aldurshópum á hveiju ári
sem margfölduð voru með aldurs- og árabundnu
nýgengi fyrir íslenska karla.
NIÐURSTÖÐUR
Um það bil jafn mörg krabbamein fundust hjá
sjóðsfélögum og búast mátti við (61 krabbamein á
móti væntigildinu 59.42, SIR 1.03, 95% öryggismörk
0.79-1.32). Fleiri blóðkrabbamein fundust hjá hópnum
en vænta mátti en þær niðurstöður voru ekki
tölfræðilega marktækar (8 krabbamein á móti 6.74
væntanlegum, SIR 1.19, 95% öryggismörk 0.51-2.34).
Fimm heilaæxli voru hjá lífeyrissjóðsfélögum þegar
vænta mátti 3.79, SIR 1.32, 95% öryggismörk 0.43-
3.08).
ÁLYKTUN
Þessar frumniðurstöður verða að teljast veigalítill
stuðningur við tengsl mengunar rafsegulsviðs og
hvítblæðis eða heilakrabbameins. Veikleikar
rannsóknarinnar eru ekki eingöngu vegna þess að
rannsóknarhópurinn er lítill og þar með minni
möguleikamir á að fá áreiðanlegar niðurstöður um
tiltölulega sjaldgæf krabbamein heldur einnig vegna
þess að mengunin verður hér einungis áætluð og í
besta falli metin í fjölda ára sem menn hafa greitt í
sjóðinn. Unnið verður áffam að mati og mælingum á
mengun rafsegulsviðsins, sem mennimir verða fyrir til
þess að athuga samband magns mengunar, tíðni og
eðli annars vegar og fjölda krabbameina hins vegar.
E 23
LUNGNAKRABBAMEIN OG MENGUN
KÍSILGÚRS
Vilhjálmur Rafnsson, Hólmffíður Gunnarsdóttir.
Atvinnusjúkdómadeild Vinnueftirlits ríkisins
INNGANGUR
Faraldsffæðilegar rannsóknir benda til þess að mengun
kristallaðrar kísilsýru eigi þátt í tilurð
lungnakrabbameins. Hér er fjallað um hóp sem orðið
hefur fyrir mengun kisilgúrs og kristóbalíts en tíðni
krabbameina er athuguð með samanburði hópsins við
Krabbameinsskrána með sérstakri áherslu á
lungnakrabbamein.
EFNI OG AÐFERÐIR
I rannsóknarhópnum em starfsmenn Kísiliðjunnar við
Mývatn og þeir sem unnið hafa við útskipun kísilgúrs í
Húsavíkurhöfn. Þegar náttúrulegur kísilgúr er glæddur
breytist kísilsýran (Si20) í honum úr myndlausu formi
í kristallað, sem að stærstum hluta er kristóbalít.
Persónubundnar mengunarmælingar ffá árunum 1978,
1981 og 1983 sýna að magn öndunarbærs kristóbalíts
var á bilinu 0.03 - 0.7 mg/m3 hjá starffnönnum við
útskipun og 0.02 - 0.5 mg/m3 hjá þeim sem unnu við
framleiðslu. Með kennitölum starfsmanna var gerð
tölvutenging við Krabbameinsskrá að fengnu leyfi
Tölvunefndar. Væntigildi fyrir krabbamein var fundið
á grunni mannára í aldurshópum og eftir ámm miðað
við aldurs- og árabundið nýgengi fyrir alla íslcnska
karla og konur.
NIÐURSTÖÐUR
Nýgengi allra krabbameina í rannsóknarhópnum var
ekki hærra en meðal þjóðarinnar. Lungnakrabbamein
vom fimm en búast mátti við 4.40, staðlaða
nýgengihlutfallið (SIR) var 1.14 (95% öryggismörk
0.37-2.65). Þegar körlum var skipt niður eftir fjölda
vinnuára kom í ljós að meðal þeirra sem höföu 5
vinnuár eða fleiri, vom fleiri lungnakrabbamein en
búast mátti við (þrjú á móti 1.28 væntanlegum, SIR
2.34, 95% öryggismörk 0.48-6.85) og meira af
húðkrabbameini (tvö krabbameinm á móti
væntigildinu 0.19, SIR 10.53, 95% öryggismörk 1.27-
38.02) og meira afheilakrabbameini (þijú krabbamein
á móti væntigildinu 0.30, SIR 10.00, 95%
öryggismörk 2.06-29.23). Könnun á reykingavenjum
meðal starfsmannanna sýndi að þeir reyktu minna en
almennt gerist samkvæmt því sem ffam hefur komið í
reykingaathugunum Tóbaksvamamefndar.
ÁLYKTANIR
Niðurstöðumar benda til að meiri hætta sé á
lungnakrabbameini meðal þeirra sem orðið hafa fyrir
mengun kisilgúrs og kristóbalíts. Þetta sést einkum
meðal þeirra sem lengst hafa verið í mengun.
Reykingar geta ekki einar átt hér hlut að máli. Óvænt
kom í ljós hærra nýgengi húðkrabbameins og
heilakrabbameins en við mátti búast hjá körlum sem
höföu orðið fyrir mestri mengun. Þetta gæti hafa
komið fram af hendingu en ekki er það víst og er því
ástæða til að rannsaka málið nánar.