Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1993, Blaðsíða 31
HÖNNUN SIGURBORG STEFÁNSDÓTTIR
cppni ®
! I m ! _ Áhrifaríkt geðdeyfðarlyf. Gefið einu sinni á dag.
Seról (flúoxetín)
Hylki; N 06 A B 03 Hvert hylki inniheldur: Fluoxetinum INN, klóríð, samsvarandi Fluoxetinum INN 20 mg. Eiginleikar:
Flúoxetín er geðdeyfðarlyf, sem er talið verka þannig, að það blokkar upptöku serótóníns (5-HT) í taugaenda I heila. Lyfið hefur
litil sem engin áhrif á noradrenalín eða önnur boðefni i heila. Flúoxetín minnkar matarlyst. Blóðþéttni lyfsins nær hámarki u.þ.b.
6 klst. eftir inntöku. Helmingunartimi flúoxetíns í blóði er 2-3 dagar. Aðalumbrotsefni flúoxetíns er norflúoxetín, sem er álika
virkt og flúoxetín og helmingunartimi þess er 7-9 dagar. Próteinbinding i plasma er um 94%. Um 80% af gefnum skammti skiljast
út í þvagi, að mestu sem umbrotsefni. Ábendingar: Innlæg geðdeyfð (unipolar og bipolar). Alvarlegt, langvarandi þunglyndi,
sem á sér ytri orsakir. Frábendingar: Meðganga og brjóstagjöf. Sérstakrar varúðar ber að gæta við flogaveiki, alvarlega
nýrnabilun, lifrarsjúkdóm, nýlegt hjartadrep og hjá öldruðum. Varúð: Við þunglyndi getur sjálfsmorðshætta aukist í þyrjun
meðferðar. Flogaveikisjúklingar þurfa að vera undir mjög góðu eftirliti vegna aukinnar hættu á flogum. Aukaverkanir: Ogleði,
óróleiki, slappleiki, niðurgangur, höfuðverkur, skjálfti, kviði, sljóleiki, munnþurrkur og aukin svitamyndun. Ofnæmi með útbro-
tum og liðverkjum. Milliverkanir: Lyfið má ekki nota með MAO-hemjandi lyfjum og ekki fyrr en 2 vikum eftir að töku slikra
lyfja var hætt. Ekki ætti að nota trýptófan með þessu lyfi. Skammtastaerðir handa fullorðnum: Venjulegur upphafsskamm-
tur er 20 mg, sem heppilegt er að taka að morgni. Verkun nær ekki hámarki fyrr en eftir 2-3 vikur. Fáist ekki fullnægjandi
verkun má auka skammtinn smám saman, þó ekki i meira en 80 mg á dag. Lyfið er ekki ætlað börnum. Pakkningar:
Hylki 20 mg: 30 stk.; 100 stk.
EFLUM ISLENSKT - TRYGGJUM SAMKEPPNI
OMEGAFARMA HF
KÁRSNESBRAUT 108
200 KÓPAVOGUR
SlMI 64 26 20