Innsýn - 01.04.1976, Síða 7
7
hverjir
voru
bræhur
Jesú?
Eftirfarandi spurning og svar birtist á
s.l. ári í blaðinu Signs. Einar V. Arason
þýddi.
Ég hef séð í einu af blöðum okkar
(Signs, ágúst, 1974, bls. 34) þar sem
talað er um fjölskyldur þessi orð: “Hann
(Guð) elskar ekkjumenn svo mikið, að
hann kaus einn þannig, sem stóð uppi
með sex börn og gaf honum Maríu fyrir
aðra konu sína; svo faldi hann sinn eigin
dreng í hans umsjá“. Hvar finnum við
þetta íBiblíunni?
Að Jósef væri ekkjumaður og ætti sex
börn þegar hann var heitbundinn Maríu,
er ekki sagt hreint út í Ritningunni, en
það er hægt að draga þá ályktun, engu
að síður. Bræður Jesú voru Jakob, Jós-
ef, Símon og Júdas. (Matt. 13,55) Hann
átti a.m.k. tvær systur. (Mark. 6,3)
Þú ert ábyggilega sammála mér um,
að Jesús var fæddur af mey (Lúk. 1,27).
Því er aðeins um tvennt að ræða:(1) að
Jósef átti börn með fyrri konu sinni; eða
(2) að María hafi átt sjö börn.sex þeirra
yngri en Jesú.
Jóh. 19,26 styður fyrra atriðið, þar
sem Jesús felur móður sína í umsjá
Jóhannesar. Ef börnin, sem Matteus og
Markús minntust á, væru synir og dætur
Maríu, þá heföi venjan ekki leyft Jesú að
fela móður sína einhverjum utan fjöl-
skyldunnar.
Ennfremur komu bræður Jesú fram
sem eldri bræður. Þeir sýndu Jesú skort
á virðingu, sem hefði ekki verið mögu-
legt í Austurlöndum, væri Jesús elsti
sonurinn. í Mark. 3,21 skárust vinir hans
(bókstafleg merking: þeir við hlið hans,
bræður hans) í leikinn. Einnig hæddu
bræður Jesú hann (Jóh. 7,3—5), sem
enginn yngri bróðir hefði vogað sér að
gera við eldri bróður, sem vanalega var
aðalframkvæmdavald föðurs síns, og
sem yrði höfuö fjölskyldunnar við fráfall
föðursins.
Nú spyrðu e.t.v., hvernig þessi börn
Jósefs gætu verið á nokkurn hátt kölluð
“brasður" Jesú. Svarið við því, er að í
Austurlöndum á dögum Biblíunnar —
og jafnvel enn í dag — var sonarrétt-
urinn ákveðin staða, en fór ekki endi-
lega eftir blóðskyldleika. Þannig gæti
ættleitt barn í sumum tilfellum verið álitið
æðst. í sumum Austurlöndum eru
frændur, hálfbræður og stjúpbræður
líka kallaðir bræður.
Einar V. Arason, þýddi