Innsýn - 01.04.1976, Síða 21
17
LARSON: Þetta er sá áróöur sem aðal-
lega herjar á unga fólkinu í dag. Long-
fellow sagöi: “tónlist er alþjóðlegt
tungumál." Ég hef veriö í meira en 40
löndum um heiminn. Ég hef séö að
sérhver menning á sína eigin tónlist, en
það er ein tegund tónlistar sem þú getur
heyrt alls staöar um heiminn — rokk.
Þaö skiptir ekki máli hvort þaö er í
Caracas, Calcutta, Delhi, Bombay,
Singapore eöa Tokyo, þú getur hvar
sem er í þessum heimi opnaö útvarp og
þar er þaö. Unga fólkið er stööugt í
sambandi viö rokkiö.
FULLER: Á sumum stööum hefur átt sér
stað viðleitni til aö koma rokki inn í
kristna söfnuði. Þaö hafa átt sér staö
rokksamkomur. Getur nokkur brúaö
þaö dýpi sem er á milli rokkhljómleika
og raunverulegrar kristilegrar dagskrár?
LARSON: Sumar evangeliskar kirkjur
leitast við aö nota rokk sem leið til aö
koma fagnaðarerindinu um Krist á fram-
færi. Aðalröksemd þeirra er sú aö ef þaö
er tekið úr samhengi viö hiö veraldlega,
þá sjáist ekki lengur áhrif hins illa. En
þaö er engin leiö aö slíta rokkiö frá
innihaldi þess. Þú getur hreinlega ekki
gert þaö. Mér virðist sem sjálf áhrifin
sem rokkið notar til skírskotunar sé í
hreinni andstööu viö Heilagan Anda.
Með öörum orðum, þaö aö koma fagn-
aðarerindinu á framfæri meö lostafullum
hrynjanda er mjög frábrugðið starfi Heil-
ags Anda, sem er lýst á þann veg aö
hann laði til sín og leiði fólk til Krists.
Þvingandi áhrif tónlistarinnar eru ekki í
samræmi viö þjónustu Heilags anda. Ég
hef verið á nokkrum Jesús rokktónleik-
um, og ef þú hefur aldrei séð þúsund
táninga hrista sig og skekja í takt fyrir
Jesúm, þá hefur þú virkilega misst af
miklu.
LARSON: Ég hef séö þá halda áfram í
fimmtán eöa tuttugu mínútur hverju
sinni, hoppandi og stynjandi og segja
síöan eftir á, “fannstu ekki andann?",
og "var þetta ekki dásamlegt?" Þeir
voru hvattir á lostafullan hátt, en þar
sem þetta var meö trúarlegu yfirbragói
þá leiö þeim þægilega. Þetta var fyrir
Drottinn, sjáöu til. Og þetta er þaö sem
er kallað trúarbragðaleg vakning á ýms-
um stöðum í dag. Guðfræðingurinn
Francis Schaeffer, kallar þetta trúar-
brögö yfirborðsmennsku án innihalds.
Þaö er ekkert fast innihald sem hjálpar
þátttakendum til aö kynnast þeim Kristi
sem þaö kostarfórn aö þjóna.
FULLER: Bob, þú hefur á mjög skýran
hátt sýnt fram á það aö rokktónlistin er
stórkostlegt verkfæri Satans, og þaö er
augljóst aö ef Satan er á bak viö þetta,
þá hefur hann fullkomnaö þaö til slíks
árangurs aö útilokað er fyrir okkur aö
standa í eigin mætti gegn því. Svo að
þaö sem þú ert að segja er þaö, aö
rokktónlistin sé verkfæri Satans og þess
vegna verðum við aö njóta hjálpar Krists
til aö meðhöndla þaö.
LARSON: Án hjálpar Heilags Anda er í
rauninni engin leiö fyrir nokkurn táning
aö standast áhrif tónlistarinnar og þá
félagslegu pressu sem ríkir í samfélagi
okkar í dag. Ég hef meðhöndlað hundr-
uöi ungs fólks á þessu sviði, og þaö
hefur hreinlega ekki kraftinn í sér til aö
gefa rokkið upp á bátinn, og það er
staðreynd. Þaö hefur komiö til mín og
sagt, “ég get ekki hætt því, ég hef
ánetjast. Þetta er eins og eiturlyf." Aö
losa sig undan því er næstum því eins
og að leggja á flótta. Aöeins ákaft traust
á Drottni, og sú trú aö hann muni veita
þá náö að sigrast á þessu fyrirbæri, mun
koma að gagni.
FULLER: Þaö hlýtur aö vera sjón aö sjá.