Innsýn - 01.04.1976, Qupperneq 35
31
BRAUÐ
3 matskeiöar perluger
6 matskeiðar sykur
4 bollar vatn
2 1 /4 matskeið olía
12 bollar hveiti
3 3/4 teskeið salt.
Vatnið sett í fat. Perlugerið og sykur-
inn látið í volgt vatnið. Látið bíða smá-
stund. Olíunni og helmingnum af hveit-
inu bætt út í. Hrært vel. Bætið síðan salti
og því sem eftir er af hveitinu eða nóg til
að auðvelt sé að meðhöndla deigið.
Hnoðað þar til slétt og teygjanlegt. Sett í
skál á hlýjan stað, klútur breiddur yfir,
og látið hefast þar til létt. Það tekur
u.þ.b.11 /2 klst.Skipt í fjóra hluta og sett
í form. Látið hefast aftur u.þ.b. eina klst.
eða þar til brauðin hafa tvöfaldast á
hæð.
Bakist í mjög heitum ofni (450°F) í I5
mín, síðan stillt á 375°F og bakað í 45
mín.
Einnig er hægt að láta brauðin strax
eftir að þau hafa verið sett í formin, inn í
kaldan ofninn, hann síðan stilltur á
375°F og brauðin bökuð í eina klst.
1. Fyrst af öllu er hitastig vökvans
mælt. Vökvinn á að vera volgur. (Gott er
að miða við hitastig baðvatns handa
ungabarni) Þegar þú ert búin að finna
rétt hitastig mælir þú magn vökvans.
2. Gott er að láta deigið standa 10
mínútur þá er auðveldara að hnoða það.
Deigið hnoðað þar til slétt og teygjan-
legt.
3. Skálin þakin með deigum klút til að
varna Þv' skán myndist. Látið standa
á vel volgum stað.
4. Deigið er látiö hefast þar til tvöfalt
að stærð (nógu létt til að fingrafar hald-
ist). Deiginu ýtt niður í miðju, snúið viö í
skálinni. Breitt yfir og látið hefast aftur
þar til næstum tvöfalt að stærð.
5. Skipt ibrauð og þakið með klút.
6. Deigið flatt út, aflangt. Unnið hratt,
loft pressað út.
7. Deigið brotið í tvennt, flatt aftur út.
8. Lyft upp á endunum og togað.
Lamið í borðið nokkrum sinnum til að
lengja deigið.
9. Endarnir brotnir að miðju og flatt
vel með hnúunum.
10. Sú röndin á löngu hliðinni sem er
lengra frá þér er brotin í átt til þín u.þ.b.
' /3 og síðan hliðin á móti, samskeytin
klipin saman.
11. Velt til og hvor endi lokaður vel.
12. Sett í form og sú hliðin sem lokuð
var er látin snúa niður.
13. Þegar brauðin eru sett í ofninn til
bökunar, þarf rétt hitastig að vera í
ofninum. Brauðin látin þannig í ofninn
að formin snerti ekki hvert annað, né
hliðar ofnsins.
14. Strax og brauðin koma úr ofn-
inum eru þau tekin úr formunum svo
þau blotni ekki.
Til að fá mjúka skorpu eru brauð
burstuð með smjöri þegar þau koma úr
ofninum. Einnig er gott að þekja þau
með hreinu viskustykki í nokkrar mín-
útur.