Búskapur hins opinbera 1980-1984 - 01.02.1986, Page 13

Búskapur hins opinbera 1980-1984 - 01.02.1986, Page 13
11 2.2 Búskapur hins opinbera og tengsl hans við almenna þjóðhagsreikninga. Reikningakerfi opinbera búskaparins, eins og það birtist í þessari skýrslu, er hluti af stærra reikningakerfi fyrir þjóðarbúskapinn í heild, sem unnið er samkvæmt þjóðhagsreikningakerfi Sameinuðu þjóðanna, eins og áður hefur verið tekið fram (1). Því kerfi verður ekki lýst hér, heldur látið nægja að vísa í fyrri skýrslur Þjóðhagsstofnunar í ritröðinni um þjóðhagsreikninga, sérstaklega þó skýrslu nr. 3, Framleiðsluuppgjör þjóðhagsreikninga 1973-1980. Hér verður hins vegar fjallað um tengsl þeirrar skýrslugerðar, sem hér birtist, við þj óðhagsreikningagerðina. Hér birtast m.a. tekju- og útgjaldareikningar fyrir opinbera búskapinn. Þjóðhagsreikningakerfi Sameinuðu þjóðanna, eða SNA (A System of National Accounts), gerir ráð fyrir hliðstæðum reikningum fyrir aðra þætti efnahags- starfseminnar. Oftast er miðað við fjóra geira: 1) Fyrirtæki önnur en peningastofnanir. 2) Peningastofnanir. 3) Hið opinbera. 4) Heimilin. Dæmi eru til þess að geirarnir séu fleiri, og eru þá velferðarstofnanir, áhugasamtök og ýmis starfsemi, sem ekki er rekin í ágóðaskyni en er þó á vegum einkaaðila, höfð í sérstökum geira. Einnig geta verið undirflokkar í hverjum ofangreindra fjögurra geira og er skipting hins opinbera í ríki, sveitarfélög og almannatryggingar dæmi um slíkt. Sérhver aðili efnahagsstarfseminnar lendir í einhverjum þessara geira. Takmarkið er að skrá öll viðskipti milli einstakra geira en ekki innbyrðis viðskipti aðila innan sama geira. Við skipulag skýrslu af þessu tagi þarf fyrst að afmarka eða skilgreina umfang hvers geira, þ.e. hvaða starfsemi teljist til fyrirtækja og hver til hins opinbera svo dæmi sé tekið. Skýrslugerð hérlendis fyrir aðra geira en hið opinbera er hins vegar enn ekki að fullu lokið, þótt geirarnir hafi verið afmarkaðir. Geirinn „hið opinbera“ er þannig skilgreindur í þessari skýrslu, að til hans telst sú starfsemi, sem tekna er aflað til með álagningu skatta en ekki með sölu á þjónustu á almennum markaði. Undir þetta heyrir m.a. opinber stjórnsýsla, menntamál og heilbrigðismál og einnig almannatryggingar og aðrar tilfærslur hins opinbera. Aftur á móti eru framleiðslu- og þjónustufyrirtæki hins opinbera talin til fyrirtækjageirans, svo fremi að starfsemi þeirra verði aðskilin frá hinni eiginlegu opinberu starfsemi. Hér koma upp ýmis markavandamál, sem hefur verið leitast við að leysa hverju sinni, þannig að sem best samræmi næðist. Við skilgreiningu á „hinu opinbera“ er leitast við að láta koma fram með markvissum hætti, hver hin raunverulegu opinberu umsvif eru hvort heldur um er að ræða rekstur eða lánastarfsemi. í B-hluta ríkisreiknings er að finna flesta sjóði hins opinbera. Slíkir sjóðir eru ýmist fjármagnaðir með ríkisframlögum og/ eða lántökum. Einnig hafa þeir markaðar tekjur eða aðrar tekjur, s.s. vaxtatekjur. Það kann að orka tvímælis, hvort telja á þessa sjóði sem hluta af „hinu opinbera“ eða sem sjálfstæðar lánastofnanir. Hér er hins vegar leitast við (1) United Nations: A System of National Accounts, sjá heimildaskrá.

x

Búskapur hins opinbera 1980-1984

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búskapur hins opinbera 1980-1984
https://timarit.is/publication/999

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.