Búskapur hins opinbera 1980-1984 - 01.02.1986, Blaðsíða 19
17
7. Menningarmál. Til þessa liðar teljast útgjöld við söfn, svo sem Landbóka-
safnið, Þjóðminjasafnið og Listasafn fslands. Einnig færast undir þennan lið
útgjöld vegna trúmála, svo sem laun presta, prófasta o.fl.
8. Orkumál. Hér færast m.a. útgjöld vegna Orkustofnunar og Rafmagnseftir-
lits ríkisins.
9. Landbúnaðarmál. Með landbúnaðarmálum er hér átt við bæði frumvinnslu
og úrvinnslu landbúnaðarafurða. Til samneyslu undir þessum lið færast
útgjöld vegna Búnaðarfélags íslands, Rannsóknastofnunar landbúnaðarins,
Sauðfjárveikivarna, Veiðimálaskrifstofunnar og Yfirdýralæknis. Land-
græðsla og skógrækt færist undir verga fjármunamyndun.
10. Sjávarútvegsmál. Sjávarútvegsmál taka hér bæði til veiða og vinnslu
sjávarafurða, þó ekki niðursuðu eða niðurlagningar þeirra. Undir þennan
lið færast útgjöld vegna Hafrannsóknastofnunar, Fiskifélags íslands, Rann-
sóknastofnunar fiskiðnaðarins og Framleiðslueftirlits sjávarafurða.
11. Iðnaðarmál. Hér eru m.a. færð útgjöld vegna Iðntæknistofnunar íslands og
Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins.
12. Samgöngumál. Viðhald og stofnkostnaður vega og brúa, ásamt snjómokstri
og öðrum vegamálum, færast hér og þá ýmist sem samneysla eða fjármuna-
myndun, eftir því sem við á. Sama er að segja um útgjöld vegna Vita- og
hafnarmálastofnunar, Siglingarmálastofnunar ríkisins, Rekstrardeildar
ríkisskipa og Flugmálastjórnar. Einnig hafa hér verið færð útgjöld vegna
Bifreiðaeftirlits ríkisins.
13. Önnur útgjöld vegna atvinnuvega. Það eru útgjöld vegna Rannsóknaráðs
ríkisins, Rannsóknastofnana atvinnuveganna, Ríkissáttasemjara, Ferða-
málaráðs, Veðurstofu Islands, Verðlagsstofnunar og aðalaskrifstofu við-
skiptaráðuneytis.
14. Önnur þjónusta hins opinbera eru útgjöld vegna fasteigna o.fl.
B. Sveitarfélög.
1. Opinber stjórnsýsla. Undir þennan lið færist rekstur á aðalskrifstofum
sveitarfélaganna að frádregnum framlögum ýmissa stofnana sem tilfærð
hafa verið.
2. Öryggismál. Hér er talinn kostnaður vegna brunamála og eldvarnaeftirlits.
3. Menntamál. Hér er færður m.a. kostnaður vegna grunnskóla. Launakostn-
aður vegna grunnskóla, sem greiddur er af ríkissjóði og færður þar með
2