Búskapur hins opinbera 1980-1984 - 01.02.1986, Blaðsíða 20
18
launum, er ekki reiknaður með útgjöldum sveitarfélaganna. Aftur á móti
eru greiðslur ríkissjóðs vegna stofnkostnaðar grunnskóla færðar sem
tilfærslur í þessum reikningum, þrátt fyrir það að í reikningshaldi ríkissjóðs
sé þetta skráð sem gjaldfærður stofnkostnaður. Sveitarfélögin sjá hins vegar
um framkvæmdir á grunnskólabyggingum og bókfæra byggingarkostnað hjá
sér, og er þeirri aðferð fylgt hér. Iþróttahús, sem byggð eru sem hluti af
skóla, eru stundum færð sérstaklega sem íþróttahús og flokkuð undir
menningarmál, en ættu að færast með menntamálum, þar sem tilfærslur frá
ríkissjóði vegna slíks húsnæðis eru færðar með menntamálum.
4. Heilbrigðismál. Til þessa liðar telst m.a. kostnaður vegna heilsuverndar og
heilsugæslustöðva, sömuleiðis kostnaður við tannviðgerðir skólabarna.
Heilsugæsla í skólum er hins vegar færð með menntamálum. Rekstur
sjúkrahúsa sem greiddur er með daggjöldum kemur sem útgjöld hjá
almannatryggingakerfinu.
5. Almannatrygginga- og velferðarmál. Útgjöld vegna dagheimila og leikskóla
eru færð hér. Rekstur leikvalla er hins vegar færður með menningarmálum
ásamt útgjöldum vegna annarra útivistarmála. Undir þennan lið færist
einnig heimilishjálp.
6. Húsnæðis-, skipulags- og hreinsunarmál. Undir þennan lið færist m.a.
kostnaður við skrifstofur bæjarverkfræðinga og sorphreinsun. Kostnaður
vegna byggingar íbúðarhúsnæðis hefur hins vegar verið færður sem verg
fjármunamyndun, sömuleiðis kaup á landi vegna skipulags.
7. Menningarmál. Þetta eru útgjöld vegna safna, lista, íþrótta og útivistar.
Eins og getið er um hér að framan eru íþróttahús, sem tilheyra skólahúsn-
æði, stundum færð undir verga fjármunamyndun í menningarmálum, þótt
þau ættu að færast með menntamálum, þar sem tilfærslur frá ríkisstjóði
vegna byggingar slíks húsnæðis eru flokkaðar með menntamálum.
8. Orku-, landbúnaðar-, sjávarútvegs- og iðnaðarmál og önnur útgjöld vegna
atvinnuvega. Hér eru tilfærð ýmis útgjöld vegna einstakra atvinnugreina,
helst er það tengt landbúnaði, s.s. vegna gæslu bæjarlands, forðagæslu og
sauðfj árböðunar.
9. Samgöngumál. Til samgöngumála telst viðhald og stofnkostnaður gatna,
ásamt snjómokstri. Einnig kostnaður vegna annarra umferðamála, svo sem
vegna umferðamerkja og götulýsingar.
10. Önnur þjónusta hins opinbera. Hér eru færð útgjöld vegna reksturs
fasteigna ásamt ýmsum öðrum útgjöldum, sem erfitt hefur verið að setja í
aðra flokka. Kaup á húsum til ótilgreindra nota hafa verið færð hér undir
verga fjármunamyndun.