Búskapur hins opinbera 1980-1984 - 01.02.1986, Síða 25

Búskapur hins opinbera 1980-1984 - 01.02.1986, Síða 25
23 meðaltali. Þetta skýrir að nokkru hærra hlutfall opinberra útgjalda miðað við landsframleiðslu á því ári. Ef litið er á opinber útgjöld á mann á föstu verðlagi (sjá-töflu hér að ofan), þá sést að þau hafa aukist um 4,7% milli áranna 1980 og 1981 og um 3,2% milli áranna 1981 og 1982. Hins vegar drógust þau saman um 0,2% milli áranna 1982 og 1983 og um 8,4% milli áranna 1983 og 1984. Landsframleiðsla á mann jókst aftur á móti um 1,6% milli áranna 1980 og 1981, dróst saman milli áranna 1981 og 1982 um 1,7% og um 6,2% milli áranna 1982 og 1983. Á milli áranna 1983 og 1984 jókst hún aftur um 2,1%. I töflu 1.2 er lýst skiptingu tekna og útgjalda hins opinbera milli ríkis, sveitarfélaga og almannatrygginga á árunum 1980—1984. Þar kemur fram, að af heildarútgjöldum hins opinbera stendur ríkið fyrir um 57,4% að meðaltali á árunum 1980 til 1984. Sveitarfélög standa fyrir um 20,2% og almannatryggingar fyrir um 22,4%. Af tekjuhliðinni sést aftur á móti, að ríkið aflar að meðaltali um 78,7% tekna hins opinbera og sveitarfélög um 21,2%. Skýringin á þessum mun er, að hluti tekna ríkisins rennur til sveitarfélaga og almannatrygginga í formi tekjutilfærslna. 5. Lánahreyfíngar hins opinbera 1980—1984. í eftirfarandi töflu kemur fram, að vergur sparnaður hins opinbera minnkaði stórlega á árinu 1983, eða úr 24,1% að meðaltali af tekjum áranna 1980 til 1982 í 16,4% af tekjum ársins 1983, þ.e.a.s. um 7,7 hundraðshluta af tekjum. 1980 1981 1982 1983 1984 Vergur sparnaður hins opinbera sem hlutfall af tekjum þess. 24,1 24,8 24,1 16,6 26,1 Munar hér mestu um hreinan sparnað ríkisins, sem minnkað hefur sem hlutfall af tekjum úr 19,9%, sem var meðaltal áranna 1980—1982, í 11,5% af tekjum ársins 1983; (sjá töflu 2.4). Sparnaður sveitarfélaga og almannatrygg- ingakerfisins hefur einnig minnkað nokkuð, og þá aðallega á árunum 1982 og 1983. Á árinu 1984 vex hins vegar sparnaður hins opinbera mikið og er 26,2% af tekjum þess. Sá vöxtur á jafnt við um alla þætti hins opinbera, þ.e. ríkið, sveitarfélög og almannatryggingar. Ef litið er á breytingar á sjóði, lánareikning- um og öðrum verðbréfum á árunum 1980—1984, sést að fyrstu þrjú árin er þessi liður um 4—5% af tekjum alls, en verður afar neikvæður á árinu 1983, eða um tæp 7%. Meginbreytinguna má rekja til ríkissjóðs. Á árinu 1984 snýst þetta hlutfall aftur við og verður jákvætt um 9% af tekjum. Sveitarfélögin áttu sinn þátt í þessari bættu stöðu á árinu 1984, og má meðal annars rekja hana til hjöðnunar verðbólgunnar, sem olli rninni rýrnun á tekjustofnum og skatt- greiðslum en fyrri ár. Að öðru leyti kann mjög að orka tvímælis, hvernig túlka ber liðinn „breyting sjóðs, lánareikninga og annarra verðbréfa" því hér er um að ræða nettóhreyfing- ar, og á bak við þær geta leynst breytingar á mikilvægum liðum, svo sem lánahreyfingar inn og út, verðbréfakaup og -sala og fleira. Segja má, að þessi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Búskapur hins opinbera 1980-1984

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búskapur hins opinbera 1980-1984
https://timarit.is/publication/999

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.