Búskapur hins opinbera 1980-1984 - 01.02.1986, Page 27

Búskapur hins opinbera 1980-1984 - 01.02.1986, Page 27
25 í töflunni hér á eftir getur að líta nokkrar tölur um umsvif fyrirtækja í eigu ríkissjóðs, þ.e. B-hluta fyrirtækja samkvæmt ríkisreikningi, og fyrirtækja í eigu Reykjavíkurborgar. Fyrirtæki í eigu ríkissjóðs ’og Reykjavíkurborgar. Vergar Vergar tekjur sem Fjöldi Ár tekjur hlutfali af VLF fyrirtækja m.kr. 1980 ........................ 3.062 19,7% 133 1981 ........................ 4.945 20,6% 135 1982 ........................ 8.154 22,0% 134 1983 ........................ 15.475 24,7% 133 1984 ........................ 20.434 25,1% 124 Af töflunni hér að ofan má ráða, að vergar tekjur opinberra fyrirtækja hafa vaxið jafnt og þétt, og sem hlutfall af vergri landsframleiðslu hafa tekjur þessara fyrirtækja aukist um fjórðung. Hér munar mikið um raforkufyrirtækin. Tekjur þeirra voru um 20,2% af tekjum opinberra fyrirtækja á árinu 1980 en voru komnar í 29,6% á árinu 1984. 6.3 Álagning skatta. Óbein umsvif eða áhrif hins opinbera við álagningu skatta geta komið fram með þeim hætti, að einstökum hópum í þjóðfélaginu er ýmist íþyngt eða ívilnað í samanburði við aðra. Mjög erfitt er að meta umfang og áhrif þess konar skattlagningu hins opinbera. Bæði er erfitt að skilgreina eðlilega skattlagningu og eins að meta í krónutölu tap eða ávinning vegna aðgerða í skattamálum. Hér á eftir eru tekin nokkur dæmi um þetta. Sjómenn njóta sjómannafrádráttar og fiskimannafrádráttar við útreikning á tekjuskattsstofni. Einnig fá námsmenn námsfrádrátt og þeir sem stofna heimili fá hjúskaparafslátt á því ári, sem þeir ganga í hjúskap. Einnig hafa þeir sem hætta störfum og eru eldri en 55 ára möguleika á, með vissum skilyrðum, að draga frá við álagningu skatts vissar tekjur, sem þeir hafa aflað síðustu tólf starfsmánuðina. Hjón hafa í vissum tilfellum möguleika á að nýta sér persónu- afslátt hins til skattalækkunar. Barnafjölskyldur fá greiddar barnabætur, sem koma til beinnar lækkunar á skatti. Á árinu 1984 námu barnabætur og barnabótaauki samtals 880 milljónum króna. Þá eru vissar tekjur, svo sem vaxtatekjur og arður af hlutabréfum, undan- skildar skattlagningu, þó með ákveðnum skilyrðum. Að lokum má geta þess, að ýmis útgjöld einstaklinga geta verið frádráttarbær við útreikning á tekjuskattsstofni, s.s. vaxtagjöld, iðgjöld af lífeyri og lífsábyrgð (þó með vissum skilyrðum) iðgjöld til stéttarfélaga, sjúkrasjóða og styrktar- sjóða, útgjöld til fjárfestingar í atvinnurekstri (þó með vissum skilyrðum), útgjöld til menningarmála o.fl.

x

Búskapur hins opinbera 1980-1984

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búskapur hins opinbera 1980-1984
https://timarit.is/publication/999

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.