Nýtt S.O.S. - 01.06.1958, Blaðsíða 3

Nýtt S.O.S. - 01.06.1958, Blaðsíða 3
Þann 15. desember 1952 ók leigubíll frá Gare Centrale í Marseille, aðaljárnbrautar- stöðinni, með ógnarhraða niður að höfn- inni. Bílstjórarnir í Marseille eru nefni- lega þekktir fyrir ógætilegan akstur. Mað- ur, nokkuð við aldur sat í aftursætinu. Hann kastaðist fram og aftur í sætinu, en hristi bara höfuðið jaolinmóður á svip. Marseille, þú breytist aldreil Húsin þín' í St. Lazare eru eins tötraleg og fyrir 25 árum, þegar ég fór í fyrsta sinn til Bassin National. Þrátt fyrir allt ert þú samt og verður einskonar perla í keðju gömlu, frönsku hafnarbæjanna! Ójá, svona hugsar maður. Hvað væri Miðjarðarhafið, hvað væri Frakkland án þín? Þegar leigubíllinn nam staðar og far- þeginn, herra Boucher, steig út, stóð hann andspænis farþegaskipi, er skyldi flytja hann yfir Miðjarðarhafið í annað sinn, til Egyptalands, sem var hans annað föður- land. Það voru nú liðin 25 ár, næstum upp á dag, síðan hann yfirgaf ættjörð sína og hét til Port Said, hóf starf sitt hjá stjórn Súes-skurðarins. Öll Jressi ár hafði liann aldrei komið til Evrópu, heldur notað hvert sumarleyfi til að skoða sig un> i hin- um stóra heimi Asíulandanna. Það var fyrst nú, að hann fór í sumarleyfi til Frakk- lands. Og nú var liann á leið heim til Port Said. • Einkennileg tilviljun — þá var það sama skipið og í dag — og þó allt annað. Hann var hárviss um, að það var „Champollion", er hann tók sér far með til Indókína fyrir tveim árum. Jæja, samt var „Champillion" ekki alveg eins í dag. Herra Boucher mundi ekki bet- ur en framstefnið hefði verið lóðrétt og reykháfarnir verið þrír og allir svartir eins og vera bar á skipi frá Messageries Maritimes. Úr þrernur reykháfum, þar sem raunar aldrei rauk úr einum, var bú- ið að gera einn reykháf stuttan og sveran, átti að vera nýjasta tízka. Eða }>á bógur- inn! F.ins og skeið lyfti hann sér á öldun- um. F.kkert af glæsibrag nýtízku llnuskipa með oddmynduðu framstefni, skip, er þutu um hafflötinn með miklum hraða. Jú, rétt er það. Nokkrum árum fyrir síðustu heims- styrjöld hafði Champollion ekki verið í förum um hríð. Þá var víst sett ]>etta stefni, sem kennt er við Meier hinn austurríska.

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.