Nýtt S.O.S. - 01.06.1958, Blaðsíða 31

Nýtt S.O.S. - 01.06.1958, Blaðsíða 31
Nýtt S. O. S. 3 fyrrnefnda, áætlaði, að hann ætti fáeinar mílur ófarnar að Lusitaniu. Um leið og skipin fóru hvort fram hjá öðru, lét Wood bátsmann sinn senda boð með fánamerkj- um. „Hefur þú heyrt nokkuð um slysið?“ Áður en Rae,- skipstjóri á City of Exeter gat svarað á merkjamáli, kom Wood auga á sjónpípu kafbáts, sem einhvern veginn liafði komizt á milli skipanna og var nú um það bil mílufjórðung burtu og beint fyrir atfan Etonian, skip hans. Þá fór kafbáturinn í kaf, og sáu þeir það, sem voru á verði á Etonian. Wood hringdi ofan í vélarrúmið og bað um all- an þann hraða, sem unnt var með nokkru móti að láta í té og var ánægður yfir hin- um skjótu svörum. Fáenunr mínútum síðar sá Wood sjón- pípuna koma aftur upp fyrir aftan. Kaf- báturinn elti skipið, en dróst smám saman aftur úr. Wood ætlaði, að hann færi með um það bil tveggja mílna minni hraða en Etonian. Þegar bilið milli Etonian og kafbátsins var farið að aukast, kom Wood, skipstjóri, auga á annan kafbát, sem vaggaði á yfir- borðinu framundan á stjómborða. Hann sveigði þegar frá honum. Kafbáturinn kom á eftir. Að átta mínútum liðnum var kafbátur- inn kominn í kaf. Sjónpípan á hinum fyrri var nú horfin. En bæði skipin, Eton- ian og City of Exeter, liröðuðu sér vestur á bóginn og reyndu að komast svo langt á undan kafbátunum sem auðið var. Skip- stjórarnir voru á einu máli um, að það væri verkefni flotans að koma Lusitaniu til hjálpar. Að öllum líkindum voru Etonian og City of Exeter nær staðnum, þar sem Lusi- tania sökk en yfirmenn þeirra gerðu sér ljóst, því að tvö skip, sennilega Etonian og City of Exeter, sáust frá björgunarbát- unum. Einn þessara báta var undir stjórn El- isabeth Duckworth. Henni hafði ásamt þremenningunum tekizt að draga um það bil 40 menn úr sjónum. Þau Elisabeth voru orðin uppgefin á róðrinum, og þau töldu, að skipin væru að koma þeim til hjálpar. Þau höfðu fylgzt með skipunum og sáu, að þau breyttu stefnu og urðu smám saman minni, unz þau hurfu út fyr- ir sjóndeildarhringinn, en skildu eftir sig tvær reykrákir. Elisabeth hugsaði með sér: „Auðsjáanlega vita þau ekkert af því, hvernig hér er ástatt.“ Þegar Elisabeth kom aftur að togaran- um, Peel 12, röðuðu fiskimennirnir sér við öldustokkinn og hrópuðu húrra fyrir henni og þremenningunum. Þeir, sem björguðust, voru teknir upp í togarann, sem lá kyrr. Bátur Holbourns, prófessors, kom líka að togaranum og jók á farþegafjöldann, sem þegar var orðinn ærinn. Holbourn hjálpaði konunum ofan í fiskilestarnar, þar sem þegar var aragrúi manna fyrir. Hann fór sjálfur aftur upp á þilfar og sat þar skjálfandi. Loks lagðist dráttarbáturinn Stormcock upp að hlið Peel 12, enda var ástand sumra skipbrotsmanna þar um borð orðið ærið ískyggilegt. Áhöfnin á þessum báti, sem var frægur fyrir þá aðstoð, sem hann hafði veitt Austra hinum mikla, sæstrengs- skipinu, tafðist nokkuð við að ná um borð karli og konu, sem héldu sér uppi á léleg- um fleka. W. E. G. Jones, þriðji rafvirki á Lusi- taníu, maður, sem aldrei hafði synt um æfina, hafði haldið sér uppi á ýmsu braki, þangað til hann sá stóran trékassa fljóta

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.