Nýtt S.O.S. - 01.06.1958, Blaðsíða 17

Nýtt S.O.S. - 01.06.1958, Blaðsíða 17
Nýtt S. O. S. 17 þess að róa í land. undir forystu fjórða stýrimanns. Fréttin um þetta fífldjarfa tiltæki fór eins og eldur í sinu um allt skipið. Að fáum mínútum liðnum stóð mikil mann- þyrping, sem ætlaði að sjá hversu til tæk- ist með þetta hættuspil, út við borðstokk- inn á Champollion. Það reyndist miklum erfiðleikum bund- ið að koma bátnum niður bakborðsmeg- in vegna þess, hve skipið hallaðist. Svo leit út lengi vel, að það mundi ekki tak- ast. En loks heppnaðist hinum djörfu sjó- mönnum að koma bátnum niður. Þessi veikbyggða bátskel skall harkalega á sjóinn. Ræðararnir sex og stýrimaður- inn klifruðu niður kaðalstiga. Örskjótt gripu þeir til áranna, ýttu bátnum frá borði og réru mikinn frá skipinu. Nú var um að gera að komast sem fyrst frá skipshlið. Fyrst í stað gekk þessi glæfraferð framar vonum. Strengur var bundinn í þóftu bátsins og honum slakað frá þilfarinu. Á ströndinni fylgdi mannfjöldinn komu bátsins með ugg og eftirvæntingu. Slökkvi- liðsmenn og hermenn skipuðu sér í langa röð með kaðal strengdan á milli sín, til að vera viðbúnir að taka á móti bátnum. Með sterklegum áratogum færðist bátur- inn óðum nær brimgarðinum. Björgunar- liðið óð út í sjóinn, eins langt og fært var. Þarna — há alda reis, brotnaði á rifinu. Nú náði brotsjórinn litlu bátsskelinni; skutur bátsins lyftist, örstutta stund stóð hann beint upp á endann og brotsjórinn hvolfdi sér yfir bátinn. Björgunarliðið" brauzt út í brimið eins langt og nokkur kostur var. Það hafði snör handtök að grípa mennina, er hrökt- ust í brimgarðinum. Björgunarliðið náði mönnunum öllum, og meira að segja bátn- um líka, en hann var á allmjög brotinn. Menn náðu líka línunni, sem var eins og á stóð hið allra mikilvægasta. Kaðli var bundið í línuna og dreginn um borð. Læknar og hjúkrunarmenn önnuðustn nú hina sjóhröktu menn og fluttu þá f sjúkraskýli, en hermenn og slökkviliðs- menn lögðu sig í líma við björgunina. Er kaðallinn hafði verið dreginn um borð, var annar og sterkari dreginn á eftir og loks var sver stálvír strengdur milli skips og lands. En stálvírinn var þungur í vöfum og mönnum varð aflfátt við að strengja hann nægilega vel. Þá var brynvagn Iátinn draga af slakann. Skriðhjólin byrjuðu að mala. Vagninn þumlungaði sig um grýtta brekkuna og þungur stálvírinn mjakaðist hærra og liærra upp úr sjónum. Það drundi ferlega í mótornum. Skriðbcindin snérust og rótuðu upp möl og grjóti. Enn var bara eftir að taka einu sinni vel á, og þá var stálvírinn nægilega strengdur. En — allt í einu kemur ofsakippur. — Brynvagninn þaut áfram. Stálvírinn skall í sjóinn. Fólkið æpir upp yfir sig. Vlrinn hefur slitnað. Sjö menn af áhöfn Cham- pollion hafa hætt lífi sínu til einskis. Farþegarnir voru lostnir skelfingu, er þeir sáu stálvírinn falla í sjóinn. Nú fyrst var Jreim fullljóst, hversu aðstaða björg- unarliðsins var erfið og hættuleg. Þeir sáu, að þeir voru herfang hafsins og feigðin á næsta leiti, en land örskammt undan. Flakið rykktist til, er brotsjóirnir skullu á því. Stundum réttu þeir skipið um fá- einar gráður, en það var aðeins til þess, að það féll þeim mun meira á hliðina i næsta skipti. Hallinn jókst jafnt og þétt; aðstaðan

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.