Nýtt S.O.S. - 01.06.1958, Blaðsíða 21

Nýtt S.O.S. - 01.06.1958, Blaðsíða 21
Nýtt S. O. S. 21 Hann mátti ekki hindra áform þeirra. Svo lét hann setja út kaðalstiga og lét þilfarsmenn aðstoða sjálfboðaliðana. Fýrstu farþegarnir, er lögðu út í lífs- hættuna, voru tvær ungar stúlkur, tvíbura- systur, bróður- eða systurdætur föður Lech- ats. Hann lagði hendur yfir þær og bless- aði þær, áður en þær steyptu sér í hafið. Þær stigu út fyrir skjólborðið og klifruðu niður kaðalstigann. Þær biðu neðst í stig- anum drykklanga stund áður en þær köst- uðu sér í liafrótið. Svo steyptu þær sér í öldurnar. Þær hurfu fyist sjónum í briminu. En brátt sást á tvö liöfuð. Með rösklegum sundtökum fjarlægðust ungu stúlkurnar. Fólkið í flæðarmálinu sá strax, er hinar hugdjörfu stúlkur köstuðu sér til sunds. Nokkrir menn strengdu kaðal á milli sín og óðu á móti þeim. Þeir stóðu í sjónum upp undir axlir og stundum féll yfir þá. Aðra stúlkuna bar óðum nær. Þeir gripu í hendur hennar og hjálpuðu henni upp á ströndina. Henni var borgið. Litlu síðar hjálpuðu þeir hinni systurinni. Sterkum örmum voru þær gripnar og bornar í land. Þar tók hjúkrunarfólk á móti þeim og læknir. Þær voru færðar í þurr föt og lagðar í sjúkravagn. Nú, er fólkið um borð sá með eigin augum, að það var mögulegt að brjótast gegn briminu, ef kjarkur var nægur, fór einn á fætur öðrum niður kaðalstigann og syntu áleiðis til lands. Björgunarliðinu leist ekki á blikuna, er það sá, að örvilnunin rak farþegana í stór- hópum út í brimið. Tvö hundruð metr- arnir milli flaksins og lands voru nú sá örlagavegur, er ósýnt var, hve mörgum heppnaðist að fara, ef hann vildi lífi halda. Tugum saman stóðu slökkviliðsmenn og hermenn í ísköldum sjónum með streng á milli sín og réttu hjálpandi hendur hinu sjóhrakta fólki. Fjórir — fimm björguðust á land heilu og höldnu. Sá sjötti var örendur. Líkið var löðrandi í vélaolíu; olían hafði kom- izt í lungun og kæft hann. Þeir, sem á land komust voru þrotnir að kröftum og var komið tafarlaust í sjúkrahús. Allstór hópur syndandi fólks lenti í olíu- polli og komst þá hvorki áfram né varð bjargað af öðrum vegna- fjarlægðar. Einn eftir annan stukku þessir vesalings menn í djúpið; olían kæfði þá. Þá var Cliampoll- ion r>efið merki um að leyfa ekki fleirum að freista þess að synda í land. Af 70 manns, er syntu til lands, komust að vísu 55 lifandi á land, en 15 létu lífið í olíubrákinni. Nú var þessi síðasta leið lokuð. Skipverj- ar hindruðu þá, sem enn vildu reyna að synda í land, ýttu þeim frá borðstokknum. „Engin má reyna að synda í land! Of mikil hætta! Þér kafnið í olíunni! Verið kyrr um borð! Það eru enn möguleikar til björgunar! Reynið að vera róleg og þolinmóð og treystið guði!“ hrópaði faðir Lechat. Samkvæmt skipun skipstjórans reyndi Desettres, annar vélstjóri, að komast nið- ur ásamt nokkrum mönnum til að ná mat- vælum. Þeir komu tómhentir til baka. Allar vistarverur að c-þilfari voru fullar af sjó. Meira að segja köfunartilraunir hefðu reynzt til einskis. Það var útilokað að kom- ast að vistageymslunni. Hjálparbeiðni barst til fólksins á strönd- inni. „Sendið matvæli og vatn. Við líðum afskaplega!" Enn voru flugvélar sendar af stað með matarpoka og ís. Reyndir foringjar flugu vélunum. Franski flugmálaráðheirann, er

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.