Nýtt S.O.S. - 01.06.1958, Blaðsíða 13

Nýtt S.O.S. - 01.06.1958, Blaðsíða 13
Nýtt S. O. S. 13 Þegar lóðsbáturinn var kominn út fyrir hafnargarðinn næstum endastakkst hann í öldurótinu. Báturinn hófst með feikna mikilli öldu, svo Radwan, er stóð við stýr- ið, hafði næstum misst fótanna. Báturinn hvarf í öldudalinn, og svo leit út, að enda- loka væri skammt að bíða, er næsti sjór skall á lionum. En hann hófst upp, sjór- inn rann út á bæði borð. Vélin var ger- semi, gangviss með afbrigðum. Það skipti mestu máli. Um klukkan 5,30 var báturinn kominn á staðinn. Radwan horfði hvössum augum í þá átt, sem Champollion var von. Það var ekki létt verk að halda bátnum í horfinu þarna úti á opnu hafi. Það kom sér vel, að þeir bræður voru sjógarpar. Þeir biðu stundarfjórðung eftir stund- arfjórðung og ekki sáust ljósin á farþega- skipinu. Það hefði þó átt að vera komið í sjónmál fyrir löngu vegna Iiins sterka meðbyrs. Klukkan varð sex — hálf sjö — og ekki sást til Champollion. Lóðsbáturinn hafði ekki loftskeytatæki og gat því ekki spurzt fyrir um, hvort ný tilkynning hefði kom- ið frá skipinu. Nú var ekki nema tvennt til að áliti Radtvans: að halda til hafnar og leita frétta, eða bíða um sinn. í veðri sem þessu var sá kostur allt annað en góð- ur. En hann ákvað samt að bíða. Hvað mundi skipstjórinn hugsa, ef hann kæmi og lóðsbáturinn væri ekki á sínum stað? En honum var allt annað en rótt. Bróð- ir hans, er var kominn upp í stýrishúsið og skorðaði sig þar skildi hvorki upp né niður, hvað hefði tafið skipið. „Annað hvort er, að tilkynningin til okkar hefur verið á misskilningi byggð, eða vélar skipsins hafa bilað! — Eigum við ekki að snúa heim og fá fréttir. Hér kemur maginn upp í hálsinn á manni!“ Bróðir hans var enn í vafa um, hvað gera skyldi, er þeir allt í einu heyrðu mik- il liróp á bak við sig. Lítill mótorbátur lxafði komið frá bækistöðvum hafnsögu- manna án þess að þeir tæki eftir því. Hann nam staðar í kallfæri við lóðsbátinn og þeir kölluðu í gjallarhorn: „Halló — Radwan! — Orðsending frá Elchat Elmalhoun: Stórt farþegaskip með einum reykháf strandað! Þeir hafa sent út neyðarmerki!" „Stórt farþegaskip með einum reykháf?" Bræðurnir horfðu óttaslegnir hvor á annan. Það gat ekki verið um annað skip að ræða en Champollion! „Það er þetta helvítis rif hjá Elchat EI- malhoun! Höldum af stað til baka!“ Þrátt fyrir haugasjó tók lóðsbáturinn mjög krappa beygju. Báðir bátarnir héldu til hafnar hið skjótasta. Bræðurnir höfðu vart fest bátinn, er þeir fengu staðfestingu á því, er skeð hafði. Gegnt rifinu við Elmalhoun höfðu strandverðir bækistöð sína, um 50 metra frá ströndinni. Þar dvöldu þrír hermenn. Þeir höfðu símað, að í dögun hefði komið stórt skip með fullum Ijósum og stefnt beint upp að ströndinni. Á síðustu stundu virtist sem tekið hefði verið eftir því að skipið var ekki á réttri leið. Skipið hafði allt í einu reynt að beygja á stjórnboða. En það var um seinan. Að vísu hafði það snúið til hálfs, svo hlið þess snéri að ströndinni ,en þá tók það niðri og fékk sig hvergi hrært. Það hafði stefnt á rifið, er var rúma 200 metra und- an ströndinni, með fullum hraða. Fréttin um strand Champollion fór eins og eldur í sinu um Beirut á örskammri stundu. Slökkvilið, hermenn og björgunar- bátar var kallað á vettvang. Forvitið fólk þusti til strandar hundruðum saman þrátt

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.