Nýtt S.O.S. - 01.06.1958, Blaðsíða 14

Nýtt S.O.S. - 01.06.1958, Blaðsíða 14
14 Nýtt S. O. S. fyrir storm og regn 'til þess að vera vitni að því, er stórskp strandaði. Það var með öllu óskiljanlegt, hvernig annað eins og þetta gat viljað til. Skip- stjórinn hafði oft og mörgum sinnum far- ið þessa leið og jafn oft komið til hafnar í Beirut. Hvað hafði komið fyrir, að skip- ið skyldi stefna beint á ströndina í stað þess að halda venjulega leið inn á höfn- ina? Skipstjóri, stýrimaður og aðrir, er voru á vakt, er Champollion strandaði, voru í rauninni eins undrandi og fólkið, er skundaði til strandarinnar. Öll vaktin hafði séð ljósbfossa vitans með eigin augum og vissi, að þetta var vitinn í Beirut. Stefnan, sem tekin var, var nákvæmlega sú sama og jafnan áður. En þá hlaut eitthvað að hafa gerzt er ruglaði skipstjórann í ríminu og stýri- manninn, er var á vakt. Þegar stefnan var tekin samkvæmt af- stöðu frá vitanum í Beirut og varðbergs- maðurinn tók að skyggnast eftir lóðsbátn- um, en hans var von á hverri stundu. hrópaði vaktmaður, er hafðist við út við brúarvæng bakborðsmegin. „Ljós þvert á bakborða!“ En næstum í sömu andrá veittu menn athygli grænu og hvítu ljósi, er sendu út geisla sína á víxl. Skipstjóri og stýrimaður litu livor á annan og varð sýnilega ekki um sel. Vit- inn í Beirut sýndi ekki grænt ljós! En áður en mönnum var ljóst, hvað var á seiði, hrópaði vaktmaðurinn á brúar- vængnúm: „Brimgarður framundan!“ Hann hafði komið auga á hvítan brim- garðinn þó dimmt væri, Jrví hann skar vel úr við svartan sandinn. Næstum samstundis sá skipstjóri hvað var að ske. í sömu andrá eru skipanir sendar í vél- arrúm og lagði hart á stýrið. Þrátt fyrir þungan sjó var furðu auðvelt að snúa skip- inu,. en allt í einu titrar Champollion stafna á milli og bifast ekki lengur. Þá hafði Jiað óskiljanlega skeð. En hvernig? Skipið var strandað hér um bil 3 km. suður af innsiglingunni til Beirut á í'if- inu við Elchat Elmalhoun. Næstum samstundis slokknaði ljósið, er hafði beint skipinu á þessar villigötur, svo menn trúðu því helzt, að einhver myrkravöld væru hér að verki. En nú fór að birta smám saman og menn sáu ströndina greinilega og landið að baki hennar. Og þá var gátan ráðin. Nokkra kílómetra inni í landinu, ná- kvæmlega í þeim stefnu, er Champollion hafði tekið, var nýgerður flugvöllur, Kha- edé. Við enda hans var há súla og í toppi hennar viðvörunar- og leiðarljós. Flugvöli- urinn iiafði enn ekki verið opnaður til um- ferðar, að minnsta kosti ekki opinberlega. En nú stóð svo á, að flugvél var á lofti, er ætlaði að lenda á þessum velli ; þess vegna blikaði þetta iivíta ljós með nákvæmlega sama millibili og vitinn í Beirut. Hins vegar sást græna ljósið ekki fyrr, en kom- ið var nær. Ljósið, er mennirnir á stjórn- palli fai'þegaskipsins töldu vera leiðarljós- ið við innsiglinguna til Beirut, og sem stefnan var tekin eftir, var Ijósið við flug- völlinn. Vegna þess, að flugvöllurinn hafði ekki verið opnaður formlega, var þessi viti vallarins hvorki skráður í handbók sjó- manna né á sjókort og í blöðum hafði heldur ekki verið getið um þetta ljós við flugvöllinn. Þetta afdrifaríka skeytingarleysi olli

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.