Nýtt S.O.S. - 01.06.1958, Blaðsíða 16

Nýtt S.O.S. - 01.06.1958, Blaðsíða 16
á, sem rétt var, var það, að lega skipsins var mjög viðsjárverð. Skipstjórnarmenn voru mjög áhyggjufullir. Allir sjómenn vita að skip, sein strandar á grynningum er í mikilli hættu, jafnvel þó svo virðist ekki í fljótu bragði. Aðstaðan var i sann- leika sagt mjög slæm. Leki kom að skipinu á mörgum stöðum, er það tók niðri. Þeir, sem í vélasál unnu, urðu að hörfa hið skjótasta eftir að eldar höfðu verið skar- aðir út úr kötlunum. Hin skyndilega dauðakyrrð í vélasal var válegur fyrirboði. Þá fóru í hönd dauða- stundir þessa glæsilega farþegaskips. Skip- ið seig meira og meira á hliðina vegna vaxandi leka. Er rafmagnsvélarnar stöðv- uðust slokknuðu öll ljós á skipinu. Hér og þar lýstu neyðarljós dauflega. Sjórinn, sem stöðugt en hægt streymdi inn í skipið og vaxandi hliðarhalli, var engan veginn einasta hættan. Þar sem fast- ur botn var ekki nema undir nokkrum hluta skipsins var hætt við, að það þyldi ekki átök brimsins til lengdar, heldur lið- aðist sundur, brotnaði í tvennt. Úr því sem komið var, var allt undir því komið, að storminn lægði bráðlega. Þegar fyrsti stýrimaður sagði fólkinu, að veðurútlit færi batnandi, var hann ein- ungis að friða það í svipinn. Þvert á móti var það svo, áð loftvogin féll stöðugt og síðasta veðurspáin var allt annað en góð. Yfirmenn skipsins gerðu þegar ýmsar ráðstafanir. Þeir treystu því ekki, að hjálp gæti komið úr landi. Skipstjórinn lét ekki nægja að láta senda út neyðarköll og taka á móti svörum nálægra skipa. Létt brezk beitisnekkja „Kenya“ lét úr höfn í Port Said og einnig franska flutningaskipið ,,Syrie“. Skipin tilkynntu komu sína og buðu fram aðstoð. En þau gátu enga að- stoð veitt Champollion, af þeirri einföldu ástæðu, að ekki var unnt að komast nógu nálægt strandaða skipinu. Nei, skipsmenn urðu sjálfir að ná sam- bandi við land til þess að koma farþegun- um frá borði, eftir að fyrsta tilraunin úr landi hafði misheppnazt. Línubyssa var liöfð til taks og skyldi skjóta streng í land. Þrjár tilraunir voru gerðar, en stormurinn gerði það að verk- um, að línan féll í sjóinn miðja vegu milli skips og lands. Það varð því að finna aðra leið til þess að ná sambandi við land. En hvaða leið? Bourde skipstjóri ráðgaðist um málið við fyrsta stýrimann og yfirvélstjórann. Þeim kom saman um, að aðeins einn kostur væri fyrir hendi og þó allt annað en góð- ur. Hann var sá, að manna bát, er færi frá skipinu með dráttartaug í land. Ekki var viðlit að koma börgunarbát- um út og láta flytja farþegana í land með þeim hætti. Fyrsti stýrimaður kvaddi alla þilfarsá- höfnina á sinn fund. „Eg þarf að fá sex sjálfboðaliða til þess að manna bát og koma streng í land,“ á- varpaði hann um sextíu sjómenn, er stóðu í lmapp kringum hann. í sama bili voru allar hendur á lofti. Ekki einn einasti hikaði við að leggja líf sitt í liættu til þess að reyna að bjarga farþegunum. Blachére varð að velja. Hann valdi úr hópnum sex dugmikla sjómenn. Hann miðaði val sitt við það, að mennirnir ættu ekki fyrir fjölskyldum að sjá. Hann vissi vel, að þetta var harla tvísýnt tiltæki, og raunar litlar horfur á, að takast mætti að komast í land. > Áhöfnin skyldi nú í snatri gera sjóklár- an minsta léttbátinn um borð og freista

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.