Nýtt S.O.S. - 01.06.1958, Síða 20

Nýtt S.O.S. - 01.06.1958, Síða 20
20 Nytt. S. ö. S. Eftir betra veðri? Eftir hjálp frá öðrum skipum? Frá landi? Allt virtist vonlaust. Allt, sem hugsanlegt var hafði þegar ver- ið reynt. Eftir var aðeins ein veik von: Þegar sjó- inn lægði mundu koma bátar úr landi og hefja björgun. En sú von virtist ekki ætla að rætast. Stormurinn var enn hamslaus og hafrótið að sama skapi. Það var engu líkara en höf- uðskepnurnar mundu engu eira fyrr en þetta vesæla flak væri mulið niður í hafið. Farþegarnir voru hörmulega á sig komn- ir, þar sem þeir húktu í borðsalnum, öðr- um meein. En einn var sá meðal farþega, er reyndi að miðla öðrum huggun og von: Faðir Pére Lechart. Mennirnir, er krupu að fótum hans voru ekki lengur pílagrím- ar, farþegar, ferðamenn, heldur þjakaðir menn, slegnir clauðans angist. Örlög þeirra voru í hendi guðs. Faðir Lechart talaði til fólksins hárri röddu. Hún yfirgnæfði þungar drunur brotsjóanna, stunur þeirra sjúku og hung- urvein barnanna. „Á stund neyðarinnar hefur vor almátt- ugi guð breitt sinn náðarfaðm móti oss, ef við aumir menn höfum snúið okkur til hans. Látum oss því biðjal — í nafni föð- ur og sonar ..." Hópur trúaðra, örvilnaðra sálna drúpti höfði og spennti greipar: „Faðir, verði þinn vilji . . .“ * Hin lengsta og hörmulegasta nótt líður líka eins og aðrar nætur. Þegar dagur rann 23. desember 1952, lágu báðir skipshlutar Champollion enn á rifinu. En útliti þessa hart leikna flaks er vart hægt að lýsa. Borðstokkurinn stjórnborðsmegin lá í sjó. Allar rúður í gluggum brotnar þeim meg- in. Brotsjóirnir höfðu brotið og bramlað það sem brotnað gat á hallandi þilfarinu. Hvarvetna blöstu við rústir og eyðilegg- ing. Á bakborðssíðu, er reis hátt og uggvæn- lega upp úr sjónum, höfðust við tvö hundr- uð manns, aumkvunarlega á sig komnir og biðu langjjráðrar björgunar. Um nóttina hafði brezka beitisnekkj- an „Kenya“ komið í námunda við hið strandaða skip. „Kenya“ lá fyrir akker- um í 3000 metra fjarlægð frá strandstaðn- um og gat ekkert aðhafzt annað en hella olíu í sjóinn, ef verða mætti til þess að draga úr afli brotsjóanna. Skipið risti svo djúpt, að það rnátti ekki koma nær Champ ollion. Franska flutningaskipið „Lyrie“ var komið á vettvang, en fékk ekkert að gert. Hafrótið var enn of mikið til Jress, að tiltækilegt væri að skjóta út báti. Þeim hefði hvolft um leið og þeir snertu sjóinn. Á ströndinni var nú aftur orðið mann- margt. Hjálparlið reiðubúið — en ekkert hægt að gera fyrir skipbrotsmennina á Champollion, því enn geisaði sama of- viðrið. Þessi vonlausa aðstaða varð til þess, að hugdjörfustu mennirnir um borð í Cham- pollion tóku frumkvæðið í sínar hendur. Þeir báðu föður Lechart að tilkynna skip- stjóranum, að þeir væru reiðubúnir að stökkva frá borði og reyna að ná landi á sundi. Þetta var að þeirra dómi einasta leiðin til bjargar. Bourde skipstjóri hikaði. Var honum leyfilegt að leggja farþega skipsins í slíka lífshættu? Það var harla ótrúlegt að nokk- ur maður slyppi lífs á land í slíku ofsa- brimi. En nú var líka meiri hætta en nokkru sinni fyrr á því, að skipinu hvolfdi. Þá voru allir ofurseldir dauðanum.

x

Nýtt S.O.S.

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.