Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Side 8
518
Frá Englandi.
[Stel'nir
sitja við sinn keip hvað sem
flokksstjórnin segði og eiga á
hættu að flokkurinn klofnaði.
Hér var með öðrum orðum að
velja milli þjóðarheillar og
flokkshagsmuna.
MacDonald og Snowden völdu
þann kostinn að fylgja því, sem
þeir töldu þjóðarnauðsyn. Báru
þeir málið fram í stjórninni, en
ráðherrarnir allir, að tveim
undanskildum vildu heldur
fylgja flokknum. Sama var um
þingflokkinn. Hann fylgdi yfir-
leitt allur flokksstjórninni. Mátti
því heita að þeir MacDonald og
Snowden stæði einir uppi. Með
þeim þeim var þó I. H. Thomas,
sem var einn af gömlum leið-
togum flokksins, en Henderson,
fjórði höfuðleiðtoginn, skildi við
þá, og gerðist riú foringi verka-
mannaflokksins.
Mótmælafundir voru haldnir,
og fékk meðal annars MacDon-
ald áskorun að segja af sér
þingmennsku.
MacDonald snýr sér til hinna
flokkanna.
Þegar flokksmenn þeirra
snerust þannig við nauðsynleg-
um umbótatillögum og sögðu
foringjum sínum upp trú og holl-
ustu, var ekki annað að gera en
að snúa sér til hinna flokkanna.
Átti MacDonald tal við Stanley
Baldwin, foringi íhaldsflokks-
ins og Sir Herbert Samuel, sem
var foringi frjálslyndra í veikinda-
forföllum Lloyd Georges. Féllust
þeir á, að veita honum allan
styrk sinn til þess að koma til-
lögunum í framkvæmd.
Þjóðstjórnin.
Sagði svo MacDonald af sérr
en var falið að mynda stjórn
aftur. Var það hin svokallaða
þjóðstjórn (bráðabirgðar-þjóð-
stjórnin). í henni voru aðeins
10 aðalráðherrar, fjórir verka-
mannaráðherrar, fjórir íhalds-
menn og tveir frjálslyndir. Er það
fámennasta ráðuneyti, sem verið
hefir á Englandi síðan á ófriðar-
tímunum. Meðal ráðherra utan
ráðuneytisins (cabinet) voru ýms-
ir stór-merkir menn, eins og t. d.
Austen Camberlain.
Þegar þingið kom saman, 8.
sept., hafði stjórn þessi meiri
hluta, sem nam h. u. b. 60 at-
kvæðum. Kom þá fljótt í ljósr
að íhaldsmennirnir óskuðu ein-
dregið eftir því, að kosningar
væri látnar fara fram til þess að
þjóðinni væri gefinn kostur á að
segja álit sitt á þessum ráðstöf-
unurn. Aftur á móti voru frjáls-