Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Page 60

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Page 60
570 Hvernig á að sætta fjármagn og vinnu? [Stefnir er búið að lækna það. En eg er hiklaust á þeirri skoðun, sem Erasmus frá Rotterdam lét í ljós á siðaskiftatímunum, að lækning beri að beita meðan þess er kost- ur. — Ef litið er á málið, sést líka, að í raun og veru stendur hin gamla klassíska hagfræði i fullu gildi. Enn er frjáls samkeppni einhlít til þess, að tryggja mönn- um rétt verð á vöru,- ef hún fær að njóta sín. Enn er arðs- og gróðavon þeim sjálfum til handa, hvassasti spori á framtak manna. Enn má segja, að einstakling- anna hagur sé ríkisins hagur. En það eru komnar snurður á þenn- an þráð, snurður, sem ótrúlegt má virðast, ef ekki er hægt að koma af, ef nokkur vilji, vit og sanngirni er til í mönnum, eða jafnvel bara ef vitið er í lagi hjá þeim, sem fjármagninu ráða, svo að þeir sjái hættuna. Vinnan og fjármagnið verða að sættast, ekki upp á það, að annað gefi hinu neitt, heldur upp á það, að bæði græði, því að öðru er ekki að treysta en löngun manna að komast af. — í allra þágu verður að sjá svo um, að einstaklingsframtakið rýrni ekki. Heldur ætti að herða á því, með því að færa kvíar þess út. En bardagann milli fjár'- magns og vinnu á að stöðva, með því að gera bardagaefnið að engu. Þá hættir hann, eins og vatn stöðvast ef hallinn hættir. Það var alsiða hér áður, að sefa ófrið milli kónga með því að gifta sam- an börn þeirra. Þetta gat stund- um gefist vel. Það er alls ekki ómögulegt, að gera mætti eitt- hvað svipað hér. Fulltrúar vinn- unnar, starfsmennirnir, og full- trúar fjármagnsins, eigendurn- ir þurfa að tengjast þannig, að þeir geti ekki barist öðruvísi en þannig, að þeir bex’jist móti sjálf- um sér. — En það er bezt að- segja það strax í byrjun, að góð- um árangri verður ekki náð nema með nokkurskonar stjórn- arbyltingu, að vísu alveg óblóð- ugri, en þó þannig, að menn verða að venja sig að nokkru leyti á nýjan hugsanaferil, eins og æfinlega eftir allar stjórnar- byltingar. Hugtakið fjármagn og' hugtakið vinna, verða að nokkru leyti að skifta um sæti. Tilraunir að leysa vandamálið. Víðsýnir og vitrir fjármála- menn hafa fyrir löngu séð, að hér þarf aðgerða við, og þeir hafa gert ýtarlegar tilraunir að leysa vandamálið. — Hafa þeir

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.