Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Side 22

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Side 22
532 er eyjan Gotland, sem liggur alveg út af fyrir sig og kýs 3 þingmenn. Hin kjördæmin kjósa frá 6 til 16 þingmenn hvert. Þingmannatala hvers kjördæmis er þó ekki lögókveðin, heldur er hún algjörlega háð fólksfjöldan- um. Tala þingmanna er 230, og kosið er til fjögurra ára. Fyrir hverjar kosningar er gefin út konungleg auglýsing um það, hve marga þingmenn hvert kjördæmi skuli fá, miðað við fólksfjölda í kjördæminu í ársbyrjun. Þannig kom t. d. við kosningarnar í sept. 1924 einn þingmaður á hverja 26.112 íbúa. í þetta sinn bættu þrjú kjördæmi við sig ein- um þingmanni hvert, vegna fólks fjölgunar, en þrjú kjördæmi misstu einn þingmann hvert. — Auðvitað getur íbúatala á hvern þingmann ekki orðið alveg hníf- jöfn innan þessara mörgu kjör- dæma, en munurinn er í þetta sinn ekki meiri en svo, að utan Gotlands komu mest 28.004 í- búar og minnst 24.733 íbúar á hvern þingmann. Fjölmennasta kjördæmið var höfuðborgin, Stockholm, með 16 þingmenn og 26.863 íbúa á hvern þeirra. Jafn- rétti borgaranna, hvar sem þeir eru búsettir í landinu, er þannig tryggt svo rækilega sem sam- [Stefmr rýmst getur nokkurri kjördæma- skiftingu. Innan hvers kjördæmis er kos- ið með hlutfallskosningu. Til- högunin veitir hverjum einstök- um kjósanda víðtækan rétt til þess að láta afstöðu sína ná- kvæmlega í ljósi. Fyrir utan þann sjálfsagða rétt, að gefa þeim flokki atkvæði sitt, sem hann helzt vill styðja, er honum einnig heimilt að tiltaka hvaða undirflokk (underparti, fraction) hann kýs, ef mismunandi stefn- ur eru til innan sama flokks^ Getur þetta haft áhrif á skipun þingsætatölu innanflokks, en breytir engu um útreikninginn á þingsætatölu aðalflokkanna. — Ennfremur geta skyldir aðal- flokkar sameinað sig um fram- boðslista í þeim kjördæmum, er hentugt þyki. Við slíkar hlutfallskosningar í afmörkuðum kjördæmum fer ávallt eitthvað af atkvæðum til ónýtis. Flokkur, sem er of fá- mennur í einu kjördæmi til þess að koma manni að, og er ekki í kosningabandalagi við neinn ann an flokk, glatar atkvæðum sín- um. Einnig má segja, að flokkur,. sem kemur fleiri eða færri fram- bjóðendum að, glati þeim at- kvæðum, sem hann hefir um- Kosningatilhögun frændþjóðanna.

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.