Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Side 46

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Side 46
556 íslendingar í Danmörku. [Stefnir Haraldur Sigurðsson. Anna Borg. Guðmundur Kamban. ei mannfróður í bezta lagi, og mun hafa um talsvert langt skeið safnað til sögu íslendinga í Danmörku. Eða að minnsta kosti virðist ekki annað hugsanlegt þeim, er les bók hans um þetta efni. Þar er svo mikill og dreifð- ur fróðleikur saman kominn, að 'óhugsandi er, að því hafi verið safnað á skömmum tíma. — Er bókin 254 bls. og hlaðin æfiá- gripum. Skiftir höf. fólki þessu eftir lífsstöðu, og eru kaflarnir þessir: I. Andlegrar stéttar menn. II. Lagamenn. III. Læknar. IV. Skólamenn. V. Aðrir vísinda og fræðimenn. VI. Skáld og lista- menn. VII. Hermenn, skrifstofu- og sýslunarmenn. VIII. Iðnaðar- menn. IX. Kaupmenn og sigl- ingamenn. X. íslenzkar konur. — Má af þessu yfirliti sjá, að íslendingar í Danmörku hafa ekki verið við eina fjölina felld- ir. Er yfirleitt gaman að sjá, hve prýðilega íslendingar hafa kom- ist til manns í Danmörku. Þeir hafa þar áreiðanlega staðist sam- keppnina. Margir þeirra hafa komist til auðSj og valda, stundað vísindi og listir og orðið frægii’ menn. Væri gaman að nefna hér dæmi, en rúmið leyfir ]*eð ekki. Verða menn að fá sér bókina og lesa sjálfir. Bókin er prýdd sæg mynda (148), og hefir höf. lánað Stefni nokkrar, sem sýnishorn. Stefnir mælir hið bezta með þessari stór-fróðlegu bók. Hver sem hana eignast mun oft vilja til hennar grípa. Hún verður ekki dauð byrði í bókaskápn- um. M. J■

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.