Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Side 67

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Side 67
Stefnir] Hvernig á að sætta fjármagn og vinnu? 577 það eru því þeir, sem. eiga að gjalda eða njóta. Það veltur á ákaflega miklu fyrir fyrirtækið, hvort þeir eru ánægðir, starfsfús- ir og áhugasamir eða ef til vill þvert á móti. — Auðvitað geta svo sömu mennirnir verið full- trúar hvors tveggja og eru það mjög oft. Þeir eiga fé sitt í fyr- irtækinu og vinna jafnframt við það. Erfiðleikar að fá fé. Meginþröskuldurinn er því sá, að menn sætti sig ekki við þessa hugsun, og þetta verði því til þess, að fé fáist ekki til. fyrir- tækjanna. Hefir það verið oi’ð- að svo af andmælöndum, að með þessu sé sett takmörk á arðinn án þess að veita trygging fyrir þeim ákveðna arði. Bankar og út- gefendur skuldabréfa, svo sem ríki og bæir, borgi að vísu ákveð- inn og oftast fremur lágan arð, en þeir veita líka frekustu trygg- ingar fyrir því, að sá arður verði greiddur. I raun og veru eru þessar mót- bárur ekki veigamiklar. Eins og nú hagar til, er arður hluta- bréfa ákaflega óviss, og í lang- flestum tilfellum mættu því hluthafar fagna þeirri breyting, að arðurinn yrði eitthvað trygg- ari, þó að jafnframt væri reist- ar skorður við því, að hann færi upp úr einhverju ákveðnu há- marki, t. d. bankavöxtum. Og það er alveg víst, að ekkert get- ur þá tryggt hluthöfum arð ef ekki sú vissa allra starfsmanna, að á eftir ákveðinni hundraðstölu af hlutafénu, eigi þeir sjálfir all- an ágóðann. Þá er og þess að gæta, að ])ó að arður af hlutafé sé aldrei eins viss og t. d. vextir af banka- inneign eða ríkisskuldabréfum, þá dettur ekki heldur neinum í hug, að ákveða hlutafjárarðinn jafn háan. Við getum tekið til dæmis, að. menn fái af fé á inn- lánsskýrteini 5% og svipað af veðdeildarbréfum eða ríkis- skuldabi’éfum. Þá mætti ákveða hluthafaarð t. d. 7%, og auk þess, næst á eftir þeim arði 2— 4% áhættugjald, eftir því hvaða fyrirtæki á í hlut. Þá er og nátt- úrlega frjálst að ákveða, að þegar arður er mikill skuli hluta- bréf fá arð jafnhliða vinnuhluta- bréfum t. d. upp að 10%. Að- eins verður að gæta þess tvenns, að hafa þetta fastmælum bund- ið, og að arðsvon vinnuhlutanna verði veruleg. 37

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.