Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Síða 32
542
Kosningatilhögun frændþjóðanna.
[Stefnii
og Danir, lögleitt hjá sér þessa
kosningatilhögun, sem Hannes
Hafstein vildi innleiða hér.
Svíar tóku hana fyrst upp 1909,
en kjördæmin voru svo mörg,
56 alls fyrir 230 þingmenn, að
þótt hlutfalskosning væri innan
hvers kjördæmis, þá náðist ekki
nægilegt flokkslegt réttlæti. Þeir
fækkuðu kjördæmunum 1921
niður í 28. Fólksfjöldinn er
lagður til grundvallar við á-
kvörðun fulltrúatölu hvers kjör-
dæmis. Þetta eru nákvæmlega
sömu grundvallarreglur og frum-
varp H. Hafsteins var byggt á.
Norðmenn settu sín hlutfalls-
kosningalög árið 1919, og hafa
vikið dálítið frá reglunni um að
fulltrúatala kjördæma sé í
réttu hlutfalli við fóíksfjölda.
Höfuðstaðurinn fær ekkj þá
fulltrúatölu, sem honum ber eft-
ir fólksfjölda, en fámennari
kaupstaðakjördæmin fá tilsvar-
andi uppbót á sinni fulltrúatölu.
Þéttbýlasta sveitafylkið fær ekki
heldur fulltrúatölu eftir fólks-
l'jölda, en þeirrar uppbótar njóta
fámennustu sveitafylkr:. En að
þessum undantekningum frá-
töldum miðast fulltrúatala nokk-
urnveginn við fólksfjölda í
hverju kjördæmi. Danir hafa al-
veg vikið frá reglunni um hlut-
fall fólksfjölda og fulltrúatölu,
en þeir gera atkvæðisrétt borg-
aranna alveg flokkslega jafnan
með uppbótarsætum ofan á hlut-
fallskosningu kjördæmanna. Og
þeir hafa varðveitt mjög mikið
úr hinni eldri kosningatilhögun
með því að láta gömlu kjördæm-
in halda sér sem framboðsum-
dæmi með sérstökum kjörstjórn-
um og þar með áhrifavaldinu a
það, hverjir verði í kjöri.
Engin kosningatilhögun er al-
veg gallalaus. í öllum löndum,
sem byggja stjórnarskipun sína
á lýðræðisgrunvelli og þingræði,
hafa menn rekið sig á sömu
vandamálin, sem ráða þurfti
fram úr til þess að fá viðunandi
réttlæti og hagkvæmni í skipun
löggjafarþinganna. — Allsstaðar
hafa menn orðið að leggja ósk-
irnar og kröfurnar á metaskál-
arnar, og koma sér saman um
einhverja þá úrlausn, sem sam-
rýmst gat grundvelli lýðræðis-
ins og tekið svo mikið tillit til
staðhátta og sérstakra óska, sem
fært þótt án þess að yfirgefa
sjálfan grundvöllinn. — Víðast
hvar, og einnig hjá frændþjóðum
vorum, hefir farið fram ýtar-
leg rannsókn og nákvæm yfir-