Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Side 95

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Side 95
Stefnir] Kviksettur. 605 Stærsta úrval í borginni af allskonar vef naðarvörum. Tilbúinn fatnaður, ytri og innri, fyrir konur, karla og bðrn. Hlífðarföt, feikna úrval. — Smávara allskonar. O. fl. o. fl. MARTEINN EINARSSON & CO. PÓSTHÓLF 256 — REYKJAVÍK — SÍMAR 315 og 1495. ,,Eg hefi ekki sett nafn mitt á nokkra mynd í tuttugu ár“, svar- aði Priam. ,,Það væri líka stakasti óþarfi“, svaraði Oxford. „Hver þumlung- ur í myndum yðar er eins og nafn yðar væri letrað á hann. Það er sérréttindi, sem mestu meist- arar veraldarinnar hafa, að láta vera að setja stafi sína á mynd- irnar. í mínum augum er hver mynd yðar með nafni. En það er ekki svo um alla. Menn vilja fá sönnun. Af því stafar öll ógæf- an“. „Ógæfan?" „Já“, svaraði Oxford. „Eg verð að segja yður upp alla sög- una, til þess að þér skiljið hvern- ig komið er“. Hann setti á sig hátíðlegan svip. „Fyrir nokkru síðan kom til mín maður og bauð mér mynd til kaups. Hann var auðsjáanlega smákaupmaður. En eg þekkti á svipstundu, að myndin var eftir yður. Eg keypti hana“. „Hvað gáfuð þér fyrir hana?“ „Eg get vel sagt yður það“, sagði Oxford eftir talsverða bið. „Eg borgaði 1000 krónur fyrir hana“. „Svo!“ hrópaði Priam. Hann sá nú að einhver millimaður hafði þarna grætt mörg hundruð pró- sent á myndum hans. „Hver var maðurinn?“

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.