Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Qupperneq 24
534 Kosningatilhögun frændþjóðanna. [iStefnir
færi eða sviftir mannorði vegna
refsidóms.
3. Kosningatilhögun Norðmanna.
Þar er stórþingið kosið í
einu lagi, og eru þingmenn 150.
Landinu er skift í 29 kjördæmi
alls með 3 til 8 þingsætum í
hverju, og er kosið með hlut-
fallskosningum í hverju kjör-
dæmi fyrir sig.
Kjördæmaskiftingin er sér-
kennileg að því leyti, að sveit-
irnar eru í kjördæmum út af
fyrir sig, 18 að tölu, og kjósa
samtals 100 þingmenn. Af kaup-
í sveitum 2050582 manns, eða
í kaupstöðum 758985 — —
Sé miðað við kjósendatölu
verður misræmið heldur minna,
því að í sveitum komu 10904
kjósendur á þingmann, en í kaup
stöðum 9230. Virðist við skift-
inguna vera gjört ráð fyrir því
að fólksfjöldinn sé í meiri vexti
í kaupstöðum en í sveitum, enda
mun svo vera, og jafnast þá
þetta misræmi á nokkrum ár-
um.
í langflestum sveitakjördæm-
unum er íbúatala á þingmann
nálægt meðaltali allra sveitanna,
þ. e. kringum 20 þús. Þó eru til
fáeinar undantekningar, þar sem
stöðunum eru svo tvær stærstu
borgirnar, Oslo og Bergen, kjör-
dæmi hver fyrir sig, en annars
eru kaupstaðir úr einu eða tveim-
ur eða þremur fylkjum hópaðir
saman í kjördæmi. Verða kaup-
staðakjördæmin á þennan hátt
alls 11 og kjósa 50 þingmenn.
Við skiftingu þingsætanna
milli sveita og kaupstaða hefir
sjáanlega verið tekið tillit til
fólksfjölda eða kjósendafjölda,
en þó er heldur hallað á sveit-
irnar. Samkvæmt manntali lr
des. 1930 voru:
20506 íbúar á hvern þingmann.
15180 - - - -
íbúatala á þingmann liggur all-
fjarri þessu meðaltali. Fámenn-
asta fylkið er Finnmörk, með
44356 íbúa og 3 þingmenn, eða
tæp 15 þús. íbúa á þingm. Á-
stæðan er hér auðsæ, ekkert
kjördæmi er látið hafa færri
en 3 þingmenn, til þess að hlut-
fallskosningin geti notið sín þol-
anlega. I tveim öðrum fylkjum,
sem hafa 4 þingmenn hvert, eru
ekki heldur nema 15 til 16 þús.
íbúar á þingmann. Aftur eru í
fjölmennasta fylkinu (Akers-
hus) rúml. 33 þús. íbúar á þing-
mann.