Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Page 18

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Page 18
528 Ófriður í Mansjúríu. [Stefnir- hröktu Kínverja á brott úr her- búðum sínum. Sendu Japanar svo þegár í stað liðstyrk að heiman, svo að þá voru 14500 japanskir hermenn í Mansjúríu, en þeir hafa leyfi til þess, að hafa þar 15000. Japanska stjórnin lýsti því yfir, að hún sendi lið þetta aðeins til þess að „gæta hagsmuna“ jap- anskra íbúa í landinu. Æsingar í Japan og Kína. Mikill fögnuður varð í Japan yfir þessum aðförum. Andstæð- ingar stjórnarinnar lofuðu hen)ii fullu fylgi, ef hún léti nú kné fylgja kviði. í Kína urðu æsingar miklar, einkum meðal stúdenta, sem eru eldheitir ættjarðarvinir, og hata Japana fornu og óslökkvandi hatri. Kínverska stjórnin vildi stilla til friðar, en 28. sept. réðust stúdentar inn í stjórnarhöllina í Nanking og misþyrmdu sjálfum utanríkisráðherranum, C. T. Wang. Sagði hann af sér tveiin dögum síðar. Áhrif á innanríkismál Kína. Ófriðurinn varð til þess, að dró saman með fjandmönnunum inn- an lands. Kanton-stjórnin hafði undirbúið og hafið herferð mikla gegn Nanking-stjórninni, en lét nú af ófriði. — Aftur á móti eru innanlands óeirðir miklar í Norð- urríkinu, og þar stofnuð ein 3 sjálfstæð ríki. I’jóðabandalagið. Hér hefir nú fengizt góður próf steinn á Kellogg sáttmálann og- þjóðabandalagið og allt þetta, sem nú á að koma í veg fyrir stríð. Náttúrlega tala báðir aðiljar lik- lega, og krossa sig upp á |>að, að þeir hafi ekki byrjað og því ekki brotið Kelloggsáttmálann. Þjóða- bandalagið, með aðstoð Banda- ríkjanna, hefir sk'orað á báða, að fara með heri sína burt úr Man- sjúríu, en þeir brúka vífilengjur og á meðan halda skærurnar á- fram. Ófriður þessi, sem gengur í stöðugu þaufi, er ekki að svo komnu orðinn neitt geigvænleg- ur. Herir beggja eru enn fremur litlir. En hann er ef til vill merki- legastur sem prófsteinn á það, hvað þjóðabandalagið og annað það, sem friðinn á að tryggja,. mega sín, þegar út úr ræðusölun- um kemur og út í sjálft lífið.

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.