Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.12.1931, Page 77
Stefnir]
Alúminíum.
587
á því, hvers vegna ofur-lítið af t.
d. kopar, sem blandað er sam-
an við alúminíum, gerir það svo
margfalt harðara og sterkara efni
en hreinan málm. Koparinn dreif-
ist í örsmáum ögnum um allt efn-
ið þannig, að þessar smáagnir eins
og „læsa“ öll efnin saman, gera
það að verkum, að alúminíum-
agnirnar renna ekki eða skrika.
Því hefir verið líkt við geirnegl-
ing, sem trésmiðir nota. Þetta
veldur hörku málmblendingsins.
Þá reyndist lengi vel erfitt, að
steypa stóra búta af alúminíum.
Þeir voru alveg til skamms tíma í
hæsta lagi 100 kíló. En þegar
smíða þurfti stóra hluti, var þetta
ófullnægjandi, og stóð mjög fyrir
að þessi ágæti málmur væri notað-
ur, þar sem mjög stór heil stykki
þurfti. En þörfin var brýn, og
vísindamennirnir linntu ekki. Og
nú eru búnir til ,,bútar“ af alú-
miníum, sem vega eina smálest
(1000 kg.) og meira. Og úr þess-
um miklu bútum er svo smíðað
allt mögulegt, sem áður þurfti
járn í. Það væri t. d. vel hægt að
reisa stærstu skýkljúfa og mestu
hafskip úr alúminíum. Það myndi
aðeins verða of dýrt.
Alúminíum er nú meira og
meira notað. Eftirspurnin eykst
stöðugt. í allskonar flugvélar og
loftskip er það ómetanlegt. En
það þykir líka ágætt í bifreiðar og
járnbrautarvagna. Allt verður svo
létt, sem er úr alúminíum, og létt-
ir 'vagnar þurfa minni kraft. —
Kynstur af alúminíum fer i raf-
magnsleiðslur.
Þá hefir verið búinn til alúmin-
íum litur eða „málning". Þegar
málað er, setjast örsmáar alúmin-
íum þynnur, eins og nokkurskon-
ar hreystur utan á, og verja gegn
öllu grandi það, sem undir er. —
Nokkrar timburverksmiðjur eru
farnar að strjúka þessum „lit“ á
allan við sinn, til þess að verja
hann alls kyns skemmdum af sól,
lofti og vatni. Smágerð vírnet er-
einnig farið að búa mjög mikið til
úr alúminíum. Þau eru svo björt
og fögur og ryðga aldrei. Þannig
er það fleira og fleira, sem alú-
miníum leggur undir sig. Og það
er verðið eitt, sem enn kemur í
veg fyrir, að það útrými að miklu
leyti öðrum málmum.
Þá hafa menn nýlega gert eina
uppgötvun. Eins og flestir vita,
er alúminíum ljós-grátt að lit, og
því fremur kuldalegt, þó að það
sé ])okkalegt og hreinlegt útlits.
En ýmsar húsmæður langar til að
hafa „liti“ í eldhúsunum án þess
að þurfa að missa alúminíum á-
höldin. Og nú hefir nýlega tekizt