Sagnir - 01.04.1984, Page 12

Sagnir - 01.04.1984, Page 12
HYSKIÐ í ÞURRABÚÐUM nokkuð framandi fyrir okkur Nútímaíslendinga. Núna segja sumir að fiskurinn og frjálst verkafólk séu forsendur framfara og hagvaxtar á íslandi. Tímarnir breytast og mennirnir með. Sumar hugmyndir virðast þó vera lífseigari en aðrar. Heyrist ekki enn talað um spillinguna í Reykja- vík? Önundur kunni nú öllu betur við sig en áður í Reykjavík; lagðist hann nú hvern aftan í hvílu með góðri meðvitund um að hafa framkvæmt eitthvað gott og nytsamlegt um daginn, og fannst honum það yndis- legra en nokkur drykkjugleði. (.Ármatm á Alþingi 4 1832, bls. 10-11.) „Sollurinn og sukkið“ Sá íslendingur sem einna fyrstur hóf frelsisbaráttuna gegn Dönum, sá einnig „sukkið" í Reykjavík. Að hans dómi var það að mestu komið frá Danskinum. Maður þessi hét Baldvin Einarsson. Hann gaf út ársritið Ármanti á Al- þingi, alls fjórum sinnum á árun- um 1829-1832. Þar er að finna samtal helstu fulltrúa andstæðra skoðana á íslandi. Einn þeirra hét Önundur og var úr hópi lausa- eða tómthúsmanna, sem voru að áliti Baldvins „lauslyndir og óþolnir við vinnu, og gefnir fyrir nýbreytni og munað“. Önundur átti heima í nágrenni Reykjavík- urbæjar, eða nánar tiltekið á Sel- tjarnarnesi. Eitt sumar vistaði hann sig í sveit og breyttist þá ýmislegt til hins betra í fari hans. Baldvin var lítt hrifinn af Reykjavík og nágrcnni — allt var þar hálfdanskt. Jafnframt voru þar latir tómthúsmenn og vegna spill- ingarinnar í bænum urðu þcir að algerum ónytjungum. Jón Espólín, sýslumaður og sagnaritari, var í mörgu sammála Baldvini, hvað varðar munaðarlíf alþýðunnar nálægt Reykjavík. Ekki var hegðan hennar til eftir- breytni. Það var á fyrstu árum nítjándu aldar sem ... alþýða manna vildi fátt nýta, nema kaupstaðarvöru, og setti oft í óþarfa, og varð mönnum af því skuldsamt um Suðurnes öll, og varð þar löngum margt fólk óharðgjört og fór ei batn- andi. (Jón Espólín íslands árbœkttr í sögnformi XII, bls. 4.) „Fátækt og ómegð“ Um miðja nítjándu öld voru Reykvíkingar komnir nokkuð yfir eitt þúsund og bjó helmingur þeirra í tómthúsum. í bænum bjuggu nú nokkrir innlendir em- bættismenn, handiðnaðarmenn og kaupmenn eða verslunarstjór- ar. Danski bæjarbragurinn var óðum að víkja og íslensk borgara- stétt að myndast. Hagsmunir borgara og tómthúsmanna fóru ekki ætíð saman. Stór hluti af útsvari borgaranna rann til fátækrasjóðs, en í hann leituðu einna helst tómthúsmenn. Enn heyrðust því óánægjuraddir í garð þeirra. í mánaðarritinu Reykjavíkur- póstinum birtist, í janúar 1849, „Hugvekja um tómthúsmenn". Höfundur, sem er óþekktur, segir að hreppsþyngsli séu mest þar sem tómthúsmenn séu flestir. í góðærum komist þeir varla af og um leið og eitthvað beri út af þá verði þeir „eins og von er, komnir á sveitina með hyski sínu“. Hann segir að tómthúsmenn séu frá „öndverðu ómannlegri", en í Reykjavík séu þeir betur settir en annars staðar á landinu. Þar þurfi þcir enga lóðartolla að borga, en hafi skipsuppsátur, móskurð og hagagöngu ókeypis. Jafnframt geti þeir fengið vinnu hjá bænum eða kaupmönnum. Þrátt fyrir þetta séu kjör þeirra bágborin og flestir fátækt og ómegð bundnir. Höfundur þessarar greinar vill ekki að tómthúsmönnum fjölgi meira í Reykjavík, af því að öll sveitaþyngsli bæjarins séu þeirra vegna. Hér talar sá sem ber hag borgar- anna fyrir brjósti. Þeir kærðu sig ekki um að láta stórar fúlgur í vasa tómthúsmanna til að halda í þeim lífi. Eftir að hafa heyrt þessar raddir fortíðarinnar erum við líklega ein- hverju nær um andstöðuna gegn tómthúsmönnum. En skiljum við 10 SAGNIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.