Sagnir


Sagnir - 01.04.1984, Qupperneq 52

Sagnir - 01.04.1984, Qupperneq 52
HAFNALAUS HÖFUÐSTAÐUR Segir blaðið ennfremur að tveir erlendir verkfræðingar hafi verið fengnir til að „rannsaka bryggju- stæðið“ að undirlagi Sigurðar Briem. Telur blaðið að slíkar framkvæmdir myndu hafa „afar mikil og víðtæk áhrifá höfuðstað- inn.“ En það átti eftir að koma á daginn að ekki voru allir sammála um ágæti þeirra áhrifa. Þeir tveir stórkaupmenn sem Sigurður var hér korninn í félags- skap við voru engir skussar. Louis Zöllner var kaupmaður í New- castle á Englandi og hafði verið umboðsmaður íslensku kaupfé- laganna þar. Þórarinn Tuliníus rak heildverslun í Kaupmanna- höfn og átti jafnframt ýmsar verslanir hérlendis, auk gufu- skipafélagsins Thore. Það var því ekki undarlegt að kaupmenn í Reykjavík legðu að bæjaryfirvöldum að taka nú til hendinni í hafnarmálum þegar þeir fréttu af þessum hugmynd- um í Skerjafirði. Hefur áskorun þeirra um að fá hingað norskan eða skoskan verkfræðing átt rót sína að rekja til þessara frétta. Þróun mála frá 1905-1907 er ekki ljós, en íjúlí 1907 stofnar Sig- urður Briem hlutafélagið ’Höfn‘ ásamt þeim Birni augnlækni og Ólafi Árnasyni, kaupmanni á Eyrarbakka. Þeir félagar hugðust leggja fram 3A hluta þess fjár sem til framkvæmda í Skerjafirði þyrfti, en 14 hluta höfðu þeir tryggt sér erlendis. Hugsanlega hafa fyrrnefndir stórkaupmenn ætlað að leggja fram það fé, en um það hafa ekki fundist nein gögn. Þess ber þó að geta, að á Þjóð- skjalasafni á að vera skjalapakki frá Ólafi Árnasyni varðandi ’Höfn*. Pakkinn er nú með öllu horfinn og aðeins hægt að geta sér til um innihald hans. Markmið ’Hafnar* var að byggja hafskipabryggju við Skerjafjörð - í landi Skildinga- ness. Til þess að tryggja flutninga að henni og frá vildu þeir félagar Björn Ólafsson (1862-1909), augn- lceknir. fá að leggja sporbraut, úr Skerja- firði um land Reykjavíkur niður í miðbæ. Leitað var ásjár Alþingis í þessu rnáli. Höfn - handa hverjum? Á þinginu 1907 var flutt frumvarp til laga um heimild til að leggja slíka sporbraut. Flutningsmenn voru allir Norðlendingar. Þótti þeim Tryggva Gunnarssyni og Guðmundi Björnssyni, þing- mönnum Reykvíkinga, skjóta skökku við að norðanmenn væru farnir að bera hag Reykjavíkur svo fyrir brjósti. Flutningsmenn töldu að þetta væri ekki aðeins hagsmunamál fyrir bæjarfélag Reykjavíkur heldur og alla lands- byggðina. AÁrir landsbyggðar- þingmenn voru á sama máli. Reykjavíkurþingmennirnir sner- ust eindregið gegn frumvarpinu á þeim forsendum að því væri beint gegn hagsmunum höfuðstaðar- ins. Þetta væri tilraun til að ræna hafnartekjum þar sem Skildinga- nes væri utan lögsagnarumdæmis Reykjavíkur og til að einoka hafn- arviðskipti. Þessar röksemdir hljóma kunnuglega í eyrum eftir að hafa lesið rök þeirra félaga gegn löggildingu í Viðey. Þegar haft er í huga að hafnargerð hafði lengi verið til umræðu og athugunar hjá bæjarstjórn Reykjavíkur er vart hægt að verjast þeirri hugsun að eitthvað umfram almenna hagsmuni hafi legið að baki þess- ari hörðu andstöðu Reykjavíkur- þingmannanna. Áætlað hafði verið að hafnargerð í Skerjafirði myndi kosta 3-400 þúsund krón- ur, sem var aðeins brot af áætluð- um kostnaði við Reykjavíkur- höfn. Þeir ’Hafnar‘menn höfðu boðið bæjaryfirvöldum í Reykja- vík til samstarfs um gerð hafnar í Skerjafirði og afnot af henni, en því boði verið hafnað. Rökin fyrir því voru, að meðan allt væri óljóst um hafnargerð í Reykjavík vildi bæjarstjórnin ekki binda sig ann- ars staðar. Þátttaka í hafnargerð í Skerjafirði hefði því verið fjár- hagslega hagkvæm fyrir Reykja- víkurbæ - og það var nú einmitt kostnaðurinn við hafnargerð sem hafði vaxið mönnurn í augum. Hvaða hagsmunir voru þá í hættu? Skúli Thoroddsen, þingmaður Norðurísfirðinga, lýsti þeirri skoðun sinni við þessar umræður, að hann væri fylgjandi því að ’Hafnar‘mönnum yrði veitt leyfi til járnbrautarlagningar um land Reykjavíkur. Hann taldi það vera mjög til hagsbóta fyrir hinn al- menna Reykvíking að fá þarna höfn sér að kostnaðarlausu. Ef höfn yrði gerð í Reykjavík yrðu útsvarsgreiðendur að bera kostn- að af því, en kaupmenn hirtu svo gróðann. Ætli hér sé ekki komið að kjarna málsins? Kaupmenn sem höfðu komið sér fyrir með bryggjur sínar við Hafnarstræti hafa líklega séð sína sæng upp- reidda ef höfn yrði gerð sunnan- vert á Seltjarnarnesi. Lóðir þeirra myndu falla í verði og verslun 50 SAGNIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.