Sagnir - 01.04.1984, Page 65
GEIR ZOÉGA
margs orðið vísari í þessari ferð og
þilskip voru án efa ofarlega í huga
Geirs Zoéga eftir að heim var
komið.
hefur flestum mönn-
um fremur þá fyrirhyggju
°g hyggni...“
Enda þótt ekkert yrði af þilskipa-
kaupum í Gautaborg haustið 1865
var Geir Zoéga ekki af baki dott-
inn. Árið eftir tók hann höndum
saman með þeim Kristni Magnús-
syni bónda og skipasmið í Engey
og Jóni Þórðarsyni tómthús-
manni í Hlíðarhúsum um að gera
tilraun með þilskipaútgerð. Festu
þremenningarnir í þessu skyni
kaup á danskri skútu, er nefnd var
Fanný. Hún var notuð til að eltast
við hákarla og þorska en sá elting-
arleikur gekk ekki allt of vel í
fyrstu, m.a. vegna reynsluleysis.
Um 1870 fór hagurinn hins vegar
að vænkast og það svo að þre-
menningarnir öðluðust tröllatrú
á þessu fyrirtæki og keyptu skútu
til viðbótar. Hún hlaut nafnið
Reykjavík og má vel líta á þá nafn-
gift sem eins konar tákn um trú
þessara manna á því að þilskipaút-
gerð gæti átt sér bjarta framtíð þar
sem öndvegissúlur Ingólfs á forð-
um að hafa rekið að landi.
Það kom í hlut Geirs Zoéga að
hafa aðalumsjón með útgerð
Fannýjar og Reykjavíkur og þótti
það starf farast honum vel úr
hendi. Árið 1878 fórst Fanný og
var þá Reykjavikin eina skipið í
eigu félaganna þriggja. Þeir létu
þó ekki deigan síga og keyptu nýtt
þilskip, Gylfa, frá Færeyjum. í til-
efni af þeim kaupum sagði blaðið
ísafold m.a.:
Það má og fullyrða, að Gcir
Zoéga, sem stendur fyrir út-
gerðinni, hefur flestum mönn-
um fremur þá fyrirhyggju og
hyggni, sem er nauðsynleg til
að stjórna svo kostnaðarsöm-
um útvegi svo að í lagi fari og
von geti verið um ágóða. (ísa-
fold 5. árg. 27. tbl. 1878)
Árið 1880 hóf Geir Zoéga versl-
unarrekstur samhliða útgerðinni
og um svipað leyti munu þeir
Kristinn í Engey og Jón í Hlíðar-
húsum hafa selt honum hluti sína
í Gylfa og Reykjavík. Tók Geir nú
óðum að færa út kvíarnar og
haustið 1886 eignaðist hann sitt
þriðja skip og auðvitað var ekkert
sjálfsagðara en að gefa því það
virðulega nafn: Geir. Og enn
fjölgaði skipunum enda upp-
gangstímar útgerðar við Faxaflóa.
Á árunum 1893-1908 átti Geir að
jafnaði 7—9 þilskip. Honum féllust
ekki hendur þó að hann missti
skip með einhverjum hætti heldur
keypti að jafnaði bráðlega í
skarðið og fékk sér þá yfirleitt
stærri skútu og betri en áður. Til
dæmis brá Geir sér árið 1897, þá
67 ára gamall, til Englands og festi
kaup á fimm ágætum kútterum,
þremur fyrir sjálfan sig og
tveinrur fyrir aðra. Bretar voru
um þetta leyti í óða önn að taka
gufuskip til notkunar í stað þil-
skipanna og notaði Geir þá tæki-
færið og keypti nokkur hinna „úr-
eltu“ skipa. Sveinbjörn Egilsson,
fyrrverandi ritstjóri Ægis, sagði
um Englandsferð Geirs:
... fyrir fiskimenn landsins er
sú ferð þýðingarmikil og vert
að hennar sé getið, því hún ger-
breytti útvegnum hér, og hún
varð til þess, að tugir af sams-
konar skipuin gengu héðan til
veiða á næstu árum, því skipum
Geirs fylgdu þegar önnur.
Fiskimennirnir vildu ekki ráða
sig á annað en kúttera úr því
þeir fóru að sjást. (Ægir 1930,
bls. 961
Árið 1908, þegar Geir var78 ára
gamall, seldi hann skip sín öll í
einu lagi. Um það leyti stóð ís-
lensk útgerð á tímamótum. Tog-
arar voru komnir til sögunnar og
Geir Zoéga áttaði sig á því eins og
aðrir að þeir voru veiðiskip fram-
tíðarinnar. Braut hann raunar all-
mikið heilann um það hvort hann
ætti að hefja togaraútgerð en ekk-
ylfi, eittþilskipatina setti Geir Zoega eignaðist. Þegarskútur héldu innreið sínafyrir
a voru í Reykjavík upp úr 1890 gerðist Geir óumdeildurforystumaður og á árunum
1893-1908 átti hann að meðaltali 1-9 þilskip.
SAGNIR 63