Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Side 7

Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Side 7
FORSPJALL 101 Albert Camus sagði nýlega: „Getum vér farið eins hratt og eldflaug með kjarnorkusprengju? Því miður er andlegur þroski hægfara í saman- burði við þróun langdrægra flug- skeyta. En hvað um það, úr því að kjarnorkustyrjöld gæti svipt framtíð- ina öllu gildi, veitir hún oss á ný frelsi til að velja. Vér höfum engu að glata nema öllu. Þess vegna skulum vér halda fram stefnunni. Þetta er lögeggjan vorrar kynslóðar. Því sé- um vér dæmdir til að falla, þá er þó nokkurs virði að hafa fylgt lífinu að málum, en ekki þeim, sem vildu tor- tíma því". ÞEIR, SEM lifa í sífelldi hættu, verða oft skyggnari á verðmæti lífs- ins og síður hneigðir til ofstækis én aðrir menn. Ef til vill á þetta eftir að sannast á fyrstu kynslóð atómaldar. Vitundin um yfirvofandi skelfingu kann að geta forðað henni írá því að ofmetnast af valdi sínu yfir efn- inu. Reynsla undanfarinna tveggja áratuga hefur þar að auki orðið henni drjúgur skóli. Engum þarf lengur að blandast hugur um þær ógnir, sem einræðissinnaðar múg- hrevfingar nútímans geta leitt yfir mannkynið. Og hin pólitísku fræði- kerfi, sem áttu uppruna sinn í fram- faratrú 19.. aldar, hafa beðið skip- brot í umbrotum síðustu tíma og í afhjúpun hins kommúnistíska ein- ræðis. Sumir vilja kalla þá kynslóð, sem ófús er að láta hrífast af fyrirheitum glæstra kennisetninga, svartsýna og sneydda hugsjónum. En er það ekki einn mikilvægasti lærdómur vorra tíma, að verstu verkin eru oftast unn- in af þeim, sem eru blindaðir af trú á fjarlæga draumsýn, svo að þeir sjá ekki veruleikann í kringum sig og eru tilfinningalausir fyrir því böli, sem þeir valda öðrum? Von heimsins virðist einmitt bund- in þeim, sem fást til að hafa augun á jörðinni, en láta ekki gervitungl kennisetninga villa sér sýn, og þeim, sem sjá ekki gildi lífsins aðeins í hinu stóra og volduga, heldur í margbreytileik og fegurð hins smáa: í frelsi og hamingju hvers lifandi manns.

x

Nýtt Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.