Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Síða 8
Spönsk IjóÖ
Ókunnur höfundur spánskur
(frá 15. öld)
MÁRATELPURNAR ÞRJÁR
Márastúlkur þrjár ég þekki
í Jaén:
Axa, Fatíma, Maríen.
Þessar Máratelpu-tátur
tíndu mórber uppum hlíðar,
glettin fljóð með giaðan hlátur
í Jaén:
Axa, Fatíma, Maríen.
Enda tekur ærsl og hlátur,
aftur hverfa stundu síðar
vangafölar hljóðar hnátur
‘í Jaén:
Axa, Fatíma, Maríen.
Máratelpur mjögsvo fríðar,
Márastiílkur ósköp fríðar
brugðu sér í berjahlíðar
í Jaén:
Axa, Fatínm, Maríen.
Ókunnur höfundur spánslcur
(frá 15. öld)
TELPA í SKUGGA
Telpa í skugga skógarins grætur
í leynum;
skelfur lauf á greinum;
lítil mær og líkamsfögur,
lítil, hörundsdökk og fögur,
vininn sinn tvnda tregar sárt
í leynum;
titrar lauf á greinum.
Ókunnur höfundur spánskur
(frá 15. öld)
KOSSVÍSA
Því kyssti ’hann mig svona hann Kalli?
því kyssti ’hann mig glanninn sá?
Hann sagði: „Þetta ’er nú siður
fyrir sunnan, jú, því er miður,
og svo kemur sæla og friður
í sál mér við athöfn þá.“
Því kyssti ’hann mig svona hann Kalli?
því kyssti ’hann mig glanninn sá?