Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Qupperneq 11

Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Qupperneq 11
SPÖNSK LJÓÐ 105 Federíco Gnrcia Lorca: KVEÐIÐ Á HESTBAKX Kordóva. Ein í fjarska. Klárinn blakkur, tunglið fullt, og ólífur í skreppu minni. Víst rata ég veginn, en kemst þó aldrei til Ivordóvu. Framum sléttuna framum storminn, klárinn blakkur, tunglið rautt. Dauðinn starir á mig lír turnum Kordóvu. Æ, hvað leiðin er löng! Æ, klárinn minn góður! Æ, dauðinn bíður mín, fyrr en ég kemst til Kordóvu! Ivordóva. Ein í fjarska. Federico Garcia Lorca: SVEFN GÖN GU-ÞUL A Grænt, grænt, svo gott og grænt! Vindur grænn í grænu laufi, gnoðin yfir djúpri röst, hesturinn á heiðar-klifi. Sveipuð skugga á svölum hátt sofin hvílir ein í draumi. Hörund grænt og grænir lokkar, glitrar silfur-hrím í augum. Grænt, grænt, svo gott og grænt! Meðan flökku-máninn líður, myrkum sjónum gjörvallt skoðar hana, sem þó sér ei neitt. Grænt, grænt, svo gott og grænt! Miklar stjörnur héluhvítar hraða sér með skuggans fiski til að opna dagsins dyr. Furan sverfur svalan vind * sinni þjöl í úfnu limi; veiðikattar kryppu skýtur koldimmt áló-vaxið fjall. Kemur nokkur? Hver? og hvaðan? Hún er þar á svölum uppi, grænt er hörund, hárið grænt, hafið napurt ber í drauma. „Kaupa vil ég hennar hús, hestinn minn í skiptum láta, hnakk minn fyrir hennar spegil, hnífinn fyrir rekkjuvoð. Kunningi, frá Kabra-skörðum kem ég sár og drifinn blóði.“ „Drengur minn, ef mætti ég ráða, mundi varla á kaupum standa. En nú verð ég uppfrá þessu eltki ég, né ræð hér húsum.“ „Vinur, gjarna vildi ég hljóta væran dauða í hvílu minni, hvílu úr stáli helzt af öllu, hvítt og slétt sé rekkjulínið. Greinirðu ekki svöðusárið sem mig sker frá brjósti að kverk?“ „Hundruð þrenn af rauðum rósum roða hvítan skyrtubarminn; blóð þitt angar úðavakið allt í kringum lindann bleika. En nú verð ég uppfrá þessu ekki ég, né ræð hér húsum.“ „Lát mig þó í þetta sinn þessar háu svalir klífa; leyf mér ennþá upp að klífa efst á þessar grænu svalir, svala-rið í mjúkri móðu mánans, þar sem vötnin niða.“ Síðan klífa á svalir hátt saman tveir, og eftir láta litla rauða rák af blóði, raka slóð af heitum tárum. Titrandi yfir efstu þökum örsmá silfruð ljósker blika.

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.