Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Page 14

Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Page 14
108 HELGAFELL yrkja. Hvernig myndi Viktoría Hamsuns líta 111 á íslenzku? Verkefnið hefur heillað hann sterkar en nokkurt yrkisefni, sem kann að hafa búið í brjósti hans. Og til varð á íslenzku snilldarlegri skáldsöguþýð- ing, en áður var í heiminn borin á landi voru. Og þessi saga var fegursta saga ver- aldar. Síðan hefur verið mikil ritöld á Islandi, bæði að vöxtum og hækkandi smekk, en andrúmsloft og hugsunarháttur breytzt. Sennilega skilur enginn yngri manna hvað Viktoría á íslenzku var falleg bók 1912, né hvílíkan heim hún opnaði fimmtán ára dreng, eins og eg var þ'á. Eg fann, að þessi saga var algerlega einstæð, að eng- in slík saga hafði áður orðið til, né mvndi nokkru sinni framar verða skrifuð. Því svona var ástin milli ungs manns og ungrar konu, engum hafði tekizt að lýsa því fyrr, og sagan um þessa ást hlaut að vera hið fegursta, sem mannleg hönd gæti skrifað. Og eg er enn sannfærður um að meistaraverk Hamsuns sé fallegasta saga, sem skrifuð hefur verið, og ekki til fegurra ástarbréf í bókmenntum heimsins, en bréf Viktoríu í sögulok. Og málblærinn var dýrlegri en á nokk- urri annarri nýrri tíma sögu á íslenzku, og bar með sér ilm, langt utan úr heimi, af skógum og vegum og görðum, þar sem ungir elskendur gengu — fjarlendan ilm, sem með undarlegum hætti var í orðum minnar tungu, seiddur inn í stílinn. Málið og sagan eitt, óaðskiljanleg, eins og í liverri frásögn sem er æðsta list. Eg hafði haldið að aldrei gæti orðið til íslenzka jafn-áhrifasterk sögumálinu forna, en þarna var hún — tárhrein og fersk, jafn-fullkom- lega eðlileg og hún hefði alltaf verið til, en gat þó ekki hafa litið ljós dagsins fyrr en nú. Mál síns tíma, og afturelding nýrrar orðlistar á Islandi. Eg man mér fannst sárt að skáld Vik- toríu skyldi aldrei getað vitað hve verk hans var fallegt á íslenzku. Seinna þýddi Jón Sigurðsson fleiri af bókum Hamsuns, og skáldið myndi glugga í þessar þýðingar, revna að skilja, gefast upp við það og hugsa: hvernig skyldi honum takast, þess- um Islendingi, sem hefur bundið tryggð við verk mín, og þýðir þau fyrir litla þjóð — til hvers er hann að þessu, lesa ekki allir norsku á Islandi? Eg lútti Knut Hamsun, rétt snöggvast, í maí 1943. Hann stóð með konu sinni fyrir utan Ilótel Kaiserhof í Berlín, tal- aði hátt, eins og gamlir menn gera þegar heyrnin er biluð, sagði að þau yrðu að spyrja einhvern til vegar. Eg gekk til þeirra og bauðst til að hjálpa þeim. Eg hafði hitt frúna nokkrum árum áður, og minnti hana á það. Hún bað mig að afsaka að hún kynnti mig ekki manni sínum, hann heyrði svo illa, ætti bágt með að tala við ókunnuga. Eg svaraði að eg vissi að hann vildi fá að vera í friði fyrir ónæði af aðdá- endum sínum, — og fylgdi þeim niður í neðanjarðarbrautina, og að spori lestarinn- ar, sem þau ættu að taka til að komast leiðar sinnar. Svo kvaddi eg þau og ætl- aði að fara, en Hamsun, sem ekkert hafði skilið at' tali mínu við frúna, hélt að eg hefði komið að sækja þau, til að fylgja þeim, og sagði undrandi: „Skal ikke han der med?“ Þá gekk frúin að honum og hrópaði inn í eyra hans: „Þetta er íslenzki lektorinn í háskólanum í Berlíu, og honum þykir vænt um að hafa fengið að sjá þig einu sinni á ævinni.“ Hamsun brosti hlýlega, og rétti mér hendina. Eg kom upp að eyra hans og sagði: „Eitt verð eg að segja yður, sem eg veit ekki hvort þér vitið, — að Jón Sig- urðsson frá Kaldaðarnesi hefur þýtt bæk- ur yðar á íslenzku af frábærri snilld“. Hamsun horfði á mig alvarlega, sínum stóru, óglejrmanlegu, blábjörtu augum og sagði: „Det glæder mig meget at höre — det glæder mig virkelig meget at höre“ — og þrýsti hönd mína aftur að skilnaði. Eg hélt sjálfum mér veizlu um kvöldið. Eg hafði tekið í þá hönd, sem hafði skrifað

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.