Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Qupperneq 24

Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Qupperneq 24
118 HELGAFELL hans. „Skelfing var Jónas latur maður.“ — „Jónas var dulur og þunglyndur, en ágæt- ur í umgengni og óvenjulega glaðlyndur, þegar svo bar undir.“ Þetta eru óbreytt orð Páls. Páll sagði, að Jónas hefði lítið ort í skóla. ---------Þeir voru sambýlismenn á Garði Páll og Jónas. Einu sinni kom Páll heim frá miðdegisverði og raulaði fvrir munni sér: Nu lider dagen sá jævnt og trindt, alt mánen stár over Stevens klint, over Stevens klint. Jónas vatt sér við og kvað: Nú hverfur sólin af himinbaug, en húmið vekur álf og draug, vekur álf og draug. Árið 1839 kom Gaimard til Hafnar. . .. Landar efndu til veizlu og vildu fagna honum sem bezt. Þorgeir Guðmundsson fór á fund Jónasar og bað hann gera kvæði um Gaimard. Jónas tók því dauflega og hét engu góðu. En þegar Þorgeir var far- inn, reis hann á fætur og gekk um gólf raulandi; orti hann þá á skammri stundu 3 fyrstu erindin í kvæðinu „Þú stóðst á tindi Heklu hám“. Þegar þangað var kom- ið, nam hann staðar og sagðist ekki geta meira. Gekk hann þá út í bæ og inn í mat- söluhús, . .. og varð ekki meira urn kveð- skapinn það kvöld. En að kvöldi næsta dags hafði Jónas lokið kvæðinu. „Hann gat ekkert með jyrirhöfn. Það kom yfir hann svona,“1 sagði Páll.“ I framhaldi þess, er áðan var haft eftir Gröndal úr Dægradvöl, segir hann um kvæðið til Gaimards, að það var „prentað á lausum blöðum með fátíðri prýði; kostaði sú prentun yfir 80 krónur [fyrir 118 árum]. Kvæðið barst skjótt til íslands, og lærðu allir það ósjálfrátt, og var það mjög sung- 1) Leturbreytt hér. ið. En enginn efi er á, að þetta er eitt af þeim kvæðum, sem hvað mest hafa stutt að framförum landsins og andlegri styrk- ingu þjóðar vorrar.“ í þessu kvæði eru m. a. þessar kjarnyrðalínur um eðli, áhrif og gildi vísinda: Vísindin efla alla dáð, orkuna styrkja, viljann hvessa, vonina glæða, hugann hressa, farsældum vefja lýð og láð. Eyrsta línan er skráð gullnum stöfum yfir inngöngudyr að hátíðasal Háskóla Islands: Vísindin efla alla dáð. IV Frá vori 1839 til hausts 1842 var Jónas síðast á Islandi, ferðaðist á sumrum urn mestallt landið, en dvaldist á vetrum í Reykjavík til að vinna úr rannsóknarefn- um sínum. Og nú yrkir hann miklu meira en hann hafði gert á undanförnum 7 ár- um, frá því er hann fór fyrst utan. Ilvað veldur þessum aukna kveðskap? Að nokkru leyti tilbreytingarsamara líf, þar sem ferða- lögin hafa komið róti á hugann, — bréf konungs 1840 um, að athuga skyldi mögu- Ieika á endurreisn alþingis, hefur í svip orðið Jónasi fagnaðarefni og orkugjafi, — og sorgarfregnir hafa ekki síður aukið hon- um andlegt frjómagn, þar sem um þessar mundir féllu frá óvenjumargir þeirra, sem Jónasi þótti sérstök eftirsjá að. Ytri atvik endast þó engan veginn til að skýra þetta gróðrarskeið á skáldferli hans til fulls. En nú hefur Jónas náð því stigi, að losna fer um þær hömlur, sem nánari kynni af heims- bókmenntum höfðu sett sköpunargáfu hans fyrst eftir utanförina, og aukin fjar- sýn til'þeirra úti á Islandi kann að hafa aukið honum frjálsræði og sjálfstæði gagn- vart skáldskapnum. Aðalatriðið er þó ein- staklingsþroski og andleg frjósemi, sem bundin er vissu aldursskeiði. Það er at- hyglisvert, að flest eru kvæðin frá árun- um 1841 og 1842, þegar Jónas er rétt inn-

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.