Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Side 27

Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Side 27
HVERNIG URÐU LJÓÐ JÓNASAR TIL? 121 ið. Þennan ferða- og kveðskapardag hafði hann einmitt fvrst komizt í geðshræringu, er hann var orðinn viðskila við förunevtið, hugurinn þar með kominn úr jafnvægi og hversdagsskorðum, hrífst síðan af tign og töfrum öræfanáttúrunnar, einveran eykur honum næmleika og skáldflug, og hann sveltur daglengis, fastar til kvæðisins eins og helgur maður gerir fyrir guðræknis- stund. En stórháiíð hefur Jónasi verið sá dagur, er hann orti sh'kt kvæði. V Mánuði síðar en þetta varð, kom Bjarni Thorarensen heim til Hörgárdals úr suður- ferðinni, og tíu dögum seinna varð hann bráðkvaddur. En Jónas hafði haldið áfram ferðum sínum og rannsóknum norður eftir Vesturlandi (kvað þá m. a. í hálfkæringi dróttkvæða skopkenningavísu, Aldarhátt, „á reið fyrir neðan Fróðá,“ sbr. ehdr. pr. í Skírni 1048, 18ö—186). Vafalaust hefur hann m. a. ætlað að heimsækja Bjarna á Möðruvöllum, er norður kæmi, og ef til vill að dveljast eitthvað hjá honum. Hann er kominn norður í Húnavatnssýslu og segir svo sjálfur frá (í bréfi, Bit II, 116), að 28. ágúst hafi hann á Reykjabraut mætt sendiboða með fregnina af sviplegu frá- falli Bjarna. „Sama dag yrki eg á hestbaki kvæði, sem er varla af lakasta tagi“ („som vel ikke er af de sletteste“), segir hann: Skjótt hefir sól brugðið sumri.---- Skjótt hefir guð brugðið gleði góðvina þinna.------ Nú reikar harmur í húsum og hryggð á þjóðbrautum. Honum er mikið niðri fyrir, söknuðurinn sár, um leið og hann telur í skapþunga sínum það, sem eitt „hlægir“ hann við hel- lTegnina, og getur í þessu harmljóði sagt: „Glaðir skulum allir. . “. — Hann yrkir hér undir bragarhætti, sem Bjarna var tamur, og bregður upp dráttum til mann- Ivsingar, sem annars er ekki mikið um í erfiljóðum Jónasar: Ástmögur íslands hinn trausli og ættjarðar blóminn. Áður sat ítur með glöðum og orðum vel skipti.----- Kættir þú margan að mörgu, . . . þýðmennið, þrekmennið glaða og þjóðskáldið góða. En lýsingin á kveðskap Bjarna á betur við Ijóðmæli Jónasar sjálfs: „söngurinn ljúfi“. VI Eitt sinna mörgu ljúflingslaga yrkir Jón- as síðasta sumardagsmorguninn fyrsta, sem hann er á Islandi (A sumardagsmorg- uninn fyrsta 1842). Það er eini sálmurinn, sem til er eftir hann, og ætti það kvæði, eða meginhluti þess, vissulega að vera í sálmabók okkar, þar sem aldrei hefur verið neitt eftir þetta helgiskáld. Hér sem víðar kemur fram algyðistrú Jónasar eða nátt- úrutrú. Hann finnur guð í náttúrunni: „Gat ei nema guð og eldur gjört svo dýrðlegt furðuverk", sagði hann um fjallið Skjald- breið. Þegar hann yrkir áköll og bænir, verður varla greint milli guðdóms og nátt- úru. I Andvöku-„sálmi“, er hann nefnir svo og vrkir um þetta leyti, ákallar hann „dagsljósið dýra“, í Hulduljóðum hafði hann (í nafni Eggerts) beðið fyrir blóm- unum til guðs, sem hann ávarpar: „Faðir og vinur alls, sem er!“ Og í sumardags- sálminum fyrsta — og hinzta —, þeim er hér um ræðir, ákallar hann drottin á sama hátt: Höfundur, faðir alls, sem er um alheimsgeiminn, hvar sem fer. Hér þakkar hann skaparanum ljósgjöfina og biður fyrir landinu, en sjálfum sér til handa þess eins, er honum var allra hnossa mest, að mega njóta sumardýrðar náttúr- unnar: Leyfðu nú, drottinn, enn að una eitt sumar mér við náttúruna; kallirðu þá, eg glaður get gengið til þín hið dimma fet.

x

Nýtt Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.