Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Side 30
124
HELGAFELL
Eiginhandarrit Jónasar, í réttrí stœrð (KG 81 b /, í Arnasajni).
Elt svo hina! haltu
hugprúður til búða
Víkur. — Við þig leiki
völin á mölinni.
Sjálfsagt hefði Jónas breytt í endurskoð-
un því litla, sem hér stendur til bóta, ef
honum hefði enzt aldur til.
X
Þótt mikið af kvæðum Jónasar væri
sem sé upphaflega ort á skammri stundu,
eins og dæmin sýna, breytti hann þeim
oft síðar, sem ljóst er af handritum hans,
og bregzt varla, að hann hafi þá vikið
þeim til betra vegar — því að Jónas var
bæði snillingur og listamaður, þó enn meiri
snillingur. En þetta væri efni í annan pist-
il. Hér skal að lokum aðeins nefnt eitt
dæmi þessa. Fyrra liluta lokaerindis sonn-
ettunnar Eg bið að heilsa hafði Jónas fyrst
þannig:
Söngvarinn Ijúfi, fuglinn trúr, sem fer
með fjaðrabliki háa vegaleysu
í grænan dal að kveða kvæðin þín,
en breytir „söngvarinn“ í „vorboðinn“ (svo
prentað í Fjölni 1844) og „grænan dal“ í
„lágan dal“, unz hann finnur loks hið rétta