Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Qupperneq 37
PARKINSONS LÖGMÁL
131
greiðslu F fyrir að mæta á ráðstefnu úti á
landi, og E hefur talað um að sækja um
stöðu í félagsmálaráðuneytinu, svo að þar
losnaði önnur staða, sem þyrfti að fylla.
Nýlega frétti A um mjög óheppilegt ástar-
ævintýri D innan ráðuneytisins og af ein-
hverjum undarlegum orsökum eru G og F
hættir að talast við. Það væri því sannarlega
freistandi fyrir A að skrifa undir uppkast C,
án frekari tafa.
En A er samvizkusamur embættismaður.
Og þó hann sé hlaðinn vandamálum, sem
undirmenn hans hafa bakað honum, og orð-
ið hafa til eingöngu vegna tilveru þessara
undirmanna, bregzt hann ekki skyldu sinni.
Flann les uppkastið vandlega, sker niður
málalengingar C og H, svo að bréfið er að
lokum nokkum veginn eins og F gekk frá
því. Svo bætir hann málfarið, því enginn
þessara ungu manna virðist kunna íslenzku,
og niðurstaðan er svo að segja sama svar-
ið og hann mundi hafa skrifað á jafnlöng-
um líma, þótt enginn undirmannanna hefði
verið til.
Miklu fleiri menn og miklu lengri tími hef-
ur farið í að vinna nákvæmlega sama verk-
ið jafn vel og áður. Allir hafa haft nóg að
gera. Enginn hefur legið á liði sínu. Og A
íer ekki heim úr vinnunni fyrr en langt er
liðið á kvöld og flestir löngu komnir heim
frá vinnu sinni. Á leiðinni hugsar hann um
að langur vinnutími og gránandi hár er hlut-
skipti þeirra, sem komast áfram í lífinu.
Eg hef nú gefið ykkur, lesendur góðir, yfir-
lit yfir kenningar snillingsins Parkinsons og
útlistanir hans á frumatriðum lögmálsins. Út
í stærfræðilegar formúlur er ekki unnt að
fara að sinni, en ef til vill gefst tækifæri til
þess síðar. Rétt er að benda á það, að Park-
inson hefur sýnt fram á það með mörgum
dæmum úr heijnalandi sínu, að lögmál hans
er þar í fullu gildi. Ráðuneyti og stofnanir
þar hafa ekki aðeins vaxið hraðar en verk-
efni þeirra hafa gefið tilefni til, heldur hafa
þau stundum haldið áfram að vaxa, þótt
verkefnin hafi stórminnkað. Sömu sögu er
að segja frá öðrum þjóðum, sem kannað
hafa sannleiksgildi Parkinsons lögmáls.
Því miður hefur mér ekki unnizt tími til
nægilega víðtækra rannsókna á þessu sviði
hér á landi, en af mörgum augljósum dæm-
um þykist ég sjá, að Island sé engin undan-
tekning frá lögmálinu. Fróðlegt þætti mér,
ef lesendur Helgafells gerðu sem flestir at-
huganir á þessu innan þeirra stofnana, sem
þeim eru kunnar, og sendu Helgafelli niður-
stöður sínar. Ef til vill verður þá brátt hægt
að gera sér grein fyrir því, að hve miklu
leyti það er fyrir áhrif Parkinsons lögmáls,
sem skattarnir stóraukast ár frá ári og þjóðin
þarf alltaf að borga meiri og meiri peninga
fyrir síversnandi stjórnarfar.